Fréttablaðið - 14.09.2016, Page 45
Söngkonan Miley Cyrus prýðir for-
síðu októberheftis Elle. Í viðtali við
tímaritið ræðir hún meðal annars
nýtt starf sitt sem einn dómari The
Voice og ljóstrar upp um þau ráð
sem hún hyggst gefa keppendum; eitt
þeirra er að vera eins og Bernie Sand-
ers sem gaf kost á sér sem forsetaefni
Demókrataflokksins.
„Ég vil ekki að þetta komi vitlaust
út úr mér, en ég ætla að ráðleggja
keppendum mínum að vera Bernie
Sanders. Vertu manneskjan sem fólk-
ið vill og elskar. Ekki hafa áhyggjur
af fjöldanum. Þannig býr maður til
eftirminnileg augnablik. Leyfðu fólki
að tala um þig,“ sagði Cyrus.
Söngkonan kveðst einnig ætla að
sniðganga rauða dregla héðan í frá.
„Ég mun aldrei ganga rauða dregilinn
aftur. Af hverju, þegar fólk sveltur, er
ég að ganga eftir einhverju rauðu
teppi? Af því að ég er „mikilvæg“? Af
því að ég er „fræg“? Ég er ekki þann-
ig gerð. Þetta er eins og farsi beint úr
Zoolander.“
Miley ráðleggur fólki
að vera Bernie Sanders
Mel B var gestur James Corden í
spjallþættinum Late Late Show
with James Corden á fimmtu-
daginn var. Kryddpían var þangað
komin til að kynna þáttinn Amer-
ica’s Got Talent, þar sem hún er í
hópi dómara, en tilkynnti um leið
að von væri á endurkomu Spice
Girls – eða nokkurs konar endur-
komu, því kryddpíurnar verða
aðeins þrjár en ekki fimm.
Victoria Beckham og Melanie C
munu ekki koma fram á tónleikum
Spice Girls sökum anna.
„Victoria er upptekin við fram-
leiðslu fatalínu sinnar og Mel C
er að taka upp plötu – þannig að
þær afþökkuðu pent en styðja við
bakið á okkur hinum. Við styðjum
hver aðra, við erum ‘girl power’,
þannig að við þrjár sögðum bara:
„Ókei, þá kýlum við á þetta,“ sagði
Mel B.
Kryddpíurnar voru stofnaðar
árið 1994 og slógu eftirminnilega
í gegn með laginu „Wannabe“
tveimur árum síðar. Fyrsta plata
þeirra, Spice, seldist í meira en 31
milljón eintaka um allan heim.
Endurkoma
Spice Girls
Kryddpíurnar voru ein og vinsælasta
hljómsveit heims á tíunda áratugnum.
Mynd/Getty
Miley Cyrus er
nýr dómari í
söngvakeppninni
the Voice.
Rússneskir kvikmyndadagar
hefjast á morgun, fimmtudag,
í Bíói Paradís. Opnunarmynd
hátíðarinnar nefnist Journey to the
Mother og er í leikstjórn Mikhails
Kosyrev-Nestorov, sem er jafn-
framt heiðursgestur hátíðarinnar.
Journey to the Mother segir
frá Maxim, sem ferðast til Frakk-
lands til að heimsækja móður sína.
Heimsóknin er örlagarík og mun
snúa lífi Maxims á hvolf.
Aðrar frábærar rússneskar kvik-
myndir verða sýndar á hátíðinni
og má þar meðal annars nefna
fjölskyldumyndina Too Red for a
Fox sem segir frá ref sem aðstoðar
járnsmið við að gleðja ástina sína.
Refurinn fær hjálp frá öðrum
dýrum, talandi blómum, englum
og álfum sem búa í töfraskógi.
Myndirnar eru allar sýndar með
enskum texta og er aðgangseyrir
enginn.
Rússneskar
myndir í
Paradís
Journey to the Mother er opnunar-
mynd Rússneskra kvikmyndadaga í
Bíói Paradís.
Runólfur Gunnlaugsson
Löggiltur fasteignasali
892 7798
runolfur@hofdi.is
Kjartan Hallgeirsson
Löggiltur fasteignasali
824 9093
kjartan@eignamidlun.is
Magnús Leópoldsson
Löggiltur fasteignasali
550 3000 | 892 6000
magnus@fasteignamidstodin.is
Ólafur Finnbogason
Löggiltur fasteignasali
822 2307
olafur@miklaborg.is
FRÁBÆRT TÆKIFÆRI
Í FERÐAÞJÓNUSTU
99 íbúðir til sölu á Bifröst
Til sölu eru 99 íbúðir að Hamragörðum 1 og við Sjónarhól
á Bifröst sem seldar verða í einu lagi til sama aðila, auk
möguleika á að kaupa rekstrarfélag Hótels Bifrastar.
Bifrastarsvæðið er vel staðsett og umkringt friðsælli
og fallegri náttúru í vaxandi ferðaþjónustuhéraði. Hótel-
reksturinn er í góðri sátt við Háskólann á Bifröst og er
m.a. í samstarfi við skólann um ráðstefnuhald.
Nánari upplýsingar um eignirnar veita neðangreindar
fasteignasölur.
51 íbúð
Hamragarðar 1
48 íbúðir
Sjónarhóll
í allar áttir
Stutt
við háskólann
Samvinna
Hótels Bifrastar
Rekstur
náttúra
Friðsæl
L í f i ð ∙ f R É T T A B L A ð i ð 29M i ð V i K U D A G U R 1 4 . s e p T e M B e R
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
8
F
-B
B
A
C
1
A
8
F
-B
A
7
0
1
A
8
F
-B
9
3
4
1
A
8
F
-B
7
F
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K