Fréttablaðið - 14.09.2016, Qupperneq 15
Fjörutíu ár eru síðan lög um jafnrétti kvenna og karla nr. 78/1976 voru samþykkt frá
Alþingi. Þar segir: „Tilgangur laga
þessara er að stuðla að jafnrétti og
jafnri stöðu kvenna og karla.“ Þessi
texti er í samræmi við 65 gr. stjórnar-
skrár lýðveldisins Íslands, þar sem
segir: „Allir skulu vera jafnir fyrir
lögum og njóta mannréttinda án til-
lits til kynferðis, trúarbragða, skoð-
ana, þjóðernisuppruna, kynþáttar,
litarháttar, efnahags, ætternis og
stöðu að öðru leyti. Konur og karlar
skulu njóta jafns réttar í hvívetna.“
Því er spurt hvað er jafnrétti
kynja? Getum við 40 árum síðar
sagt að konur og karlar á Íslandi hafi
jafna stöðu í samfélaginu? Merkti
jöfn staða eða jafnrétti eitthvað
annað fyrir 40 árum en núna?
Frá því umrædd lög voru sett fram
hafa komið aðrir lagatextar um sama
efni og nú gilda lög um jafna stöðu
og jafnan rétt kvenna og karla nr.
10/2008. Þar segir: „Markmið laga
þessara er að koma á og viðhalda
jafnrétti og jöfnum tækifærum
kvenna og karla og jafna þann-
ig stöðu kynjanna á öllum sviðum
samfélagsins. Allir einstaklingar
skulu eiga jafna möguleika á að njóta
eigin atorku og þroska hæfileika sína
óháð kyni.“ Í 18. gr. laganna segir:
„Atvinnurekendur og stéttarfélög
skulu vinna markvisst að því að jafna
stöðu kynjanna á vinnumarkaði.
Atvinnurekendur skulu sérstaklega
vinna að því að jafna stöðu kynjanna
innan fyrirtækis síns eða stofnunar
og stuðla að því að störf flokkist ekki
í sérstök kvenna- og karlastörf. Sér-
stök áhersla skal lögð á að jafna hlut
kynjanna í stjórnunar- og áhrifa-
stöðum.“
Við sem skrifum þessa grein
komum úr jarðvegi stéttarfélaga
og okkur þykir við hæfi að fjalla
um þau mál er varða jafna stöðu
kvenna og karla í samfélagi okkar á
þessum tímamótum. Er það þannig
í raun að konum og körlum bjóðist
jöfn tækifæri í samfélagi okkar? Eru
sambærileg laun fyrir sömu vinnu?
Eru ævitekjur sambærilegar? Ein-
hverjir vilja svara því til að kynin
séu ólík og vart raunhæft að ná
fram neinum samanburði af viti. Er
það virkilega svo? Hvað var átt við
þegar stjórnarskráin var skrifuð og
jafn réttur kynjanna samþykktur?
Þegar jafnréttismál ber á góma er
oft stutt í umræðu um barnaupp-
eldi og samvistir við þau. Við vilj-
um gjarnan að foreldrar taki jafna
ábyrgð á uppeldi barna og heim-
ilisstörfum. Samkvæmt tölum Hag-
stofunnar var meðalfjöldi unninna
klukkustunda í maí 2016 44,4 hjá
körlum en 37,3 hjá konum. Þessar
tölur endurspegla annan veruleika
en þann sem við sjáum fyrir okkur.
Það er styttra en margir halda síðan
menntun stóð bæði konum og körl-
um til boða á Íslandi. Nú þykir það
sjálfsagt.
Köllum eftir aðgerðum
Það er staðreynd að ómenntaðar
konur hafa að jafnaði síðri tekju-
möguleika en ómenntaðir karlar
og er það væntanlega ein skýring
þess að fleiri konur en karlar sækja
sér háskólamenntun. Kjarakann-
anir BHM og Aðgerðahóps um
launajafnrétti varðandi launamun
karla og kvenna frá 2015 staðfesta
að háskólamenntaðar konur hafa
að jafnaði síðri tekjumöguleika en
háskólamenntaðir karlar. Þarna er
talað um kynbundinn launamun
sem vísbendingar eru um að fari
aftur vaxandi á Íslandi. Launamun-
urinn jafngildir því að konur vinni
frítt einn mánuð á ári.
Er launamunur kynjanna náttúru-
lögmál eða getum við upprætt hann?
Við getum tekist á um aðferðafræði
kannana og orsakir vandans en stað-
reyndin er hins vegar sú að einhver
skekkja er innbyggð í samfélagið og
hana þarf að laga. Við köllum því
eftir markvissum aðgerðum sem
skila árangri en ekki einungis fleiri
rannsóknum á stöðu mála. Innleiða
þarf Jafnlaunastaðalinn á sem flesta
vinnustaði, endurreisa fæðingaror-
lofskerfið til að tryggja þátttöku
beggja kynja í umönnun barna, gefa
ungmennum tækifæri á að velja sér
starfsvettvang óháð staðalmyndum
kynjanna, uppræta launamun
kynjanna og þannig munu allir njóta
þeirra réttinda sem hin 40 ára löggjöf
lofar okkur.
Greinin er fyrsta greinin af þremur
um jafnréttismál.
Jafnréttismál á krossgötum
– Er launamunur kynjanna
náttúrulögmál?
Alda Hrönn Jóhannsdóttir
formaður Stéttarfélags lögfræðinga
Bragi Skúlason
formaður Fræðagarðs
Hugrún R. Hjaltadóttir
formaður Félags íslenskra félags
vísindamanna
Ragnheiður Bóasdóttir
formaður Félags háskólamenntaðra
starfsmanna Stjórnarráðsins
Sigrún Guðnadóttir
formaður Stéttarfélags bókasafns
og upplýsingafræðinga
Sendiherrar Samnings Samein-uðu þjóðanna, SÞ, um réttindi fatlaðs fólks urðu til árið 2011.
Við erum sex sem erum sendiherrar
og við höfum öll reynslu af mann-
réttindabaráttu. Hlutverk okkar er
að fræða fólk um samninginn. Það er
mjög mikilvægt að fatlað fólk sé sér-
fræðingar í samningnum, því hann
byggir á því sem er mikilvægt fyrir
okkur. Öll höfum við orðið fyrir ein-
hverju misrétti og þess vegna stendur
samningurinn okkur svo nærri.
Samningurinn fjallar því um það
sem skiptir okkur raunverulega máli.
Samningurinn er mannréttinda-
sáttmáli. Mannréttindi eru sameigin-
legur réttur allra manneskja á jörð-
inni. Samningurinn er mikilvægur til
þess að fatlað fólk fái sömu réttindi
og aðrir og að ekki sé brotið á því.
Við erum ekki að biðja um að við
fáum meiri mannréttindi en annað
fólk heldur þau sömu og að borin sé
virðing fyrir okkar rétti.
Sendiherrarnir eru mikilvægir til
þess að kynna samninginn fyrir öðru
fólki um allt land. Við höfum farið
og kynnt í framhaldsskólunum, við
höfum heimsótt vinnustaði þar sem
fatlað fólk vinnur, við höfum farið
í háskóla, grunnskóla, á alls konar
vinnustaði og við höfum haldið
kynningar á ráðstefnum og svo
höfum við kynnt verkefnið erlendis.
Þessar kynningar eru orðnar svo
margar að við höfum ekki tölu á
þeim.
Enn ekki lögfestur hér
Samningurinn var undirritaðar af
Íslands hálfu í mars 2007. Síðan eru
liðin níu ár, það hefur mikið verið
fjallað um samninginn, það er búið
að skora á stjórnvöld en samt sem
áður er ekki búið að lögfesta hann á
Íslandi. Ísland er meðal þriggja Evr-
ópulanda sem ekki hafa sett Samn-
inginn um réttindi fatlaðs fólks í lög
og fyrir það skömmumst við okkar.
Við notum því tækifærið enn og
aftur, berjum í borðið og hvetjum
þingið til að festa samninginn í lög
áður en kosið verður á ný.
Það er margt sem þarf að bæta í
samfélagi okkar og margt brennur
á okkur. Við eigum öll okkar áhuga-
svið og erum talsmenn ólíkra greina
innan samningsins. Við munum
því á næstunni birta greinar sem
hvert og eitt okkar hefur skrifað sem
tengjast atvinnumálum, búsetu, fjöl-
skyldulífi, sjálfstæðu lífi, réttinum til
að halda frjósemi sinni, stjórnmála-
þátttöku, aðgengi og fleira.
Við hlökkum til að kynna samn-
inginn fyrir ykkur og það sem skiptir
okkur máli.
Sendiherrar Samnings SÞ
um réttindi fatlaðs fólks!
Gísli Björnsson
Ína Owen Valsdóttir
María Hreiðarsdóttir
Skúli Steinar Pétursson
Þorvarður Karl Þorvarðarson
Þórey Jóhannesdóttir
2016 Volvo XC90 T8 Plug-in Hybrid
2015 VW eGolf Premium Leather Loaded
2014 Nissan Leaf Quick Charge
2014 Chevrolet Volt Plug-in Hybrid
2016 Mitsubishi Outlander 4x4 Plug-in Hybrid
2013 Volvo XC90 4x4
2014 Tesla S85 Performance
2014 Toyota Yaris
Verð 8.495.000 kr
Verð 2.695.000 kr
Verð 1.595.000 kr
Verð 1.995.000 kr
Verð 4.800.000 kr
Verð 4.950.000 kr
Verð 6.500.000 kr
Verð 1.495.000 kr
Ármúli 4 - 1. hæð · 108 Reykjavík · Sími 511 2777 · www.betribilakaup.is
Gerðu betri kaup hjá okkur! Hringdu núna í síma 511 2777
- Afhendingartími er 4 til 8 vikur frá pöntun -
s k o ð u n ∙ F R É T T A B L A ð i ð 15M i ð V i k u D A G u R 1 4 . s e p T e M B e R 2 0 1 6
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
8
F
-C
0
9
C
1
A
8
F
-B
F
6
0
1
A
8
F
-B
E
2
4
1
A
8
F
-B
C
E
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K