Fréttablaðið - 14.09.2016, Síða 48
Dreifing dreifing@postdreifing.is
Ef blaðið berst ekki 800 1177
Við segjum fréttir Smáauglýsingasíminn og skiptiborð 512 5000 Vísir
Ritstjórn 512 5200 Fax: 512 5301 ritstjorn@frettabladid.is Auglýsingadeild auglysingar@frettabladid.is Prentun Ísafoldarprentsmiðja
Kristínar
Ólafsdóttur
Bakþankar
Fallegasta hrós sem ég hef fengið var einlægt og spontant og trítlaði út um
munn átta ára skjólstæðings míns
á frístundaheimili hér í bænum.
Það var mánudagur og allt var
þrungið ömurlegu vonleysi, roki
og rigningu. „Stína!“ hrópaði
skjólstæðingurinn og faðmaði mig.
Andartaki síðar leit hann upp og
sagði, með svolítilli undrun í rödd-
inni: „Þú lyktar eins og möndlur og
súkkulaði!“ Svo saug hann djúpt
upp í nefið og bætti við: „… pipar-
myntusúkkulaði.“
Orðin ein og sér fleyttu mér
í gegnum daginn á rennilegu
hamingjuskýi en það sem vó
þyngst, og það sem mun jafn-
framt ylja mér lengst um hjarta-
ræturnar, var hispursleysið.
Téður skjólstæðingur minn tjáði
mér nákvæmlega það sem hann
var að hugsa á nákvæmlega
einu augnabliki, sem flögraði
jafnóðum út í buskann. Engir
fastreyrðir fullorðinsfjötrar.
Og framvegis ætla ég að reyna
að varpa þessum fjötrum af
mínu eigin málbeini. Ég ætla að
hrósa um leið og því lýstur niður
í hugann. Ég ætla að rétta upp
hönd í tíma í skólanum og spyrja
spurningar, jafnvel þó að ég hafi
ægilegar áhyggjur af því að hún
sé katastrófískt heimskuleg. Ég
ætla að standa fastar á skoðunum
mínum og meiningum. Ég ætla
að láta vita ef mér misbýður
eitthvað og byrgja það ekki inni
þangað til ég spring. Ég ætla, og
ég þarf, að hætta að hugsa svona
ógeðslega mikið.
Það væri raunar flestum til
mikilla hagsbóta að tileinka sér
óheflaðan þankagang og tilgerð-
arleysi barnungs skjólstæðings
míns, að hleypa fleiri ljósglætum
inn í ömurlega vonlausa mánu-
daga. Að dreifa möndlum og
súkkulaði.
Möndlur og
súkkulaði
LA VIE EN WOW!
KATRÍNARTÚNI 12 WOWAIR.IS WOWAIR@WOWAIR.IS *Verð miðast við flug aðra leið með sköttum ef greitt er með Netgíró.
BÓKAÐU NÚNA Á WOWAIR.IS
október - mars
*
ÍS
7.999 kr.f rá
PAR
OPIÐ ALLAN SÓLARHRINGINN
Í ENGIHJALLA,
VESTURBERGI
OG ARNARBAKKA
Mánudaga – fimmtudaga kl. 17:40
1
4
-0
9
-2
0
1
6
0
3
:4
4
F
B
0
4
8
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
4
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
8
F
-A
2
F
C
1
A
8
F
-A
1
C
0
1
A
8
F
-A
0
8
4
1
A
8
F
-9
F
4
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
4
8
s
_
1
3
_
9
_
2
0
1
6
C
M
Y
K