Fréttablaðið - 14.09.2016, Side 20

Fréttablaðið - 14.09.2016, Side 20
Misjafnt er hve miklu frambjóðend­ urnir í forsetakosningunum í sumar vörðu í framboð sín. Af þeim sem hafa skilað rekstrarreikningi varði Guðni mestu í framboð sitt eða 25 milljónum króna. Guðni var einnig með mestar tekjur eða sem nam 26,3 milljónum króna. Framlög lögaðila námu 10,9 milljónum og framlög einstaklinga 13 milljónum króna. Eigin framlög Guðna námu 1,1 milljón króna. Framlög og kostnaður við fram­ boð Sturlu Jónssonar, Ástþórs Magnússonar og Hildar Þórðar­ dóttur  var innan við 400  þúsund krónur og því verður ekki skilað uppgjöri vegna framboðsins. Sturla segir í samtali við  fréttastofu að hann áætli að framboð sitt hafi kost­ að innan við 300 þúsund krónur.  Guðrún Margrét Björnsdóttir varði 536 þúsund krónum í eigið framboð, eigin framlög námu 386 þúsund krónum en framlög lög­ aðila námu 150 þúsund krónum. Öll framlög lögaðila komu frá Gunnari Eggertssyni hf. Elísabet Jökulsdóttir segir í sam­ tali við fréttastofu að framboð sitt hafi kostað milli 400 til 500 þúsund krónur. Áætla má því að framboð þessara fimm aðila hafi ekki kostað yfir 2,2 milljónir  króna. Ef svo er hefur framboð Guðna Th. Jóhannes­ sonar kostað ellefu sinnum meira en framboð þeirra. Verið að leggja lokahönd á upp­ gjör vegna framboðs Höllu Tómas­ dóttur og verður því skilað til Ríkis­ endurskoðunar í næstu viku. Ekki náðist í talsmenn Andra Snæs Magnasonar eða Davíðs Oddssonar við gerð þessarar fréttar. Davíð Oddsson áætlaði hins vegar í kosningasjónvarpi RÚV að fram­ boð sitt kostaði sex til sjö milljónir króna, þótt sú tala gæti hækkað. Frestur til að skila inn gögnum vegna framboðanna  rennur út um aðra helgi, þann 25. september, en þá verða þrír mánuðir liðnir frá kjör­ degi. Lögaðilar og einstaklingar mega að hámarki styrkja framboð um 400 þúsund krónur. Heildarkostnaður við framboðin mátti ekki fara yfir 38 milljónir króna. saeunn@frettabladid.is Guðni eyddi meiru en fimm frambjóðendur Kostnaður við framboð Guðna Th. Jóhannessonar forseta nam tuttugu og fimm milljónum króna. Þrír frambjóðendur vörðu undir fjögur hundruð þúsundum. Guðni Th. Jóhannesson tók við embætti forseta Íslands 1. ágúst síðastliðinn. FréTTablaðið/Eyþór Níu frambjóðendur tóku þátt í forsetakosningunum árið 2016. FréTTablaðið/Eyþór Viðskipti  Nintendo mun í þessari viku setja í sölu fylgihlutinn Poké­ mon GO Plus í samstarfi við Poké­ mon­fyrirtækið. Fylgihlutur­ inn lítur út eins og úr og hægt er að hafa hann á úlnliðnum. Fylgihlutur­ inn tengist snjallsíma með Bluetooth tækni og hægt er að nota hann við Pokémon­leit. Tækið titrar og kvikn­ ar ljós á því þegar spil­ ari  gengur fram hjá Pokémon­staðsetningu og leyfir notendum  að fanga Pokémona með því að ýta á takka á því. Margir hafa í sumar orðið varir við fjölda fólks sem gengur með nefið ofan í símanum í leit að Poké­ mon og hefur jafnvel farið sér að voða í umferðinni. Með tækinu sem fer í sölu þann 16. sept­ ember næstkomandi þurfa Pokémon GO spilarar ekki lengur að stara á símaskjá við Pokémon­veiðar. Óljóst er hvert verðið á tækinu verður úti um allan heim, en í Bretlandi verður hægt að kaupa það á rúmar fimm þúsund krónur. Tilkynnt var í síðustu viku að í næstu uppfærslu af Apple Watch snjallúrinu verði hægt að spila Pokémon Go í gegnum smá­ forritið. – sg Pokémon GO úr í bígerð 26,3 milljónum króna námu framlög til forsetaframboðs Guðna kína Efnahagslífið í Kína hefur verið að taka við sér að undanförnu. Talið er að auknum ríkisútgjöldum til framkvæmda sé þar helst að þakka ásamt mikilli sölu á húsnæði. Iðnframleiðslan jókst um 6,3 pró­ sent í ágúst frá sama mánuði árinu áður og hefur ekki verið meiri í tvö ár. Þetta  kom sérfræðingum á óvart enda hafði verið reiknað með nokkru minni aukningu. Smásala jókst síðan um 10,6 pró­ sent í ágúst og munaði þar mest um sölu bifreiða, sem hefur ekki mælst jafn mikil í meira en þrjú ár. Sala íbúðarhúsnæðis jókst um 40,1 pró­ sent. „Nýjustu efnahagstölur benda til þess að hagvöxtur sé að styrkjast en um leið vekja þær ugg um að fjárfest­ ingabólan haldi áfram,“ er haft eftir Eswar Prasad í Wall Street Journal, en Prasad er prófessor við Cornell­ háskóla og fyrrverandi fulltrúi Alþjóðagjaldeyrissjóðsins í Kína. Efnahagslífið í Kína  hefur verið í nokkurri lægð undanfarin miss­ eri eftir að hafa lengi notið mikils hagvaxtar. Efasemdir eru um að þessi velgengni nú  muni endast lengi. „Við teljum að hagvaxtarskriður­ inn muni minnka árið 2017 þegar eignamarkaðurinn verður á niður­ leið og bílageirinn stendur líklega frammi fyrir offramleiðslu,“ er haft eftir hagfræðingnum Tom Rafferty á fréttavef tímaritsins Fortune. – gb Efnahagur Kína styrkist en varla til frambúðar bifreiðaframleiðsla er í miklum uppgangi í Kína og hefur bílasala þar ekki mælst meiri í þrjú og hálft ár. FréTTablaðið/EPa 6,3% aukning varð í iðnfram- leiðslu í ágúst frá sama mánuði árið áður. Nýjasti snjallsími Apple, iPhone 7, mun fara í sölu frá og með 23. sept­ ember á Íslandi. Símarnir munu koma á alþjóðlegan markað þann 16. september, en samkvæmt upp­ lýsingum frá Macland eiga forsvars­ menn fyrirtækisins von á því að sím­ inn fari í sölu þar þann 23. september og hefjast forpantanir aðeins fyrr. Óvíst er hvert verðið á símanum verður hér á landi en hann mun kosta frá 649 dollurum, jafnvirði 74 þúsund íslenskra króna, í Banda­ ríkjunum. Síminn var kynntur eins og hefð hefur verið hjá Apple á kynningu sem fór fram þann 7. september síðastliðinn. Tvö eintök eru af sím­ anum, iPhone 7 og iPhone 7 Plus sem eins og nafnið gefur til kynna er stærri útgáfan. Stærsta breytingin er að innstungan fyrir heyrnartól hefur verið fjarlægð og þess í stað verða þau tengd með Bluetooth eða svokölluðu Lightning­tengi, sem fer þar sem hleðslusnúran fer einnig. Með þessu eru símarnir vatnsþolnir og þola ryk betur. Myndavélar símanna hafa verið uppfærðar og myndavélin í 7 Plus er með tveimur linsum. Minni símanna hefur einn­ ig verið aukið og verða ódýrustu símarnir með 32 GB minni, í stað 16 GB. – sg iPhone 7 í verslanir í lok september Innstungan fyrir heyrnar tól hefur verið fjarlægð á iPhone 7 og iPhone 7 Plus Nýr iPhone var kynntur þann 7. september og fer í alþjóðlega sölu 16. september. FréTTablaðið/GETTy 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m i ð V i k U D a G U r4 markaðurInn 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 8 F -D 4 5 C 1 A 8 F -D 3 2 0 1 A 8 F -D 1 E 4 1 A 8 F -D 0 A 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.