Fréttablaðið - 21.05.2016, Blaðsíða 2
Veður
Norðan og norðaustan 3-13 m/s í
dag, hvassast við austurströndina og
á annesjum fyrir norðan. Skúrir eða
slydduél á Norðaustur- og Austur-
landi. sjá síðu 46
Kassabílarallý í miðborginni
Spennan í hámarki Um 700 börn af frístundaheimilum nálægt miðborginni tóku í gær þátt í kassabílarallýi. Árlegur viðburðurinn hófst með skrúð-
göngu niður á Ingólfstorg. Börnin hafa á vormánuðum smíðað og skreytt kassabíla í frístundastarfinu og kynntu þá stolt til leiks. Fréttablaðið/SteFán
þykir sérlega áhrifaríkt við sveppa-
sýkingu í leggöngum kvenna og
við kláða og sviða á kynfærasvæði
kvenna og karla. Einnig gott við
sveppasýkingum á fótum og tám
og við þrusku í munni.
30%
afsláttur
landhelgisgæslan Hafís er nú kom-
inn inn fyrir lögsögumörk Íslands út
af Vestfjörðum.
Landhelgisgæslan fylgist vel með
ísnum og er farið reglulega í eftirlit
um svæðið á eftirlitsflugvél Land-
helgisgæslunnar, TF-SIF.
Flogið var um svæðið á fimmtudag
og var ísinn þá næst landi um 35 sjó-
mílur norðnorðvestur af Straumnesi.
Talsverður ís er á svæðinu miðað við
undanfarin ár á þessum árstíma.
Upplýsingum um hafísinn er
miðlað til Veðurstofu Íslands, Jarð-
vísindadeildar Háskóla Íslands og
dönsku herstjórnarinnar sem annast
leit og björgun á grænlensku haf-
svæði.
Sjófarendur eru hvattir til að fylgj-
ast með hafísfréttum, en á vef Land-
helgisgæslunnar má sjá myndir af
ísbreiðunni. – shá
Mikill hafís
miðað við
árstíma
Reykjavík Lögreglan á höfuðborgar-
svæðinu rannsakar nú mál konu
sem var haldið nauðugri í starfi á
hóteli á höfuðborgarsvæðinu. Frá
þessu var greint í kvöldfréttum
Stöðvar 2 í gær. Konan var þvinguð
til að gista í herbergi með yfirmanni
sínum sem hótaði henni að annars
yrði hún handtekin.
Hún fékk tæpar 60 þúsund krón-
ur í mánaðarlaun sem er langt undir
lágmarkslaunum. Konan sinnti
margvíslegum störfum á hótelinu og
var við vinnu nánast daglega í fimm
mánuði. – gg
Blekkt til að
starfa á hóteli
Konu var blekkt til vinnu á hóteli í mið-
borginni. Fréttablaðið/andri
alþingi Boðað var skyndilega til
fundar á Alþingi í gær. Efni fundar-
ins var frumvarp um útboð Seðla-
bankans á aflandskrónueignum og
umgjörð utan um þær eignir.
„Markmið laga þessara er að
stuðla að losun fjármagnshafta og
skapa grundvöll fyrir frjáls milli-
ríkjaviðskipti með íslenskar krónur
með efnahagslegan stöðugleika og
almannahag að leiðarljósi. Fundum
verður haldið áfram á Alþingi um
helgina til að afgreiða frumvarpið
fyrir opnun markaða á mánudag-
inn,“ segir í frumvarpinu en stefnt
er á að Seðlabaninn haldi gjald-
eyrisútboð þar sem aflandskrónu-
eigendum gefst kostur á að skipta
krónum sínum í evrur.
Að sögn Bjarna Benediktssonar
fjármálaráðherra eru aflandskrónu-
eignir um 319 milljarðar og til þess
fallnar að leita sér útgöngu.
Þær krónueignir sem ekki verður
skipt í útboðinu verða fastar á
reikningum sem bera litla eða enga
vexti. Þannig eru aflandskrónueig-
endum settir afarkostir með frum-
varpinu.
Takmarkanirnar sem skilgreindar
eru í frumvarpinu kveða á um að
fjármálafyrirtækjum og verðbréfa-
stofnunum sé skylt að flytja aflands-
krónueignir fyrir 1. september að
viðlögðum dagsektum allt að 50
milljónum króna á dag.
Eignir í formi inneigna flytjast yfir
á innlánsreikninga háða sérstökum
takmörkunum hjá íslenskum bönk-
um eða hjá Seðlabankanum óski
erlendar verðbréfastofnanir þess.
Aflandskrónueignir í formi raf-
rænt skráðra hlutabréfa í vörslu inn-
lendra og erlendra fjármálastofnana
munu færast á umsýslureikninga í
umsjá Seðlabankans.
Þingmenn stjórnarandstöðunnar
gagnrýndu samráðsleysi við gerð
frumvarpsins en hétu því að hindra
ekki framgöngu þess.
„Þetta er risavaxið mál,“ sagði
Katrín Jakobsdóttir, formaður
Vinstri grænna. „Ég hefði að sjálf-
sögðu kosið að stjórnvöld hefðu
haft miklu meira samráð en haft
hefur verið. Það sagði ég þegar
frumvörp um stöðugleikaskatt og
stöðugleikaframlag voru lögð fram
og segi það aftur nú.“
Össur Skarphéðinsson, þingmað-
ur Samfylkingarinnar, gagnrýndi
að ekki væri búið að samþykkja lög
sem færðu Seðlabankanum tæki
til að sporna við óhóflegum vaxta-
munarviðskiptum fyrir þetta skref
en það breytti því ekki að stjórnar-
andstaðan væri hlynnt frumvarp-
inu. „Stjórnarandstaðan vinnur með
ríkisstjórninni að greiða för þessa
frumvarps í gegn um þingið,“ sagði
Össur. stefanrafn@frettabladid.is
Ætla að setja eigendum
aflandskróna afarkosti
Fjármálaráðherra lagði fram frumvarp um skilgreiningu og takmarkanir á
aflandskrónueignum á skyndifundi Alþingis í gær. Fá möguleika á að skipta
krónum í evrur eða festa eignir á reikningum með lága eða enga vexti.
bjarni benediktsson mælti fyrir frumvarpinu á skyndifundi alþingis í gær.
Fréttablaðið/Vilhelm
Stjórnarandstaðan
vinnur með ríkis-
stjórninni að greiða för þessa
frumvarps í gegn
um þingið.
Össur Skarphéð-
insson, þingmaður
Samfylkingarinnar
egyptaland Reykskynjarar fóru í
gang í flugvél Egyptair sem hvarf
sporlaust yfir Miðjarðarhafi í fyrra-
dag. CNN greinir frá þessu.
Panos Kammenos, varnarmála-
ráðherra Tyrklands, tilkynnti í
gær að leitarsveitir hefðu fundið
líkamshluta, sæti, brak og farangur
í Miðjarðarhafinu sunnan við grísku
eyjuna Karpaþos.
Nánast öruggt er að brakið til-
heyri flugvél EgyptAir. Sextíu og sex
manns voru um borð, flestir þeirra
Egyptar, og talið er víst að allir hafi
farist.
Leitin beinist fyrst og fremst að
því að finna flugrita vélarinnar til
að varpa ljósi á hvað gerðist.
Stjórnvöld í Egyptalandi telja um
hryðjuverk að ræða en stjórnvöld
annarra ríkja vilja ekki taka jafn
djúpt í árinni. – srs
Lík og brak
úr flugvélinni
fannst í sjónum
2 1 . m a í 2 0 1 6 l a u g a R d a g u R2 f R é t t i R ∙ f R é t t a B l a ð i ð
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-6
3
3
8
1
9
8
0
-6
1
F
C
1
9
8
0
-6
0
C
0
1
9
8
0
-5
F
8
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K