Fréttablaðið - 14.09.2016, Side 38
Afgreiðslutími sjá
www.dorma.is
Holtagörðum, 512 6800
Smáratorgi, 512 6800
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafjörður
Þú finnur nýja
bæklinginn okkar
á www.dorma.is
Smáratorg | Holtagarðar | Akureyri | Ísafjörður www.dorma.is
NATURE’S
LUXURY
heilsurúm
Aðeins 142.490 kr.
Nature’s Luxury heilsudýna
með Classic botni.
Stærð: 180x200 cm.
Fullt verð: 189.900 kr.
Fyrir þínar bestu
stundir
25%
AFSLÁTTUR
Val um svart eða hvítt PU leður
eða grátt áklæði á botni.
HELSINKI
rúmgafl
Rúmgafl fæst í svörtu og hvítu PU leðri og í gráu áklæði. Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.Verð að neðan miðað við rúmbreidd 120 cm.
Fullt verð: 39.900 kr.
20%
AFSLÁTTUR
Aðeins 31.920 kr.
Spring Air REGENCY
heilsurúm með classic botni
Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni.
Aukahlutir á mynd:
Náttborð og smávara og
Capello lappir
Stærð Fullt verð Tilboðsverð
160x200 cm 252.900 kr. 202.320 kr.
180x200 cm 279.900 kr. 223.920 kr.
180x210 cm 309.900 kr. 247.920 kr.
192 x 203 cm 309.900 kr. 247.920 kr.
1
17
21
18
2
4
5
7
6
15
9
12
11
8
14
20
19
10
13
3
16
1. Áklæði
2. 250 g/m2 silki
3. 300 g/m2 sílikon-trefjar
4. 17 mm laserskorið HYP foam
5. 17 mm laserskorið HYP foam
6. 30 g/m2 fylling
7. 50 mm þrýstijöfnunarefni
8. 500 g/m2 fílt
9. Steyptar kantstyrkingar
10. 5 svæða pokagormakerfi
11. 1.000 g/m2 fílt
12. Steyptar kantsyrkingar
13. BEVEL gormar. Hæð 10 cm
14. 500 g/m2 fílt
15. 30 g/m2 fylling
16. 12 mm WF foam
17. Áklæði
18. Áklæði (litað flauel)
19. 30 g/m2 fylling
20. 17 mm HYP foam
21. Áklæði (grátt)
20%
AFSLÁTTUR
af Regency á meðan
birgðir endast.
Komdu og leggstu í draumarúmið!
Regency er sérlega vandað heilsu rúm frá Spring Air.
Gerðu kröfur um gæði – Spring Air stenst þær.
Uppbygging Spring Air REGENCY heilsudýnunnar
Leikararnir í hlutverkum sínum í verkinu Sending, eftir Bjarna Jónsson, á Nýja sviði Borgarleikhússins.
Leikhús
sending
HHHHH
Borgarleikhúsið, Nýja sviðið
Höfundur: Bjarni Jónsson
Leikstjórn: Marta Nordal
Leikarar: Þorsteinn Bachmann,
Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar
Guðjónsson, Elma Stefanía Ágústs-
dóttir, Árni Arnarson.
Leikmynd: Gretar Reynisson
Búningar: Stefanía Adolfsdóttir
Tónlist og hljóð: Guðmundur Vignir
Karlsson
Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmunds-
son
Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir
Frumsýningar á nýjum íslenskum
leikverkum eru alltaf tilhlökkunar-
og gleðiefni. Á laugardagskvöldið
var frumsýnt verkið Sending, eftir
Bjarna Jónsson, á Nýja sviði Borgar-
leikhússins, í leikstjórn Mörtu Nor-
dal. Eftir Bjarna liggur talsverður
fjöldi leikverka bæði fyrir svið og
útvarp, auk leikgerða og þýðinga á
sviðsverkum og skáldsögum.
Sending segir frá því þegar Frank,
átta ára gamall drengur, kemur
skyndilega inn í líf barnlausu
hjónanna Helgu og Róberts vestur á
fjörðum árið 1982. Draumur Helgu
hefur lengi verið að fá barn inn í
líf sitt en Róbert er á öðru máli og
hverfist leikurinn að talsverðu leyti
um átökin þeirra á milli í bland við
atburði sem tilheyra fortíð Róberts.
Inn í leikinn blandast einnig Anton,
æskuvinur Róberts, og María, fulltrúi
barnaverndaryfirvalda. Ekki er vert
að segja of mikið um framvinduna
heldur eftirláta áhorfendum að gera
sínar uppgötvanir.
Það er margt gott í þessu verki
Bjarna og þá einkum í fyrri hluta
verksins enda hverfist það í heild-
ina um góða hugmynd. Hugmynd
sem byggir á hugarheimi Róberts og
haganlega smíðuðum endurlitum
og ferðalögum um afkima sálarlífs
aðalpersónunnar. Í textanum er að
finna bæði kímni og átök, haganlega
smíðuð, en kannski helst til slétt og
felld til þess að ná að vopna leikar-
ana í þeim aðstæðum sem persón-
urnar standa frammi fyrir. Að auki
vantar talsvert upp á að þessari góðu
grunnhugmynd sé treyst að fullu.
Þessi vandi nær ákveðnu hámarki
þegar drengurinn orðar eiginlegt
samband sitt við Róbert en við það
myndast illa ígrundað spennufall
á sýningunni. Í raun hefði þurft að
taka mun afdráttarlausari afstöðu
gagnvart þessum þrjátíu ára mun á
raun- og hugarheimi, fremur en að
gæla við einkenni hvers tíma fyrir sig
og útskýra svo muninn fyrir áhorf-
endum með einni setningu.
Það er sterkur leikhópur sem
stígur á svið í Sendingu. Þorsteinn
Bachmann gerir vel í erfiðu hlut-
verki Róberts og hið sama má segja
um Kristínu Þóru Haraldsdóttur í
hlutverki Helgu en leikstjórnarlega
hefði gjarnan mátt auka á spennuna
þeirra á milli. Láta þau ganga aðeins
lengra í tilfinningasveiflum og átök-
um, en slíkt hefði mögulega getað
aukið á þá örvinglan sem er að finna
í báðum þessum persónum. Hilmar
Guðjónsson er skemmtilegur í hlut-
verki Antons, æskuvinarins utan-
veltu sem verður aldrei frjáls undan
valdi Róberts fremur en öfugt. Upp-
gjörið á milli þeirra vinanna er líkast
til áhrifamesta atriði sýningarinnar.
Elma Stefanía Ágústsdóttir fer ágæt-
lega með hlutverk Maríu, en eins
og í fleiru í fari þessarar uppfærslu
hefði meiri kraftur verið til bóta. Það
sást vel í lokasenunni þegar Elma
Stefanía lék af meiri krafti. Þá er
vert að geta þess að hinn ungi Árni
Arnarson stendur sig ljómandi vel í
krefjandi hlutverki Franks.
Leikmynd Gretars Reynissonar er
fantagóð og nær skemmtilega utan
um þá grunnhugmynd sem verkið
vinnur með og eins vinnur lýsing
Björns Bergsteins með möguleika
leikmyndarinnar. Hljóðmynd verks-
ins er mikilvæg og vinnur að sama
skapi vel út frá grunnhugmyndinni.
Hið sama verður því miður ekki sagt
með búningana og leikgervin því
hvort tveggja virðist líða fyrir óskýra
leikstjórnarlega afstöðu á milli
ákveðins tímabils eða tímaleysis.
Þrátt fyrir ákveðna ágalla er Send-
ing um margt forvitnileg sýning á
athyglisverðu verki. En betur má ef
duga skal. Leikstjórn Mörtu Nordal
er um margt áferðarfalleg og snyrti-
leg en hefði kannski fremur mátt
vera meira afgerandi. Taka verkið
lengra inn í hinn óræða hugarheim
aðalpersónunnar og láta eftir sér
meira brjálæði og sterkari tilfinn-
ingar. Kynda bál á milli persónanna
og hella olíu á þann eld tilfinninga
sem þar er að finna. Að sama skapi
má segja að sem leikritaskáld þurfi
Bjarni aðeins betur að treysta þeim
efnivið sem hann er með í hönd-
unum. Treysta á mátt góðrar hug-
myndar og beita svo aðeins sterkara
og tilfinningaríkara tungutaki. Þegar
þar að kemur mega leikhúsgestir
eflaust eiga von á góðu.
Magnús Guðmundsson
Niðurstaða: Helst til afstöðulaus
sýning á athyglisverðu verki sem er þó
vel þess virði að sjá.
Að treysta hugmynd
Árni Arnarson, Þorsteinn Bachmann og Kristín Þóra Ágústsdóttir.
ALLTAF VIÐ HÖNDINA
Þú getur lesið
Fréttablaðið í heild
sinni á Vísi og í
Fréttablaðs-appinu
... allt sem þú þarft
Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum
1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m i ð V i k u D a G u r22 m e N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ð
menning
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
8
F
-A
7
E
C
1
A
8
F
-A
6
B
0
1
A
8
F
-A
5
7
4
1
A
8
F
-A
4
3
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K