Fréttablaðið - 21.05.2016, Síða 6

Fréttablaðið - 21.05.2016, Síða 6
Stjórnmál Ef af útgöngu Bretlands úr Evrópusambandinu (ESB) yrði í næsta mánuði, gæti á næstu árum orðið til ytra lag í Evrópusamvinnu sem næði yfir Bretland, Noreg, Sviss og Ísland ásamt nokkrum smærri ríkjum. Þetta er mat Eiríks Bergmann, prófessors í stjórnmála- fræði. Hann kynnti hugmyndir sínar um slíka samvinnu á opnum fundi á vegum Alþjóðamálastofnunar Háskóla Íslands og Félags stjórn- málafræðinga í gær. „Bretland er nánasti viðskipta- aðili Íslands í Evrópu, þrátt fyrir þorskastríðin og IceSave. Sam- band okkar við Bretland er virki- lega mikilvægt, ekki einungis þegar kemur að efnahagsmálum, heldur er Ísland að færast meira í átt að Bret- landi menningarlega séð,“ sagði Eiríkur á fundinum. Kosið verður um áframhaldandi aðild Bretlands að Evrópusamband- inu þann 23. júní næstkomandi. Ef af útgöngu verður telur Eiríkur að það muni hafa veruleg áhrif á inn- göngu Íslands í Evrópusambandið. „Þá fjarlægist Evrópusambandið okkur og minni áhugi væri á Íslandi fyrir inngöngu,“ sagði Eiríkur. Hann bætti þó við að hann teldi að Bretar muni ekki segja sig úr ESB. Ef af útgöngu verður telur hann möguleika á nýju tækifæri í Evrópu- samstarfi. „Í kjölfar kreppunnar árið 2008 fóru hagsmunaaðilar að skoða möguleikann á því að stofna samtök fyrir smáríki Evrópu, utan ESB, til að auka nánd við ESB.“ Reynt var að fá Noreg til að taka þátt í slíku samstarfi, en ekki Ísland þar sem við vorum í aðildarvið- ræðum við ESB á þeim tíma. „Þetta er eitthvað sem gæti verið endurskoðað með nýjum formerkj- um ef Bretland yfirgefur ESB að mínu mati. Bretland gæti þá verið stórþjóðin í ytra lagi af Evrópu- samvinnu sem myndi líklega ná til EFTA-ríkjanna, Sviss, Andorra, San Marínó og Ermarsundseyjanna,“ sagði Eiríkur. „Ég hef ekki séð miklar umræður um þetta í Bretlandi, en ég held að þessi hugmynd verði viðruð fljótlega ef af útgöngu verður.“ Skoðanakannanir eru tvísýnar um áframhaldandi viðveru Breta í ESB. David Cameron forsætisráð- herra beitir sér þó áfram fyrir áfram- haldandi viðveru. saeunn@frettabladid.is Ytri Evrópusamvinna gæti tekið við af ESB Útganga Bretlands úr ESB hefur töluverð áhrif á Ísland þar sem Bretland er okkar nánasti viðskiptaaðili í Evrópu. Ef af henni verður mun vera minni áhugi á Íslandi fyrir því að ganga inn í Evrópusambandið að mati stjórnmálafræðings. ✿ möguleg lönd í ytri Evrópusamvinnu 1 2 3 4 5 6 7 1. Ísland 2. Noregur 3. Mön 4. Bretland 5. Jersey 6. Andorra 7. San Marínó Verð frá: á mann m.v. fullorðna og börn í íbúð með svefn- herbergi á Golden Sand. KRÍT 6. júní, 10 nætur VITA | Skógarhlíð | Sími | VITA.IS - vita.is er gott fjölskyldutilboð! Mamma Mia hvað þetta 79.900 kr. Bretland er nánasti viðskiptaaðili Íslands í Evrópu, þrátt fyrir þorskastríðin og IceSave. Samband okkar við Bretland er virkilega mikilvægt. Eiríkur Bergmann, prófessor í stjórn- málafræði við Háskólann á Bifröst SVÍÞjóÐ Það sem af er þessu ári hafa tvöfalt fleiri hælisleitendur í Sví- þjóð fengið fjárhagslegan stuðning frá stjórnvöldum til að snúa aftur til heimalands síns heldur en allt síðasta ár, eða 449 á móti 216. Það eru einkum Írakar og Afganar sem fá slíka styrki. Styrkurinn nemur um 450 þús- undum íslenskra króna fyrir ein- stakling sem er eldri en 18 ára og 225 þúsundum fyrir barn. Fjöl- skylda getur í mesta lagi fengið um 1,1 milljón íslenskra króna. Styrkurinn er veittur þeim sem fara til landa þar sem erfitt getur verið að koma undir sig fótunum. Snúi menn aftur til Svíþjóðar þurfa þeir að endurgreiða styrkinn sem er greiddur út í heimalandi við- komandi. – ibs Fleiri fá styrk til heimfarar SVÍÞjóÐ Fimmtán þúsund banka- starfsmenn í Svíþjóð þurfa að grúfa sig niður í námsbækur í sumar. Samkvæmt nýjum kröfum Evr- ópusambandsins þurfa þeir banka- starfsmenn sem hafa umsjón með húsnæðislánum sérstakt leyfi til starfsins. Prófin byrja í ágúst og þeim þarf að vera lokið í mars á næsta ári, að því er greint er frá á vef Dagens Industri. Markmiðið með náminu er að auka þekkingu bankamann- anna. – ibs Leggja próf fyrir sænskt bankafólk Tala látinna hækkar Fólk á flótta frá heimilum sínum leitar skjóls í úthverfi Colombo á Sri Lanka í gær, en mikið vatnsveður hefur gengið yfir landið. Almannavarnir þar hafa staðfest lát 20 manna í aurskirðum í Kegalle-héraði og að 17 til viðbótar hafi látist annars staðar í landinu vegna flóða og raflosts. Tæplega 224 þúsund manns úr nærri 50 þúsund fjölskyldum hafa verið flutt í skjól en veðrið hefur haft áhrif á líf 352.374 úr 82.924 fjölskyldum. Fréttablaðið/EPa 2 1 . m a Í 2 0 1 6 l a U G a r D a G U r6 f r é t t i r ∙ f r é t t a B l a Ð i Ð 2 1 -0 5 -2 0 1 6 0 3 :5 8 F B 0 9 6 s _ P 0 9 1 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 8 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 0 6 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 1 1 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 8 0 -8 A B 8 1 9 8 0 -8 9 7 C 1 9 8 0 -8 8 4 0 1 9 8 0 -8 7 0 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 5 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.