Fréttablaðið - 14.09.2016, Page 38

Fréttablaðið - 14.09.2016, Page 38
Afgreiðslutími sjá www.dorma.is Holtagörðum, 512 6800 Smáratorgi, 512 6800 Dalsbraut 1, Akureyri Skeiði 1, Ísafjörður Þú finnur nýja bæklinginn okkar á www.dorma.is Smáratorg | Holtagarðar | Akureyri | Ísafjörður www.dorma.is NATURE’S LUXURY heilsurúm Aðeins 142.490 kr. Nature’s Luxury heilsudýna með Classic botni. Stærð: 180x200 cm. Fullt verð: 189.900 kr. Fyrir þínar bestu stundir 25% AFSLÁTTUR Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. HELSINKI rúmgafl Rúmgafl fæst í svörtu og hvítu PU leðri og í gráu áklæði. Stærðir: 120, 140, 160, 180 cm.Verð að neðan miðað við rúmbreidd 120 cm. Fullt verð: 39.900 kr. 20% AFSLÁTTUR Aðeins 31.920 kr. Spring Air REGENCY heilsurúm með classic botni Val um svart eða hvítt PU leður eða grátt áklæði á botni. Aukahlutir á mynd: Náttborð og smávara og Capello lappir Stærð Fullt verð Tilboðsverð 160x200 cm 252.900 kr. 202.320 kr. 180x200 cm 279.900 kr. 223.920 kr. 180x210 cm 309.900 kr. 247.920 kr. 192 x 203 cm 309.900 kr. 247.920 kr. 1 17 21 18 2 4 5 7 6 15 9 12 11 8 14 20 19 10 13 3 16 1. Áklæði 2. 250 g/m2 silki 3. 300 g/m2 sílikon-trefjar 4. 17 mm laserskorið HYP foam 5. 17 mm laserskorið HYP foam 6. 30 g/m2 fylling 7. 50 mm þrýstijöfnunarefni 8. 500 g/m2 fílt 9. Steyptar kantstyrkingar 10. 5 svæða pokagormakerfi 11. 1.000 g/m2 fílt 12. Steyptar kantsyrkingar 13. BEVEL gormar. Hæð 10 cm 14. 500 g/m2 fílt 15. 30 g/m2 fylling 16. 12 mm WF foam 17. Áklæði 18. Áklæði (litað flauel) 19. 30 g/m2 fylling 20. 17 mm HYP foam 21. Áklæði (grátt) 20% AFSLÁTTUR af Regency á meðan birgðir endast. Komdu og leggstu í draumarúmið! Regency er sérlega vandað heilsu rúm frá Spring Air. Gerðu kröfur um gæði – Spring Air stenst þær. Uppbygging Spring Air REGENCY heilsudýnunnar Leikararnir í hlutverkum sínum í verkinu Sending, eftir Bjarna Jónsson, á Nýja sviði Borgarleikhússins. Leikhús sending HHHHH Borgarleikhúsið, Nýja sviðið Höfundur: Bjarni Jónsson Leikstjórn: Marta Nordal Leikarar: Þorsteinn Bachmann, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Hilmar Guðjónsson, Elma Stefanía Ágústs- dóttir, Árni Arnarson. Leikmynd: Gretar Reynisson Búningar: Stefanía Adolfsdóttir Tónlist og hljóð: Guðmundur Vignir Karlsson Lýsing: Björn Bergsteinn Guðmunds- son Leikgervi: Margrét Benediktsdóttir Frumsýningar á nýjum íslenskum leikverkum eru alltaf tilhlökkunar- og gleðiefni. Á laugardagskvöldið var frumsýnt verkið Sending, eftir Bjarna Jónsson, á Nýja sviði Borgar- leikhússins, í leikstjórn Mörtu Nor- dal. Eftir Bjarna liggur talsverður fjöldi leikverka bæði fyrir svið og útvarp, auk leikgerða og þýðinga á sviðsverkum og skáldsögum. Sending segir frá því þegar Frank, átta ára gamall drengur, kemur skyndilega inn í líf barnlausu hjónanna Helgu og Róberts vestur á fjörðum árið 1982. Draumur Helgu hefur lengi verið að fá barn inn í líf sitt en Róbert er á öðru máli og hverfist leikurinn að talsverðu leyti um átökin þeirra á milli í bland við atburði sem tilheyra fortíð Róberts. Inn í leikinn blandast einnig Anton, æskuvinur Róberts, og María, fulltrúi barnaverndaryfirvalda. Ekki er vert að segja of mikið um framvinduna heldur eftirláta áhorfendum að gera sínar uppgötvanir. Það er margt gott í þessu verki Bjarna og þá einkum í fyrri hluta verksins enda hverfist það í heild- ina um góða hugmynd. Hugmynd sem byggir á hugarheimi Róberts og haganlega smíðuðum endurlitum og ferðalögum um afkima sálarlífs aðalpersónunnar. Í textanum er að finna bæði kímni og átök, haganlega smíðuð, en kannski helst til slétt og felld til þess að ná að vopna leikar- ana í þeim aðstæðum sem persón- urnar standa frammi fyrir. Að auki vantar talsvert upp á að þessari góðu grunnhugmynd sé treyst að fullu. Þessi vandi nær ákveðnu hámarki þegar drengurinn orðar eiginlegt samband sitt við Róbert en við það myndast illa ígrundað spennufall á sýningunni. Í raun hefði þurft að taka mun afdráttarlausari afstöðu gagnvart þessum þrjátíu ára mun á raun- og hugarheimi, fremur en að gæla við einkenni hvers tíma fyrir sig og útskýra svo muninn fyrir áhorf- endum með einni setningu. Það er sterkur leikhópur sem stígur á svið í Sendingu. Þorsteinn Bachmann gerir vel í erfiðu hlut- verki Róberts og hið sama má segja um Kristínu Þóru Haraldsdóttur í hlutverki Helgu en leikstjórnarlega hefði gjarnan mátt auka á spennuna þeirra á milli. Láta þau ganga aðeins lengra í tilfinningasveiflum og átök- um, en slíkt hefði mögulega getað aukið á þá örvinglan sem er að finna í báðum þessum persónum. Hilmar Guðjónsson er skemmtilegur í hlut- verki Antons, æskuvinarins utan- veltu sem verður aldrei frjáls undan valdi Róberts fremur en öfugt. Upp- gjörið á milli þeirra vinanna er líkast til áhrifamesta atriði sýningarinnar. Elma Stefanía Ágústsdóttir fer ágæt- lega með hlutverk Maríu, en eins og í fleiru í fari þessarar uppfærslu hefði meiri kraftur verið til bóta. Það sást vel í lokasenunni þegar Elma Stefanía lék af meiri krafti. Þá er vert að geta þess að hinn ungi Árni Arnarson stendur sig ljómandi vel í krefjandi hlutverki Franks. Leikmynd Gretars Reynissonar er fantagóð og nær skemmtilega utan um þá grunnhugmynd sem verkið vinnur með og eins vinnur lýsing Björns Bergsteins með möguleika leikmyndarinnar. Hljóðmynd verks- ins er mikilvæg og vinnur að sama skapi vel út frá grunnhugmyndinni. Hið sama verður því miður ekki sagt með búningana og leikgervin því hvort tveggja virðist líða fyrir óskýra leikstjórnarlega afstöðu á milli ákveðins tímabils eða tímaleysis. Þrátt fyrir ákveðna ágalla er Send- ing um margt forvitnileg sýning á athyglisverðu verki. En betur má ef duga skal. Leikstjórn Mörtu Nordal er um margt áferðarfalleg og snyrti- leg en hefði kannski fremur mátt vera meira afgerandi. Taka verkið lengra inn í hinn óræða hugarheim aðalpersónunnar og láta eftir sér meira brjálæði og sterkari tilfinn- ingar. Kynda bál á milli persónanna og hella olíu á þann eld tilfinninga sem þar er að finna. Að sama skapi má segja að sem leikritaskáld þurfi Bjarni aðeins betur að treysta þeim efnivið sem hann er með í hönd- unum. Treysta á mátt góðrar hug- myndar og beita svo aðeins sterkara og tilfinningaríkara tungutaki. Þegar þar að kemur mega leikhúsgestir eflaust eiga von á góðu. Magnús Guðmundsson Niðurstaða: Helst til afstöðulaus sýning á athyglisverðu verki sem er þó vel þess virði að sjá. Að treysta hugmynd Árni Arnarson, Þorsteinn Bachmann og Kristín Þóra Ágústsdóttir. ALLTAF VIÐ HÖNDINA Þú getur lesið Fréttablaðið í heild sinni á Vísi og í Fréttablaðs-appinu ... allt sem þú þarft Þú færð appið á visir.is/fbl eða beint í gegnum 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m i ð V i k u D a G u r22 m e N N i N G ∙ F r É t t a b L a ð i ð menning 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 2 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 8 F -A 7 E C 1 A 8 F -A 6 B 0 1 A 8 F -A 5 7 4 1 A 8 F -A 4 3 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 1 B F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.