Fréttablaðið - 14.09.2016, Síða 2

Fréttablaðið - 14.09.2016, Síða 2
Veður Í dag er útlit fyrir vaxandi suðaustanátt með rigningu víða á sunnan og vestan- verðu landinu, einhverjir dropar ná lík- lega norður á Vestfirði en annars staðar á norðanverðu landinu og austan til er útlit fyrir mun hægari vind og bjartviðri. Hiti 8 til 13 stig, hlýjast norðan til. sjá síðu 20 Ferðamenn forvitnast um fiskinn „Þetta er nú mestmegnis ufsi en stöku þorskur einnig,“ segir Guðjón Bragason, skipstjóri á Steina Sigvalda GK-526. Verið var að landa fiski úr skipinu í Grindavík þegar ljósmyndara Fréttablaðsins bar að garði. Fiskurinn veiddist í Reykjanesröstinni. „Það slæðist smá makríll og annað dótarí með í netinu en mest eru þetta hreinar línur. Nokkrir þorskar og afgangurinn ufsi.“ Fréttablaðið/Eyþór íþróttir Stefanía Daney Guðmunds- dóttir varð skyndilega á allra vörum eftir að sundkappinn Jón Margeir Sverrisson táraðist í viðtali við RÚV þar sem hann sagði að stefnan hefði verið sett á gullverðlaun handa Stef- aníu sem tókst ekki. Vonbrigðin leyndu sér ekki og tilfinningarnar báru hann nánast ofurliði. Þjóðin hreifst með og viðtalið fór sem eldur í sinu um samfélagsmiðla. Stefanía, sem sjálf er íþrótta- stjarna á Akureyri, er ákaflega stolt af sínum kærasta en þau hafa verið par síðan í febrúar. „Fjórða sætið er frábær árangur. Hann var ekki búinn að segja mér að hann ætlaði að reyna að vinna gullið fyrir mig áður en hann hélt á leikana. Ég táraðist alveg þegar ég sá viðtalið við hann, ég viðurkenni það alveg.“ langaði að vera með honum Móðir Stefaníu, Brynja Herborg Jónsdóttir, ákvað að láta Stefaníu ekki sjá viðtalið fræga fyrr en hún kæmi heim úr skólanum. „Ég vildi ekki að hún færi með tárin í aug- unum í skólann. Hún var búin í skólanum um eitt leytið og kom þá heim og horfði.“ Stefanía segir að hún hafi orðið vör við að þjóðin hafi hrifist með Jóni Margeiri og skóla- og æfinga- félagarnir voru duglegir að tala við hana þegar hún kom í skólann og á æfingu í gær. „Við Jón kynntumst í gegn um íþróttirnar. Mig langaði mikið að vera með honum í Ríó og ætlaði að komast sjálf sem keppandi en það tókst ekki í þetta sinn. Það eru aðrir leikar eftir fjögur ár og ég hef sett stefnuna á þá.“ Brynja segir Jón Margeir vera draumatengdason sem hafi lagt lín- urnar fyrir aðra karlmenn. „Það hafa alltof fáir tárast í beinni útsend- ingu. Þetta er spark í rassinn fyrir aðra kærasta,“ segir hún og hlær. Jón Margeir kom inn á í viðtalinu hversu góð áhrif Stefanía hefði haft á líf hans og meðal annars hjálpað honum að hætta að drekka gos. Sjálf hætti hún að drekka gos fyrir löngu. „Ég hætti að drekka gos fyrir þremur árum og hann ákvað að hætta þegar við fórum að vera saman.“ Finna tíma fyrir hvort annað Parið er í fjarbúð en Stefanía æfir og keppir fyrir íþróttafélagið Eik á Akureyri auk þess sem hún æfði með Hafdísi Sigurðardóttur, Íslands- meistara í langstökki, hjá UFA og undir handleiðslu Gísla Sigurðs- sonar sem þjálfaði áður tugþrautar- kappann Jón Arnar Magnússon. „Við höfum lítinn tíma til að sinna öðru en æfingum og námi. En við höfum tekið okkur langar helgar og annað álíka þegar tækifæri gefst auk þess að hittast reglulega á íþrótta- mótum.“ benediktboas@frettabladid.is Styður sinn mann þrátt fyrir gullleysið Íþróttaparið Jón Margeir Sverrisson og Stefanía Daney Guðmundsdóttir láta ekki fjarbúð stöðva ást sína. Jón Margeir táraðist í viðtali því hann vildi vinna til gullverðlauna handa Stefaníu sem hefur haft góð áhrif á hann. Stefanía og Jón Margeir á góðri stundu. Fréttablaðið/úr EinkaSaFni PRAG 29. september í 4 nætur Netverð á mann frá kr. 65.850 m.v. 2 í herbergi m/morgunmat. Jurys Inn Prague Hotel Bir t m eð fy rir va ra um pr en tvi llu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r étt til le iðr étt ing a á sl íku . A th. að ve rð ge tur br ey st án fy rir va ra .Frá kr. 65.850 m/morgunmat Helgarferð til ÁÐUR KR. 79.900 NÚ KR. 39.950FL UG SÆ TI FY RI R2 1 á flugsæti m/gistingu Það hafa alltof fáir tárast í beinni útsendingu. Þetta er spark í rassinn fyrir aðra kærasta. Brynja Herborg Jónsdóttir Kópavogur Senda þarf allt að þrjá- tíu börn heim á hverjum degi af leikskólanum Austurkór í Kópavogi vegna manneklu. Ekki hefur tekist að ráða í lausar stöður sem skapar álag á starfsfólk sem hefur í meiri mæli farið í veikindaleyfi vegna álags. Foreldrar barna leikskólans fengu sent bréf þess efnis í gær. Segir í bréfinu að á rúmum mán- uði hafi ekki tekist að ráða fólk á leikskólann og það vanti starfs- fólk í fimm heilar stöður. „Allir hafa lagt hönd á plóg og brett upp ermarnar til að dagurinn gangi upp. En nú gengur það ekki lengur að bjóða börnunum upp á þessar aðstæður,“ segir í bréfi leikskólans. Svipað ástand er upp á teningnum í Reykjavík. Frá því var sagt í Frétta- blaðinu á dögunum að þar vanti rúmlega 50 leikskólakennara til að fullmanna leikskóla borgarinnar. – sa Börn send heim vegna manneklu BandaríKin Bæjaryfirvöld í Muscat- ine í Iowa-ríki hafa játað sig sigruð í baráttu við hóp af bjórum. Bjórum er eðlislægt að byggja stíflur en ein slík ógnar mannvirkjum í bænum. Í sumar var í þrígang gripið til þess ráðs að fjarlægja umrædda stíflu en bjórarnir endurbyggðu hana jafn oft. Það tók dýrin aðeins tæpar tvær vikur í hvert sinn. Aðgerðir stjórnvalda hafa kost- að andvirði rúmlega milljónar íslenskra króna. Það var því mat þeirra að það myndi ekki borga sig að verja skattfé í slíkt eilífðarverk- efni. – jóe Gefast upp gegn bjórum norEgur Féð sem norska ríkið lætur af hendi rakna til björgunarsveita nægir ekki í öllum tilfellum þegar verkefnunum fjölgar. Í frétt norska ríkisútvarpsins er haft eftir fulltrúa björgunarsveitar Rauða krossins á Hörðalandi að leitarmenn þurfi í auknum mæli að taka sér launalaust frí frá vinnu vegna fjölgunar verk- efna. Auk þess verji margir sjálfboða- liðanna 10 til 15 þúsundum norskra króna á ári í búnað. Rauði krossinn er samt andvígur því að láta ferðamenn borga vegna aðstoðarinnar við þá. Bæði norska stjórnin og stjórnar- andstaðan eru fylgjandi því að björg- unarsveitarmenn fái tekjumissinn bættan. – ibs Bjarga túristum fyrir eigið fé bjórarnir voru of snöggir að naga trén niður. nordic PhotoS/GEtty 1 4 . s E p t E m B E r 2 0 1 6 m i ð v i K u d a g u r2 f r é t t i r ∙ f r é t t a B L a ð i ð 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 F -A 7 E C 1 A 8 F -A 6 B 0 1 A 8 F -A 5 7 4 1 A 8 F -A 4 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.