Fréttablaðið - 14.09.2016, Page 24
Sálin gaf út plöturnar Garg og Þessi þungu högg árið 1992. Hér er Stefán Hilmarsson á tónleikum með sveitinni sama ár.
Stefán Hilmarsson fagnar 50 ára
afmæli sínu í ár og blæs af því
tilefni til tvennra stórtónleika
í Hörpu næsta föstudag. Hann
hefur komið víða við á um þrjá-
tíu ára ferli sínum og mun efnis-
skrá kvöldsins því endurspegla
langt tímabil. „Þetta verða þekkt
lög sem tónleikagestir gera ráð
fyrir að heyra í bland við lög sem
eru í uppáhaldi hjá mér, en hafa
af ýmsum ástæðum ekki oft verið
flutt á tónleikum, sum aldrei.“
Með Stefáni verður hljómsveit
undir stjórn Þóris Úlfarssonar og
valinkunnir gestasöngvarar munu
koma fram, þau Björgvin Hall-
dórsson, Eyjólfur Kristjánsson,
Jóhanna Guðrún og Páll Rósinkr-
anz auk þess sem nokkrir leyni-
gestir koma við sögu.
Skemmtilegur tími
Stefán verður alltaf þekktast-
ur sem meðlimur Sálarinnar en
hann hefur þó komið víða við. „Ég
hóf ferilinn með Sniglabandinu
eftir stúdentspróf 1986. Með þeim
drengjum söng ég af og til í liðlega
tvö ár. Það var skemmtilegur tími
og lærdómsríkur. Á miðju tímabil-
inu söng ég lagið „18 rauðar rósir,
sem segja má að hafi komið mér á
kortið. Svo var Sálin stofnuð 1988.“
Sálin hefur starfaði með hléum
allar götur síðan. Stefán segir
óhætt að fullyrða að fáar hérlend-
ar sveitir eigi samfelldari, fjöl-
breyttari og pródúktívari feril.
„Við höfum tekist á við ýmis verk-
efni og gert margar plötur sem
þeim tengjast, t.d. eru eftirminni-
legir órafmögnuðu tónleikarn-
ir 1999. Þá settum við upp söng-
leik, héldum tónleika með Sinfó,
einnig með Gospelkórnum og enn
eina með Stórsveit Reykjavík-
ur. Við héldum útgáfutónleika í
Köben í miðju góðærinu, aðra þar
með Stuðmönnum og sögufræga
tónleika í Höllinni 2008 þar sem
7.500 sálir voru saman komnar.
Svona mætti lengi telja.“
ekki alltaf Sléttur Sjór
Fyrsta sólóplata kom út árið 1993
en þær eru alls sex talsins. Að-
spurður um hvað standi upp úr,
nefnir hann sólóplötuna Húm,
sem kom út 2009. „Mér þykir einna
vænst um þá plötu af öllu því efni
sem ég hef hljóðritað og ekki laust
við að mér finnist sú plata töluvert
vanmetin.“
Meðal annarra verkefna má
nefna hljómsveitina Pláhnetuna,
stutt skrans með Milljónarmær-
ingunum og þátttöku í Eurovision-
keppninni. „Samhliða afmælistón-
leikunum kemur út tvöföld plata
með úrvali laga sem ég hef hljóð-
ritað í gegnum tíðina. Svona mjak-
ast þetta smátt og smátt áfram.
Auðvitað hefur sjórinn ekki alltaf
verið sléttur, en öll þessi tímabil
hafa verið gefandi og eru í minn-
ingunni mestmegnis ánægjuleg.“
alltaf að læra
Eftir þrjá áratugi í bransanum
hefur Stefán auðvitað kynnst
mörgu fólki og skemmtilegum
karakterum. „Og alltaf er maður
að læra. Tíðarandinn og tæknin
breytast einnig sífellt, þannig að
maður lærir nýja lexíu í hverjum
mánuði, svo gott sem. Ég hef átt
marga samstarfsmenn í gegnum
árin og ómögulegt að telja upp allt
það góða fólk. Að sjálfsögðu nefni
ég þá Guðmund Jónsson og Frið-
rik Sturluson, en sá síðarnefndi
hefur starfað með mér í velflest-
um verkefnum undanfarin 25 ár.
Einnig vil ég geta Þóris Úlfarsson-
ar, sem hefur starfað mikið með
mér undan farinn áratug. Hann er
einhver hæfileikaríkasti tónlistar-
maður sem ég hef kynnst.“
Aðspurður um galdurinn á bak
við svo langa velgengni segir Stef-
án hana í raun röð óskipulagðra
galdra sem enginn kunni skil á.
„Þetta er alltaf blanda af hæfi-
leikum, sjálfstrausti, tilviljunum
og heppni. Það er eðlilega erfitt
að halda lengi út í þessum bransa
á jafn fámennum markaði. Þetta
er og verður basl. Það er ágætt
að menn átti sig strax á því áður
en þeir halda út á akurinn með
miklar væntingar. En dugnaður og
drift geta fleytt manni ansi langt
í þessu eins og öðru. Það er sama
hve efnilegir eða góðir menn eru
sagðir eða telja sig vera, það kemst
enginn langt með því að sitja bara
við símann og bíða eftir því að
hann hringi.“
langur undirbúningur
Tónleikarnir næsta föstudag hafa
tekið nær allan tíma hans undan-
farin misseri. „Þeir hafa verið
lengi í undirbúningi en nú hill-
ir loks undir þetta og ég er í senn
mjög stressaður og fullur tilhlökk-
unar. Þetta er líklega stærsta tón-
leikaverkefni sem ég hef stað-
ið einn í, þótt auðvitað standi
maður aldrei einn í neinu, held-
ur nýtur einatt aðstoðar dyggra
manna og meyja. Því næst standa
fyrir dyrum árlegir jólatónleikar
mínir, sem verða þann 9. desem-
ber. Þarna inn á milli er ýmislegt
á döfinni, stórir og smáir tónleikar
sem of langt mál væri að telja upp.
Það er alltaf eitthvað fyrir stafni.“
góðar minningar
Þekktir smellir í bland við eigin uppáhaldslög verða á efnisskrá Stefáns
Hilmarssonar sem fagnar 50 ára afmæli sínu í Hörpu á föstudaginn.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Hér er Stefán Hilmarsson með Sálinni
síðla árs 1988, þegar hljómsveitarmeð-
limir skrýddust enn soul-jökkum.
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m I Ð V I K U D A G U r2 F ó l K ∙ K y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X X
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517 6460 • www.belladonna.is
Verslunin Belladonna
Flott föt,
fyrir flottar konur
Stærðir 38-58
Laugavegi 178 | Sími 555 1516
Kíkið á myndir og verð á Facebook
Opið virka daga kl
. 11–18
Opið laugardaga k
l. 11-15
„Tvær í einni”
- stærð S - XL (36/38 - 44) - svört öðru megin
- dýramynstur hinum megin - vasar báðum megin
Úlpa á 14.900 kr.
ENSKI BOLTINN ER Á STÖÐ 2 SPORT
Enski boltinn er hafinn á Stöð 2 Sport og deildin hefur aldrei verið meira spennandi. Stöð 2 Sport verður með
beinar útsendingar allar helgar og sérfræðingar Messunnar fara yfir leikina á mánudögum.
∙ K y n n I n G A r b l A Ð V I Ð b U r Ð I r
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
F
-A
C
D
C
1
A
8
F
-A
B
A
0
1
A
8
F
-A
A
6
4
1
A
8
F
-A
9
2
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K