Fréttablaðið - 14.09.2016, Side 12

Fréttablaðið - 14.09.2016, Side 12
www.volkswagen.is Amarok býður upp á einstaklega gott vinnuumhverfi, mikið innanrými og stóran pall. Frábærir aksturseiginleikar og þýsk gæði endurspeglast í þessum kröftuga pallbíl. Amarok Startline með fjarstýrðum og tímastilltum vélahitara (Webasto) og loftkælingu fæst nú á sérstöku tilboðsverði. Amarok Startline 4Motion D/C 2.0 TDI 140 hestöfl kostar frá 5.840.000 kr. (4.709.677 kr. án vsk) Eyðsla frá 7,6 lítrum/100 km. Afkastamikill vinnubíll www.volkswagen.is AtvinnubílarHEKLA býður gott úrval atvinnubíla og góða þjónustu. HEKLA · Laugavegi 170-174 · Reykjavík · sími 590 5000 · hekla.is · umboðsmenn um land allt: Höldur Akureyri · Bílasala Selfoss · Bílás Akranesi · HEKLA Reykjanesbæ · Heklusalurinn Ísafirði Volkswagen Amarok Streituvaldar í starfi og einkalífi geta orðið að sjúklegri streitu og valdið kulnunarástandi. Í nútíma- samfélagi þar sem óljós mörk eru á milli vinnu og frítíma, áreitið er meira og samskiptakröfur flókn- ari  eru æ fleiri sem upplifa slíkt ástand. „Þegar fólk upplifir eðlilega streitu nær það að jafna sig eftir góða hvíld í nokkra daga. En þegar um sjúklega streitu er að ræða þarf fólk stuðning og meðferð til að geta unnið í streituvöldunum. Því starf- semi heilans er verulega trufluð og það tekur tíma fyrir heilann að endurnýja sig. Því þarf oft að draga úr vinnu eða jafnvel taka frí í ákveðinn tíma,“ segir dr. Ólafur Þór Ævarsson, geðlæknir hjá For- vörnum. Forvarnir, í samvinnu við Streitu- skólann, standa fyrir málþingi á morgun um streitu og sálfélags- lega vinnuvernd. Ólafur bendir á að mikilvægt sé fyrir atvinnurekendur að þekkja til kulnunar. „Samkvæmt vinnuverndarlögum ber vinnuveitandinn talsvert mikla ábyrgð á þessum hlutum. Við erum að mæta þörfinni að veita mann- auðsstjórum og stjórnendum fyrir- tækja aðgang að þekkingu á þessu sviði,“ segir Ólafur en þverneitar að viðhorfið hér á landi sé að streita sé aumingjaskapur. „Í dag eru víða vel menntaðir mannauðsstjórar sem gera sér grein fyrir að mikilvægt er að greina þetta og sinna þessu sem fyrst en helst að ná að hindra svona ástand hjá starfsmönnum.“ Frekari upplýsingar um ráðstefn- una má finna á stress.is Heilsa Garðar Agnarsson Hall er matreiðslumaður og í fimmtán ár  rak hann  veitingaþjónustuna Krydd og kavíar sem hann átti hlut í sjálfur. Í fyrstu tók mikið á að koma fyrirtækinu á fót en álagið varð ekki síður mikið þegar það fór að ganga vel. „Ég var fljótt kominn langt út fyrir minn þægindaramma, var í eldhúsinu, starfsmannastjóri, fjármálastjóri og sinnti öllum dag- legum málum. Ég vann 14-16 tíma á dag, var fyrstur til vinnu og síð- astur út og svo sinnti ég verkefnum í tölvunni heima á kvöldin.“ Garðar hrundi niður árið 2009 og var lagður inn á spítala. En það var ekki tengt við vinnuálag heldur bara óútskýrð veikindi. Hann jafn- ar sig og snýr til baka í vinnuna, tví- efldur. „Vinnan verður þráhyggja, ein- hvers konar fíkn. Maður verður stjórnlaus í stjórnseminni og þetta er eiginlega eins og manískt ástand. Ég hef lýst þessu eins og að vera flóðhestur með gyllinæð, út um allt án þess að hafa fókus á neinu.“ Garðar fór að finna fyrir auknu orkuleysi og smátt og smátt tapaði hann heilsunni á ný. Hann fann fyrir astma, höfuðverkjum, melt- ingartruflunum og sífelldri þreytu, alveg sama hvað hann svaf mikið. „Ég sofnaði á kvöldin en vaknaði svo um miðjar nætur með hausinn á fullu. Ég tókst á við streituna með því að borða og drakk áfengi til að deyfa mig. Þannig að í þokkabót var ég orðinn alltof þungur.“ Fyrir tæpum tveimur árum lenti Garðar aftur á botninum nema nú var hann dýpri en áður. Hann sá að hann varð að bregðast við og hætti í starfi sínu. Hann hefur verið að byggja sig upp síðan þá en hann bendir á að fyrst og fremst sé þetta andleg vinna. „Það er mikil flækja þarna að baki. Ég var mikið að sækjast eftir viðurkenningu með vinnunni, það var drifkrafturinn. Þannig að ég hef unnið mikið í sjálfum mér og fer núna hægt af stað í styttri verkefni, sem eru fyrirsjáanleg og vel yfirstíganleg.“ Garðar býr nú í London og hefur tekið að sér verkefni í matreiðslu- geiranum. Hann gefur ekki mikið fyrir dugnað og vinnusemi sem mestu dyggðir Íslendinga. „Ég gef skít í slíkt í dag. Maður hefur kynnst því að það er annað og meira sem skiptir máli í lífinu og ég finn það hér á fólki að það er ekkert að gera út af við sig með vinnu. Svo er það heilsan sem skiptir máli. Ef maður hefur ekki heilsuna, hefur maður ekki neitt. Peningar skipta nákvæmlega engu máli.“ Vinnan varð að þráhyggju Æ fleiri upplifa kulnun eða streitu í nútíma sam- félagi. Matreiðslumaður rakst á vegg fyrir tveimur árum eftir maníska vinnufíkn og er enn að jafna sig. Vinnan verður þráhyggja, einhvers konar fíkn. Maður verður stjórnlaus í stjórnseminni og þetta er eiginlega eins og manískt ástand. Garðar Agnarsson Hall matreiðslu- maður Erla Björg Gunnarsdóttir erlabjorg@365.is Hverjir eiga í hættu að fara í kulnunarástand? Allir. En ekki síst fólk á besta aldri, vel menntað, sterkt og duglegt sem gleymir að gæta að sínum eigin hlut. l Ofurþreyta l Slen l Verkir l Svefntruflanir l Kvíði og depurð l Pirringur l Einbeitingarskortur l Gleymska l Minnkað andlegt úthald l Minna þol við álagi Hvað er kulnun? Sjúkleg streita sem kemur til vegna meira álags en einstaklingurinn þolir. Streitan hefur áhrif á heilann sem starfar ekki eðlilega. Áhrif streitunnar koma hægt og sígandi á mánuðum eða örfáum árum. Á því tímabili myndast vítahringur með svefn og hvíld. Þá nær streitan skyndilega á mjög stuttum tíma miklum tökum á heilsunni. Þegar streita verður viðvarandi ástand Samkvæmt vinnu- verndarlögum ber vinnuveitandinn talsvert mikla ábyrgð á þessum hlutum. Ólafur Þór Ævarsson geðlæknir 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m i Ð V i K U D a G U r12 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a Ð i Ð 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 2 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 F -A 2 F C 1 A 8 F -A 1 C 0 1 A 8 F -A 0 8 4 1 A 8 F -9 F 4 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.