Fréttablaðið - 14.09.2016, Qupperneq 18
markaðurinn
Útgáfufélag 365 miðlar ehf., Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík, sími 512 5000
Netfang rit stjorn@markadurinn.is | Sími 512 5000 | Fax 512 5301
Umsjón Hafliði Helgason hafliði@365.is
Ábyrgðarmaður Kristín Þorsteinsdóttir
Netfang auglýsingadeildar auglys ing ar@markadurinn.is Veffang visir.is
Fimmtudagur 15. september
Hagstofa Íslands
l Fiskafli í ágúst 2016
Föstudagur 16. september
Hagstofa Íslands
l Samræmd vísitala neysluverðs í
ágúst 2016
Þriðjudagur 20. september
Hagstofa Íslands
l Vísitala byggingarkostnaðar fyrir
október 2016
ÞjóðsKrá Íslands
l Vísitala íbúðaverðs á höfuðborgar-
svæðinu
miðvikudagur 21. september
Hagstofa Íslands
l Vinnumarkaður í ágúst 2016
ÞjóðsKrá Íslands
l Vísitala leiguverðs á höfuðborgar-
svæðinu
Fimmtudagur 22. september
Hagstofa Íslands
l Mánaðarleg launavísitala í ágúst
2016
Hagstofa Íslands
l Greiðslujöfnunarvísitala í október
2016
Hagstofa Íslands
l Vísitala kaupmáttar launa í ágúst
2016
Hagstofa Íslands
l Vísitala lífeyrisskuldbindinga í ágúst
2016
mánudagur 26. september
Hagstofa Íslands
l Kjötframleiðsla í ágúst 2016
Þriðjudagur 27. september
ÞjóðsKrá Íslands
l Viðskipti með atvinnuhúsnæði
miðvikudagur 28. september
ÞjóðsKrá Íslands
l Fjöldi útgefinna vegabréfa
Hagstofa Íslands
l Viðskipti með atvinnuhúsnæði
Fimmtudagur 29. september
Hafstofa Íslands
l Gistinætur og gestakomur á
hótelum í ágúst 2016
Hafstofa Íslands
l Vísitala neysluverðs í september
2016
Hafstofa Íslands
l Meðalkostnaður á grunnskólanema
í september 2016
Föstudagur 30. september
Hafstofa Íslands
l Verðmæti sjávarafla, janúar–júní
2016
Hafstofa Íslands
l Vöruviðskipti við útlönd, janúar–
ágúst 2016 l
seðlabanKi Íslands
l Hagvísar koma út
Á döfinni
Vikan sem leið
Á mánudaginn hóf hin sögulega
verslun Harrods í London að selja
íslensku húðvörurnar BIOEFFECT.
„Þetta er mjög ánægjulegur áfanga
sigur. Að því að ég best veit er þetta í
fyrsta skipti sem íslenskar vörur eru
seldar í Harrods,“ segir Kristinn D.
Grétarsson, forstjóri ORF líftækni
móðurfélags BIOEFFECT.
Harrods er stærsta deildaverslun
Evrópu með 330 deildir og nær
verslunin yfir samtals 90 þúsund
fermetra. Verslunin var stofnuð
árið 1834 og hefur verið í sama húsi
frá árinu 1849. „Síðustu sex ár frá
því að BIOEFFECT kom á markað
þá hefur okkur tekist að komast
inn í hverja stórverslun, eða deilda
verslun, á fætur annarri. Þetta hafa
verið flottustu verslanir hvers lands
fyrir sig, en að öllum öðrum versl
unum ólöstuðum þá er Harrods ein
sú flottasta,“ segir Kristinn.
Sölustaðir varanna eru nú yfir
þúsund á heimsvísu í þrjátíu lönd
um. Kristinn segir gríðarlega upp
sveiflu í gangi. „Salan okkar á fyrstu
sex mánuðum þessa árs er 35 pró
sentum meiri en hún var á sama
tímabili í fyrra."
Kristinn telur að rekja megi vel
gengnina til þess að vörurnar hafi
raunverulega virkni sem hægt sé
að fylgjast með og að viðskipta
vinurinn upplifi því árangur. „ORF
líftækni eyddi tíu árum í það að
þróa aðferð sem felst í því að fram
leiða frumuvaka úr byggi, sem hafa
einstaka virkni þegar kemur að því
að hjálpa frumunum að endurnýja
sig. Það að viðskiptavinurinn upplifi
árangur er ekki algengt í snyrtivöru
heiminum.“
Kristinn segir það ánægjulegt að
í Harrods hafi öll vörulínan verið
tekin inn og henni verið gert mjög
hátt undir höfði. „Þegar við erum
í þessu erum við að berjast fyrir
hilluplássi, en nú erum við komin í
þá stöðu að Harrods úthlutar okkur
heilum hilluvegg.“
BIOEFFECT fór nýlega í sölu í
Japan, Ítalíu og Sameinuðu fursta
dæmunum. Að sögn Kristins er
Japan einn erfiðasti markaður
heims fyrir snyrtivörur en engu
að síður hefur vörunni verið tekið
gífurlega vel þar og gengur salan
vel. Næst á dagskrá er Bandaríkja
markaður þar sem sala mun hefjast
í október.
Í dag eru starfsmenn ORF líf
tækni og dótturfélaga um fjörutíu
og fimm. saeunn@frettabladid.is
Íslenskar húðvörur
komnar í sölu í Harrods
Stærsta deildaverslun Evrópu hóf á dögunum sölu á íslensku húðvörunum
BIOEFFECT. Sölustaðir varanna eru nú yfir þúsund í þrjátíu löndum. Sala hefur
aukist um þrjátíu og fimm prósent milli ára. Næst er stefnt á Bandaríkjamarkað.
Þetta er mjög
ánægjulegur áfanga-
sigur. að því er ég best veit er
þetta í fyrsta skipti sem
íslenskar vörur eru seldar í
Harrods.
Kristinn D. Grétarsson,
forstjóri ORF líftækni
móðurfélags
BIOEFFECT.
Heildarvelta smásöluverslunar án
virðisaukaskatts var á árinu 2015
tæpir 400 milljarðar króna saman-
borið við 376 milljarða árið áður.
Vöxtur í veltu frá fyrra ári var 5,8
prósent og hefur ekki verið meiri
milli ára frá hruni. Þetta kemur fram
í Árbók verslunarinnar 2016. Velta
var mest í dagvöru og stórmörk-
uðum og nam þar 208 milljörðum
króna.
400
milljarðar
Á síðasta ári jókst velta bílaum-
boðsins BL um 3,3 milljarða og nam
17 milljörðum króna. Á sama tíma
fór rekstrarhagnaður úr tæpum 400
milljónum króna í ellefu hundruð
milljónir. BL er stærsta bílaum-
boð landsins, velta jókst einnig
hjá öðrum stærstu bílaumboðum
landsins. Sala Heklu nam 13,9 millj-
örðum í fyrra og salan hjá Brimborg
nam 13,1 milljarði.
17
milljarða velta
Hafin var sala á BIOEFFECT húðvörunum í Harrods á mánudag. Mynd/BIOEFFECT
GEFÐU ÞÉR TÍMON
Færir þér nauðsynlega sýn
á mannauðinn
i l
i
Tímon.is
Í síðasta mánuði voru farþegar Ice
landair 484 þúsund en 227 þúsund
flugu með WOW air, munur á heild
arfjölda farþega milli flugfélaganna
tveggja hefur aldrei verið minni.
Túristi greindi fyrst frá þessu.
Árið 2012, þegar WOW air hóf flug,
flugu 412 þúsund farþegar með félag
inu frá júní til desember, en nærri 2,3
milljónir ferðuðust með Icelandair
það ár. Farþegamunurinn var þá
nærri því sexfaldur, samanborið
við tvöfaldan farþegamun í síðasta
mánuði.
Sé litið til tilkynninga Icelandair
Group til kauphallarinnar og frétta
tilkynninga WOW air má sjá að
farþegamunur félaganna hefur
minnkað á síðustu árum, en far
þegatölurnar fóru hins vegar ekki að
nálgast af alvöru fyrr en WOW air hóf
Ameríkuflug sitt árið 2015. – sg
Farþegamunur Wow air
og Icelandair aldrei minni
Á fyrsta starfsári WOW air flugu 412 þúsund með félaginu. FréTTaBlaðIð/VIlHElM
227
þúsund farþegar flugu með
Wow air í millilandaflugi í
síðasta mánuði
484
þúsund farþegar flugu með
icelandair í millilandaflugi í
síðasta mánuði
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m i ð V i K u d a g u r2 markaðurinn
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
F
-D
9
4
C
1
A
8
F
-D
8
1
0
1
A
8
F
-D
6
D
4
1
A
8
F
-D
5
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K