Fréttablaðið - 07.10.2016, Side 10

Fréttablaðið - 07.10.2016, Side 10
Frá yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis ALÞINGISKOSNINGAR 29. október 2016 Auglýsing um viðtöku framboða og fleira Framboðsfrestur til alþingskosninga, sem fram eiga að fara þann 29. október 2016, rennur út kl. 12 á hádegi föstudaginn 14. október nk. Framboð í Suðvesturkjördæmi skal tilkynna skriflega til yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis, sem veitir þeim viðtöku í Íþróttahúsinu Kaplakrika í Hafnarfirði, föstudaginn 14. október 2016, kl. 10 til 12 fyrir hádegi. Á framboðslista skulu vera nöfn 26 frambjóðenda, eða tvöfalt fleiri frambjóðenda en nemur þingsætum í kjördæminu, hvorki fleiri né færri. Tilgreina skal skýrlega nafn frambjóðanda, kennitölu hans, stöðu eða starfsheiti og heimili. Framboðslista skal fylgja skrifleg yfirlýsing allra þeirra sem á listanum eru um að þeir hafi leyft að setja nöfn sín á listann. Framboðslista skal og fylgja skrifleg yfirlýsing frá kjósendum í Suðvesturkjördæmi um stuðning við listann og fyrir hvaða stjórnmálasamtök listinn er boðinn fram. Tilgreina skal nafn meðmælanda, kennitölu hans og heimili. Fjöldi meðmælenda skal vera 390 hið fæsta og eigi fleiri en 520. Sami kjósandi má ekki mæla með fleiri en einum framboðslista. Komi það fyrir, verður kjósandinn ekki talinn meðmælandi neins þeirra. Loks skal fylgja skrifleg tilkynning frá frambjóðendum listans um það hverjir tveir menn séu umboðsmenn listans. Vakin er sérstök athygli á að afhenda skal yfirkjörstjórn frumrit meðmælendalista. Til að flýta fyrir yfirferð og vinnslu er mælst til þess að meðmælendalistar verði skráðir með rafrænum hætti á þar til gerðu vefsvæði á www.Ísland.is áður en þeim er skilað til yfirkjörstjórnar. Fundur yfirkjörstjórnar til að úrskurða um framboð, þar sem umboðsmönnum framboðslista gefst kostur á að vera viðstaddir, verður haldinn í Íþróttahúsinu Kaplakrika í Hafnarfirði, laugardaginn 15. október 2016, kl. 12 á hádegi. Meðan kosning fer fram, laugardaginn 29. október 2016, verður aðsetur yfirkjörstjórnar Suðvesturkjördæmis í Íþróttahúsinu Kaplakrika í Hafnarfirði, þar sem talning atkvæða fer fram að loknum kjörfundi kl. 22. Fyrstu kjörkassar verða opnaðir kl. 18:30 og hefst þá flokkun atkvæða. 4. október 2016. Yfirkjörstjórn Suðvesturkjördæmis, Jónas Þór Guðmundsson, Guðrún Sesselja Arnardóttir, Elín Jóhannsdóttir, Ástríður Sólrún Grímsdóttir, Eysteinn Jónsson. 6 vikna námskeið fyrir konur Hefst 10. okt. Álfheimar 74 - 104 Reykjavík - S: 414-4000 - www.hreyfing.is Barre æfingakerfið er sérstaklega samsett styrktar- og teygjuæfingakerfi sem mótar fallega vöðva og grennir allan líkamann. Unnið mest með eigin líkamsþyngd bæði á gólfi og við stöng. Vöðvarnir eru þjálfaðir að þreytumarki eftir ákveðnu kerfi ofhleðslu og teygjuæfinga. Stífar æfingar fyrir rass, kvið og læri skila þeim grönnum, stinnum og stæltum. Nánari upplýsingar og skráning á www.hreyfing.is Noregur Norska Nóbelsverðlauna- nefndin hefur undanfarið lagt tölu- verða vinnu í að finna vonarglætu friðar í annars harla ófriðvænlegum heimi. Niðurstaðan verður kynnt í dag klukkan 11 að norskum tíma, en þá verður klukkan níu hér á Íslandi. Þetta verður í 97. skiptið sem friðarverðlaun Nóbels verða veitt, en að þessu sinni hafa 376 tilnefn- ingar borist nefndinni. Það er meira en nokkru sinni. Fjölmiðlar og friðarspekúlantar víða um heim hafa að venju spreytt sig á að geta sér til um hverjir helst komi til greina. Sumir hinna tilnefndu þykja afar ólíklegir, eins og til dæmis banda- ríski forsetaframbjóðandinn Donald Trump sem tilnefndur er fyrir „hina öflugu hugmyndafræði sína um að styrkleiki leiði af sér frið“, að því er fullyrt er á fréttavef BBC. Aðrir þykja koma vel til greina, þar á meðal Frans páfi, afganskar hjólreiðakonur og grískir eyja- skeggjar sem hafa tekið á móti flóttafólki. Kristian Berg Harpviken, fram- kvæmdastjóri Friðarrannsóknar- stofnunarinnar PRIO í Ósló, hefur langa reynslu af því að giska á það hver helst komi til greina. Hann nefnir hjálparsveitir í Sýrlandi, baráttukonu í Rússlandi, kvensjúk- dómalækni í Kenía, uppljóstrarann Edward Snowden og samninga- menn frá Íran og Bandaríkjunum. Allt þangað til um síðustu helgi þóttu reyndar mestar líkur á því að friðarverðlaunin í ár kæmu í hlut Juans Manuals Santos Kólumbíufor- seta og Rodrigo Londonos, leiðtoga FARC-skæruliðahreyfingarinnar, sem undirrituðu nýlega friðarsamn- ing sem átti að binda enda á áratuga langan ófrið í landinu. Íbúar felldu hins vegar þetta samkomulag í þjóðaratkvæðagreiðslu um síðustu helgi, þannig að vart kemur lengur til greina að þeir fái verðlaunin þetta árið. gudsteinn@frettabladid.is Leitað að vonarglætu í ófriðvænlegum heimi Friðarverðlaun Nóbels verða afhent í dag í 97. sinn. Að þessu sinni hafa 376 tilnefningar borist norsku Nóbelsnefndinni, fleiri en nokkru sinni. Þeirra á meðal er enginn annar en Donald Trump en einnig aðrir sem þykja líklegri. BaNdaríkiN Íbúar á austurströnd Flórída, Georgíu og Suður-Karól- ínu í Bandaríkjunum voru í gær að búa sig undir hrikalegar hamfarir þegar fellibylurinn Matthías kemur þangað. Stjórnvöld í þessum þremur ríkj- um Bandaríkjanna sögðu meira en tveimur milljónum manna að forða sér frá heimilum sínum. „Farið burt,“ sagði Derrick Henry, borgarstjóri í Daytona Beach á Flór- ída. „Ekki hafa áhyggjur af eigum ykkar fyrr en seinna. Hugsið um líf ykkar núna. Þið eigið aðeins eitt líf.“ Rick Scott, ríkisstjóri í Flórída, tók enn dýpra í árinni: „Þetta er alvarlegt,“ sagði hann. „Þessi storm- ur mun drepa ykkur. Tíminn er að renna út.“ Víða mátti sjá fólk byrgja glugga og dyr bæði á heimilum og fyrir- tækjum. Fjöldi fólks ákvað að fara burt til ættingja eða annað þar sem hægt væri að fá húsaskjól á meðan ósköpin gengju yfir. Fellibylurinn hefur þegar valdið miklum skaða á Haítí, Kúbu og Bahamaeyjum og var búist við honum að ströndum Flórída seint í gærkvöld eða nótt. Á Haítí kostaði hann meira en hundrað manns lífið og eyðilagði tugi þúsunda heimila. – gb Milljónum manna sagt að forða sér Í bænum Delray Beach voru þessir menn að byrgja glugga og dyr veitingastaðar sem þeir reka þar. NorDicphotos/AFp Líklegir viðtakendur friðarverðlauna Nóbels í ár Aðstoð við flóttafólk í rússlandi Svetlana Gannushkina heitir rúss- nesk kona sem barist hefur ákaft fyrir réttindum flóttamanna í Rúss- landi. Hún hefur talað máli flótta- fólks og staðið fyrir því að útvega flóttafólki þar í landi bæði lagalega aðstoð og menntun. Fullvíst þykir að rússnesk stjórnvöld myndu líta á það sem beina ögrun verði hún fyrir valinu þetta árið. Kjarnorkusamningur Írans og Bandaríkjanna Orkumálaráðherrarnir Ernest Moniz, sem er bandarískur, og Ali Akbar Salehi, sem er íranskur, báru hitann og þungann af samninga- viðræðum Írans og Bandaríkjanna um kjarnorkumál. Samningur var gerður í júlí síðastliðnum eftir lang- ar og erfiðar viðræður. Spennan á milli ríkjanna hefur síðan minnkað mjög þótt efasemdaraddir bæði í Bandaríkjunum og Íran vari enn við því að afleiðingarnar geti orðið óþægilegar. hvíthjálmarnir í sýrlandi Hjálparstarfsmenn í Sýrlandi, oftast kenndir við hvítu hjálmana sem þeir bera, hafa unnið hörðum höndum að því að bjarga fólki úr húsarústum í Sýrlandi á helstu átakasvæðunum þar sem loftárásir dynja linnulaust á fólki. Þeir leggja sig í lífshættu á hverjum degi en halda áfram að koma fólki undir læknishendur eða til ástvina sem geta hlaupið undir bagga. Fórnarlömbum nauðgana hjálpað Kvensjúkdómalæknirinn Denis Mukwege hefur hjálpað þúsundum kvenna í Austur-Kongó, sem hafa orðið fyrir nauðgunum eða mátt þola annað kynferðislegt ofbeldi. Með honum hafa starfað tvær konur, Mama Jeanne og Mama Jeannette, sem hafa leitað uppi og hjálpað þolendum kynferðisofbeld- is víða um land. Hann hefur áður verið tilnefndur til Nóbelsverðlauna og hlaut Sakharov-verðlaun Evrópu- þingsins fyrir tveimur árum. hvíthjálmarnir í sýrlandi, sjálfboðaliðar sem bjarga fólki á átakasvæðum. NorDicphotos/AFp 7 . o k t ó B e r 2 0 1 6 F Ö S t u d a g u r10 F r é t t i r ∙ F r é t t a B L a ð i ð 0 7 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :3 8 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A D 6 -8 C F 0 1 A D 6 -8 B B 4 1 A D 6 -8 A 7 8 1 A D 6 -8 9 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 6 _ 1 0 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.