Fréttablaðið - 21.05.2016, Qupperneq 12
35,1%
Norbert Hofer
Frelsisflokknum
21,3%
Alexander Van der Bellen
Græningjaflokknum
18,9%
Irmgard Griss
Óháð
11,3%
Rudolf Hundstorfer
Sósíaldemókrataflokknum
11,1%
Andreas Khol
Þjóðarflokknum
2,3%
Richard Lugner
Óháður
Allt frá lokum seinni heimsstyrj-
aldar hafa tveir stjórnmálaflokkar
ráðið ríkjum í landinu, annar hægra
megin við miðju og hinn vinstra
megin.
Hægriflokkurinn heitir Austur-
ríski þjóðarflokkurinn og er nokkuð
hefðbundinn íhaldsflokkur kristi-
legra demókrata, en vinstriflokkur-
inn er flokkur jafnaðarmanna, Sósí-
aldemókrataflokkur Austurríkis.
Þessir tveir flokkar hafa stjórnað
landinu, ýmist báðir saman í sam-
steypustjórn eða annar flokkurinn
í einu þegar fylgið dugði til að fá
hreinan þingmeirihluta.
Ef frá er skilin skammlíf bráða-
birgðastjórn með Kommúnista-
flokknum árið 1945 hefur það
einungis einu sinni gerst að þriðji
flokkurinn hafi fengið að vera með
í ríkisstjórn.
Þetta var á árunum 2005 til 2007
þegar Þjóðarflokkurinn fékk til liðs
við sig Bandalag um framtíð Austur-
ríkis, stjórnmálaflokk sem hinn
umdeildi Jörg Haider hafði stofnað
eftir að hann klauf sig út úr Frelsis-
flokknum.
Stóru flokkarnir tveir hafa sömu-
leiðis undantekningarlítið átt sinn
fulltrúa í forsetaembætti landsins.
Eina undantekningin var á árunum
1974 til 1980 þegar hinn óflokks-
bundni Rudolf Kirchschläger var
forseti Austurríkis.
Óvenjulegar forsetakosningar
Forsetakosningar á morgun verða
því harla óvenjulegar. Þar takast
ekki á fulltrúar gömlu valdaflokk-
anna heldur fulltrúar tveggja jaðar-
flokka.
Norbert Hofer er 45 ára gamall
fulltrúi Frelsisflokksins, hins
umdeilda flokks hægri þjóðernis-
sinna sem iðulega er sagður vera
öfgakenndur lýðskrumsflokkur.
Alexander Van der Bellen er hins
vegar 72 ára gamall fyrrverandi leið-
togi Græningjaflokksins og nýtur
stuðnings flokksfélaga sinna, þótt
hann bjóði sig fram sem óháður
frambjóðandi.
Í fyrri umferð forsetakosninganna
hlaut Hofer 35,1 prósent atkvæða
en Van der Bellen 21,3 prósent. Full-
trúar gömlu valdaflokkanna tveggja
fengu ekki nema rúm 22 prósent
samanlagt.
Hofer þykir eiga heldur meiri
möguleika í seinni umferðinni á
morgun en Van der Bellen. Þó er
munurinn í skoðanakönnunum
engan veginn nógu afgerandi til að
drepa niður alla spennu fyrirfram.
Útlendingahræðslan
Forsetaembættinu í Austurríki
fylgja ekki mikil völd, en sigur
Hofers yrði til marks um þá ört
vaxandi andstöðu við flóttafólk og
aðra innflytjendur sem víða hefur
saxað á fylgi hefðbundinna stjórn-
málaflokka í Evrópulöndum.
Hofer hefur stutt harðar aðgerðir
gegn flóttafólki en Van der Bellen
Jörg Haider og
Frelsisflokkurinn
Fyrir þrjátíu árum tók Jörg Haider
við forystu í austurríska Frelsis-
flokknum, sem þá var lítill flokkur
hægrisinnaðra þjóðernissinna og
átti rætur að rekja til nasistahreyf-
ingarinnar í Austurríki.
Haider reif upp fylgi flokksins og
var tíu árum síðar, árið 1996, kom-
inn með ríflega fjórðung atkvæða
bæði í þingkosningum í Austurríki
og kosningum til Evrópuþingsins.
Hann vakti alræmda athygli fyrir
glannalegar yfirlýsingar sínar, þar
sem hann meðal annars ræddi um
yfirburði austurrísku þjóðarinnar,
varaði við ógn sem hann taldi stafa
af útlendingum, ekki síst múslim-
um, og bar meira að segja blak af
þýskum og austurrískum nasistum
frá tímum Þriðja ríkisins.
Hann dró reyndar seinna í land
með sumar slíkar yfirlýsingar sínar.
Upp úr aldamótunum reyndi hann
að ljá Frelsisflokknum hófsamara
yfirbragð og klauf sig á endanum
út úr honum og stofnaði árið 2005
nýjan flokk, þar sem hann reyndi
að forðast hið umdeilda lýðskrum
sem hann hafði verið þekktur fyrir.
Haider lést árið 2008, aðeins 58
ára gamall.
Jörg Haider, sem lengi vel var leiðtogi
Frelsisflokksins. Fréttablaðið/EPa
Græninginn alexander Van der bellen og þjóðernissinninn Norbert Hofer að loknu sjónvarpseinvígi um síðustu helgi, þar sem
hvorugur þeirra þótti standa sig sérlega vel. Fréttablaðið/EPa
Fulltrúar frá
jaðarflokkum
eru komnir í
aðalhlutverkin
Frambjóðandi Frelsisflokksins umdeilda á góða
möguleika á að verða forseti Austurríkis eftir seinni
umferð forsetakosninganna á morgun. Keppinaut-
urinn er fyrrverandi leiðtogi Græningjaflokksins.
Gömlu valdaflokkarnir standa ráðalausir.
Guðsteinn
Bjarnason
gudsteinn@frettabladid.is
Úrslit fyrri umferðar forsetakosninganna 24. apríl
Kosið er á milli tveggja efstu í seinni umferðinni á morgun.
Skrifstofa eigna og atvinnuþróunar ı s. 411 11 11
Ráðhús Reykjavíkur ı reykjavik.is/leiga
Óskað er eftir hugmyndum að starfsemi í Bankastræti 0,
en þar er heimilt að vera með safn eða sýningu. Rýmið
sem er 37,5 fermetrar verður laust í ágúst.
Við val á starfsemi verður miðað við að hún gæði mið-
borgina meira lífi og auki fjölbreytni. Vakin er athygli á
að aðstaðan uppfyllir ekki kröfur um rekstur sjoppu eða
matsölu.
Núllið verður til sýnis miðvikudaginn 25. maí, kl. 15.00
Hugmyndir um fyrirhugaða starfsemi og opnunartíma
berist þjónustuveri Reykjavíkurborgar Borgartúni 12 - 14
fyrir kl. 16.00, þriðjudaginn 7. júní 2016.
Nánari upplýsingar á reykjavik.is/leiga
Hvernig eigum við
að nota Núllið?
Hugmyndaleit
R
E
Y
K
J
A
V
Í
K
U
R
B
O
R
G
segist gjarnan vilja taka á móti
öllum sem á þurfa að halda.
Eftir að flóttafólk tók að fjöl-
menna til Evrópu á síðustu miss-
erum frá Sýrlandi og fleiri stríðs-
hrjáðum löndum fylgdi austurríska
sósíaldemókratastjórnin lengi vel
þeirri stefnu að bjóða flóttafólk
velkomið með svipuðum hætti og
Þjóðverjar hafa gert. Tekið var við
90 þúsund umsóknum um hæli á
síðasta ári.
Seint á síðasta ári kom þó annað
hljóð í strokkinn og var ákveðið að
á þessu ári yrði að hámarki tekið
við 37.500 manns. Landamæra-
gæsla var hert og nú í síðasta mán-
uði voru samþykkt lög sem heimila
stjórninni að lýsa yfir neyðarástandi
ef mikill fjöldi flóttafólks kemur
skyndilega til landsins.
Upplausn gömlu flokkanna
Fylgi við Frelsisflokkinn hefur
vaxið hratt frá því snemma á síðasta
ári, samfara vaxandi ótta meðal
almennings við útlendinga. Innan
gömlu flokkanna ríkir hins vegar
upplausn og óvissa.
Ekki síst hefur verið mikill ágrein-
ingur innan Sósíaldemókrataflokks-
ins, sem er við stjórn og ber ábyrgð
á hinni skyndilegu stefnubreytingu
gagnvart flóttafólki.
Fyrir ári, um miðjan maí, höfðu
Frelsisflokkurinn, Sósíaldemókrata-
flokkurinn og Þjóðarflokkurinn allir
álíka mikið fylgi, um það bil 25 pró-
sent hver.
Síðan þá hefur fylgi gömlu flokk-
anna tveggja sigið jafnt og þétt og
mælist nú rétt rúmlega 20 prósent
en Frelsisflokkurinn er kominn upp
í 33 prósent.
Werner Faymann, leiðtogi Sósíal-
demókrataflokksins og kanslari
austurrísku stjórnarinnar, brást
nokkuð óvænt við þessari þróun
með því að segja af sér þann 9. maí
síðastliðinn.
Við báðum embættunum tók
Christian Kern, sem hefur undan-
farin ár verið forstjóri ríkisjárn-
brautafyrirtækisins ÖBB og lítið
skipt sér af stjórnmálum.
Forsetakosningarnar á morgun
eru haldnar í miðju þessa umróts
hefðbundinna stjórnmála.
Græninginn Van der Bellen, sem
er vanur því að vera í stjórnarand-
stöðu utarlega á jaðri austurrískra
stjórnmála, er allt í einu orðinn
fulltrúi þeirra sem vilja halda í
horfinu.
Þjóðernissinninn yst á hægri
vængnum, Norbert Hofer, siglir hins
vegar á bylgju almannahræðslunnar
við útlendinga og gæti sem hægast
nælt sér í nógu mörg atkvæði til að
taka við forsetaembættinu.
er það fylgi
sem Frelsis-
flokkurinn mælist nú með í
Austurríki. Hann hefur siglt
hratt fram úr gömlu valda-
flokkunum tveimur, sem
hafa stjórnað landinu
áratugum saman.
33%
2 1 . m A í 2 0 1 6 L A U G A R D A G U R12 f R é t t I R ∙ f R é t t A B L A ð I ð
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
9
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
8
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-8
5
C
8
1
9
8
0
-8
4
8
C
1
9
8
0
-8
3
5
0
1
9
8
0
-8
2
1
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K