Fréttablaðið - 14.09.2016, Síða 44

Fréttablaðið - 14.09.2016, Síða 44
Ég hafði alltaf teiknað tattúin mín og svo fengið aðra til að útfæra þau á mig, en svo fattaði ég að stick and poke leit ekkert út fyrir að vera erfitt, ég gæti pottþétt alveg gert það sjálf. Af nálinni staf- aði ekki sama hætta og alvara og af vélinni. Vinkona mín átti græjurnar og hún kenndi mér. Svo gerði ég það bara. Einfaldari leið. Hugmynd getur strax orðið að veruleika. Ég byrjaði á nokkrum táknum á puttunum og stól á ökklanum. Svo hamborgara. Svo tönn. Ég vaknaði um daginn og hugsaði: „Mig langar í prentara á fótinn,“ þannig að ég teiknaði prent- ara og setti hann bara á fótinn. Svo hugsaði ég: „mig langar í pappír sem er á leiðinni í prentarann!“ og bætti því við. Af hverju ekki?“ svarar Gréta Þorkelsdóttir, grafískur hönnuður sem hefur verið að prófa sig áfram með stick and poke, þegar hún er spurð að því hvernig hún hafi leiðst út í þessa tegund húðflúrs. Eru margir að gera þetta á Íslandi? „Ég veit um nokkra en ekki hver útbreiðslan er í öðrum hópum.“ Er fagurfræðileg ástæða fyrir því að fólk fær sér þessa týpu af tattúi frekar en á stofu/gert með vél? „Ég held að það sé gert af mörgum mismunandi ástæðum og að fagur- fræðin spili inn í það. En þessi aðferð er klárlega hrárri. Þetta getur líka verið miklu óformlegra og persónu- legra, að teikna upp vinatattú og gera það á hvort annað. Það er ekki hljóð úr neinni vél eða neitt óþægi- legt í umhverfinu. Bara nál, vinir og kannski skemmtileg bíómynd sem er horft á á meðan.“ Er ekki drullustressandi að teikna á skinnið á einhverjum? „Það var alveg smá stressandi fyrst, en ekki lengur. Svo er líka málið að gera bara það sem maður treystir sér til – þetta þarf ekki að vera full- komið.“ Spurð hvort heilbrigðiseftirlitið hafi eitthvað skipt sér af hló Gréta bara, hvernig sem svo má skilja það. stefanthor@frettabladid.is húðflúr Nál, vinir og heimagert Stick and poke er tegund húðflúrs sem hefur orðið nokkuð áberandi upp á síðkastið en aðferðin er þó ævagömul og einföld. Með stick and poke má með nokkuð auðveldum máta koma hugmynd að einföldu húðflúri á húðina strax og án nokkurra málalenginga. Gréta er með prentara á fætinum, en hún vaknaði einn morguninn með þá hugmynd og réðst strax í að flúra prentarann á sig. Fréttablaðið/GVa Hvað er Stick aNd poke? „Þegar talað er um stick and poke er oftast talað um ákveðna aðferð við húðflúr, þar sem nál (saumnál vafin tvinna, tattú nál) er dýft í blek og henni stungið aftur og aftur í húðina með handafli. Þessi aðferð á sér mjög langa sögu og á meðal annars rætur að rekja til blábyrjunar húðflúrs þótt hún sé oftast tengd við fangelsi og DiY-menningu tuttugustu aldar.“ Þetta getur líka verið miklu óform- legra og perSóNulegra, að teikNa upp viNatattú og gera Það á Hvort aNNað. Það er ekki Hljóð úr NeiNNi vél eða Neitt óÞægilegt í umHverfiNu. Bara Nál, viNir og kaNNSki Skemmtileg BíómyNd Sem er Horft á á meðaN Save the Children á Íslandi Hamborgari og tönn, af hverju ekki? Fréttablaðið/GVa Gréta byrjaði á nokkrum táknum á fingurna. Fréttablaðið/GVa Gréta Þorkelsdóttir hefur verið dugleg við að pota á sig tattúum. Fréttablaðið/GVa MYnD/SHittY CitY Shitty city er nafnlaus nálari sem gaf Fréttablaðinu leyfi til að nota myndir af verkum sínum. MYnD/SHittY CitY Nánari upplýsingar í síma 666 4000 eða leiga@reginn.is VÖNDUÐ SKRIFSTOFURÝMI TIL LEIGU Glæsilegt 332 m2 rými á efstu hæð með einstöku útsýni. Möguleiki á sérhönnun rýmis fyrir leigutaka. Snyrtilegt, bjart og vel staðsett 103 m2 rými á frábærum stað miðsvæðis á höfuðborgarsvæðinu. Gott og vandað 158 m2 rými á 2. hæð á einum vinsælasta stað í bænum, Borgartúni. Suðurlandsbraut 4 Lágmúli 6-8 Borgartún 29 reginn.is reginn@reginn.is sími 512 8900 1 4 . s e p t e m b e r 2 0 1 6 m I Ð V I K U D A G U r28 L í f I Ð ∙ f r É t t A b L A Ð I Ð Lífið 1 4 -0 9 -2 0 1 6 0 3 :4 4 F B 0 4 8 s _ P 0 4 4 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 5 K .p 1 .p d f F B 0 4 8 s _ P 0 0 8 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 A 8 F -C A 7 C 1 A 8 F -C 9 4 0 1 A 8 F -C 8 0 4 1 A 8 F -C 6 C 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 A F B 0 4 8 s _ 1 3 _ 9 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.