Fréttablaðið - 07.10.2016, Side 8
www.n1.is facebook.com/enneinn
Hluti af vetrinum
Rúðuvökvi TjöruhreinsirOSRAM perur
N1 þjónustustöðvar
og verslanir um land allt.
Rúðusköfur
795 kr. 999 kr.
Verð frá
330 kr.
Verð frá
595 kr.
Vertu á undan
vetrinum
Rúðuvökvi
2,5 lítrar með allt
að -18°C frostvörn.
Hreinsar tjöru
og önnur
óhreinindi
af bílnum.
Vertu með öll ljós
kveikt í umferðinni.
Skilvirkasta tækið
á snjóþungum degi.
Samfélag Stúlkum með meðal-
talseinkenni kvíða hefur fjölgað
undanfarin ár. Fjölgunin tók mik-
inn kipp 2014. Hið sama má segja
um einkenni þunglyndis, að sögn
Ingibjargar Evu Þórisdóttur, dokt-
orsnema í sálfræði.
„Við erum við að sjá mikla aukn-
ingu í þessum flokkum 2014 og
2016,“ segir Ingibjörg.
Niðurstöður nýrrar skýrslu Rann-
sókna og greiningar um lýðheilsu
ungs fólks á landinu, leiðir í ljós
vaxandi einkenni kvíða og þung-
lyndis meðal stelpna á landinu öllu
í 8.-10. bekk. Tengsl eru á milli mik-
ils kvíða og þunglyndis og mikillar
notkunar á samskiptamiðlum.
Ingibjörg starfar fyrir Rannsóknir
og greiningu og hefur skoðað niður-
stöður kannana á kvíða og þung-
lyndi hjá börnum og unglingum
frá árinu 1996 til 2016. Hún segir
að lítill svefn og mikill tími á sam-
félagsmiðlum ýti undir þessi ein-
kenni.
Í rannsókninni kom í ljós að
svefn nemenda er of lítill en um
30 til 40 prósent nemenda sofa í
um sjö klukkustundir eða minna á
sólarhring, misjafnt eftir árgöngum.
Dæmi eru um stelpur sem sofa með
símann við hlið sér og vakna við
hverja tilkynningu á Facebook.
Ingibjörg segir hópinn sem sé
sex klukkustundir eða lengur á
samfélagsmiðlum vera að stækka.
„Þegar svefn og samfélagsmiðlar
eru skoðaðir saman sést að mest
einkenni kvíða og þunglyndis eru
hjá þeim hópi. Og þetta er miklu
meira hjá stelpum en hjá strákum,“
segir hún.
Ingibjörg ítrekar að enn líði
meirihlutanum vel, 63,1 prósent
stúlkna taldi andlega heilsu sína
góða eða mjög góða, en þó færri en
2014.
Ingibjörg segir ekki hægt að segja
að samfélagsmiðlar séu ástæðan
fyrir auknu þunglyndi þótt tengsl
séu fyrir hendi. Annað geti skýrt
samhengið.
„Það má til dæmis velta því upp
að þeir sem eru með meiri einkenni
þunglyndis leita meira á samfélags-
miðla. Það sem við sjáum þó er að
það eru meiri einkenni þunglyndis
og kvíða hjá þeim sem eru mikið á
samfélagsmiðlum,“ segir Ingibjörg
Eva Þórisdóttir.
benediktboas@frettabladid.is
Stelpur sem búa við erfiða fjárhagsstöðu eru í mestri hættu á að þjást af kvíða.
63,1%
stúlkna metur andlega
heilsu sína góða árið 2016
Leiðbeiningar frá borginni og landlækni
Á Lýðheilsuráðstefnu Reykjavíkur-
borgar og Landlæknisembættisins
á þriðjudag verður rætt um kvíða-
rannsóknina og tölur sýndar.
Dagur B. Eggertsson borgarstjóri
segir niðurstöðurnar áhugaverðar.
„Þessi mál þarf að taka föstum
tökum. Af einhverjum ástæðum er
kvíði að aukast hjá unglingum, sér-
staklega stúlkum. Til dæmis finnst
mér þurfa að ræða hvort borgin og
landlæknir eigi að gefa út leiðbein-
ingar til foreldra
um svefn, snjall-
tæki og sam-
félagsmiðla.
Við gerðum
þetta með
útivistartíma og
samverustundir
fjölskyldna fyrir tveimur áratugum.
Er nú tími kominn á þetta? Það
verður fjallað um þetta á þessari
ráðstefnu,“ segir borgarstjóri.
✿ Stúlkur í 8.-10. bekk
með einkenni kvíða
2003
9%
2016
17%
Kvíðnar vegna
samfélagsmiðla
Augljós tengsl eru á milli lítils svefns og mikillar
notkunar á samfélagsmiðlum og kvíða og þung-
lyndis hjá stúlkum í 8.-10. bekk. Stúlkum sem eru
meira en sex tíma á dag á samfélagsmiðlum fjölgar.
Kjaramál „Við erum að fara yfir
hvernig þetta leit út þegar við
kusum um síðasta samning. Hvað
var verið að fella, hvað var gott,
hvað er vont og hvað má bæta. Við
erum að taka púlsinn á fólkinu
okkar,“ segir Ólafur Loftsson, for-
maður Félags grunnskólakennara.
Ólafur ferðast nú um landið og
fundar með kennurum sem felldu
nýjan samning í september. – þea
Ræða samning
sem var felldur
Samfélag Þjónustumiðstöð fyrir
þolendur ofbeldis verður opnuð
við Bústaðaveg í Reykjavík á næst-
unni. Á miðvikudag skrifuðu níu
samstarfsaðilar um verkefnið undir
viljayfirlýsingu þess efnis.
Markmið miðstöðvarinnar er að
veita þolendum ofbeldis samhæfða
þjónustu og ráðgjöf, viðtöl við
félagsráðgjafa og lögreglu ásamt við-
tölum við grasrótarsamtök á borð
við Stígamót og Drekaslóð, þeim að
kostnaðarlausu. – snæ
Samhæfð hjálp
fyrir þolendur
Undirritun viljayfirlýsingar um miðstöð
fyrir þolendur. Fréttablaðið/Ernir
7 . o K t ó b e r 2 0 1 6 f Ö S t U D a g U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:3
8
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
D
6
-9
1
E
0
1
A
D
6
-9
0
A
4
1
A
D
6
-8
F
6
8
1
A
D
6
-8
E
2
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
1
0
_
2
0
1
6
C
M
Y
K