Fréttablaðið - 14.09.2016, Síða 8
HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · Sími 590 5000 · hekla.is
Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði www.skoda.is
Stenst kröfur sem stærri
bílar væru stoltir af
Verð frá aðeins
2.990.000 kr.
ŠKODA Rapid kemur skemmtilega á óvart, bæði í akstri og viðmóti. Hreinar línur, nýtt aflmikið yfirbragð
og tímalaus fágun gera Rapid að frábærum kosti. Komdu í reynsluakstur og snertu á framtíðinni.
Umhverfismál „Við höfum fundað
með umhverfisráðuneytinu og
engin viðbrögð fengið frá þeim bæ.
Þau virðast bara ekki vera heima í
þessu máli,“ segir Jón Helgi Björns-
son, formaður Landssambands
veiðifélaga.
Landssambandið hefur gert þá
kröfu að fiskeldi í opnum kerum
verði bannað. Til vara er sú krafa
gerð að ekki verði gefin út fleiri leyfi
fyrir fiskeldi fyrr en farið hefur fram
vandað áhættumat á sjókvíaeldi.
Fiskistofa staðfesti í gær að regn-
bogasilungur finnst í ám í Patreks-
firði, Tálknafirði, Arnarfirði og
Dýrafirði. Fiskistofa rannsakar nú
hvort þessa tegund sé einnig að
finna í Ísafjarðardjúpi, en grunur er
um að svo geti verið.
Guðni Magnús Eiríksson, sviðs-
stjóri á lax- og silungaveiðisviði
Fiskistofu, segir að engin tilkynning
hafi borist stofnuninni um að fiski
hafi verið sleppt fyrir slysni. Því
liggi ekki fyrir hvenær fiskurinn hafi
sloppið „Ef þetta er úr einni slysa-
sleppingu þá er eitthvað liðið síðan
og hann er þá búinn að dreifa sér á
stærra svæði,“ segir Guðni. Beðið sé
eftir niðurstöðum úr rannsóknum
Matvælastofnunar á því hvað hafi
gerst. Matvælastofnun sér um að
afla upplýsinga frá eldisaðilum á
svæðinu.
Guðni bendir á að regnboga-
silungur hafi ekki náð fótfestu í
íslenskri náttúru. „Hann hrygnir
að vori og það hrygningarmynstur
passar mjög illa hér,“ segir Guðni.
Sú hætta sé hins vegar fyrir hendi
að ef mjög mikið sleppur af regn-
bogasilungi þá geti hann haft áhrif
í litlum ám. „Með því að taka pláss
og vera í samkeppni um fæðu og
annað við litla og viðkvæma stofna.
En þetta yrðu þá fyrst og fremst
tímabundin áhrif sem þetta leiðir
til,“ segir hann.
Guðni hvetur fólk sem kann að
hafa veitt eldislax að tilkynna slíkt
til opinberra aðila.
Formaður Landssambands veiði-
félaga tekur undir að regnboga-
silungur sé meinlaus tegund að
því leyti að fiskurinn fjölgi sér ekki
í íslenskri náttúru. „En það er líka
klárt að menn ætla að hætta eldi
regnboga og skipta honum út fyrir
norskan ógeldan lax. Ég sé engin
rök fyrir að kvíarnar muni halda
betur með norska laxinum,“ segir
Jón Helgi.
Jón Helgi segir að eldi í opnum
kvíum sé einfaldlega ekki öruggt.
„Okkar afstaða er auðvitað sú að
ef menn ætla að vera í fiskeldi þá
ættu menn að hafa það í lokuðum
kerum.“ Jón Helgi bendir á að í fyrra
hafi verið framleidd um 3.000 tonn
af eldisfiski, í ár verði þau á milli
7-8 þúsund og búið sé að heimila
40 þúsund tonn. „Hvernig verður
þetta þegar búið er að fimmfalda
framleiðsluna?“ spyr Jón Helgi.
jonhakon@frettabladid.is
Eigendur
veiðirétta vilja
banna eldið
Eldisfiskur finnst í ám víða á Vestfjörðum. Óvíst
hvenær fiskurinn slapp. Formaður Landssambands
veiðifélaga vill banna eldi í opnum kerum. Hann
segist hafa fundað með umhverfisráðuneytinu en
engin viðbrögð hafi fengist við skilaboðum hans.
Þessi 58 sentimetra regnbogasilungur veiddist í Lóni fyrr í sumar. Eigendum veiðiréttar þykir óttækt að eldisfiskur sé alinn í
opnum kerum.
Okkar afstaða er
auðvitað sú að ef
menn ætla að vera í fiskeldi
þá ættu menn að hafa það í
lokuðum
kerum.
Jón Helgi Björns-
son, formaður
Landssambands
veiðifélaga
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m i Ð v i K U D A G U r8 f r é t t i r ∙ f r é t t A b l A Ð i Ð
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
F
-C
A
7
C
1
A
8
F
-C
9
4
0
1
A
8
F
-C
8
0
4
1
A
8
F
-C
6
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K