Fréttablaðið - 21.05.2016, Page 18
Almannatryggingar og starfsgetumat:
nýtt kerfi – fyrir hvern?
Málþing - miðvikudaginn, 25. maí 2016 kl. 13-17
á Grand hótel (Gullteigur)
Dagskrá:
Ávarp: Ellen Calmon formaður ÖBÍ
Tillögur ÖBÍ og sérálit við skýrslu nefndar um endurskoðun laga um
almannatryggingar
Lagaumhverfi: Sigurjón Unnar Sveinsson lögfræðingur ÖBÍ
Starfsgetumat: Guðrún Hannesdóttir félagsfræðingur
Nefndarvinna og sérálit: Ellen Calmon formaður ÖBÍ
Framfærsla: Sigríður Hanna Ingólfsdóttir félagsráðgjafi ÖBÍ
Vinnumarkaður: Halldór Sævar Guðbergsson varaformaður ÖBÍ
Kaffihlé
Áhrif nýs kerfis á möguleika fólks til atvinnu og framfærslu?
Dóra Ingvarsdóttir, Gigtarfélagi Íslands
Guðmundur Ingi Kristinsson, Sjálfsbjörg
Friðrik Sigurðsson, Landssamtökunum Þroskahjálp og Aileen Svensdóttir, Átaki
Sylviane Pétursson-Lecoultre, Geðhjálp
Heiðdís Dögg Eiríksdóttir, Félagi heyrnarlausra
Pallborðsumræður
Lokaorð: Halldór Sævar Guðbergsson varaformaður ÖBÍ
Fundarstjóri: Sigmar Guðmundsson fjölmiðlamaður
Rit- og táknmálstúlkun í boði
Ókeypis aðgangur - Allir velkomnir á meðan húsrúm leyfir
Íslenska vorið 2016: upp
rennur lýðræði fyrir okkur öll
Menntun, rannsóknir og nýsköpun eru undirstaða efnahagslegra framfara
og hryggjarstykki í uppbyggingu
velferðar- og þekkingarsamfélaga.
Háskólakerfið á Íslandi hefur vaxið
hratt á undanförnum árum og
háskólar breyst frá því að sinna fyrst
og fremst kennslu í alþjóðlega viður-
kenndar rannsóknastofnanir þar
sem öflun og hagnýting þekkingar
er drifkraftur starfsins.
Mikilvægi háskólastarfs fyrir fram-
þróun samfélaga endurspeglast í því
hve fjármögnun háskóla er ofarlega á
forgangslista nágrannaþjóða okkar.
Sem dæmi má nefna að Finnland jók
framlög til háskólastigsins um 118%
á árunum 1999-2010. Á sama tíma
jukust framlög til háskóla á Íslandi
um einungis 7%, en löndin vörðu
jafnmiklu fé á nemanda á háskóla-
stigi árið 1999. Ísland hefur lengi
staðið hinum norrænu ríkjunum að
baki þegar kemur að fjármögnun
háskólastigsins og hefur nú dregist
enn meira aftur úr. Í þessu samhengi
er rétt að taka fram að háskólastigið
er síst umfangsmeira á Íslandi en í
nágrannalöndum, aðeins á síðustu
árum hefur svipað hlutfall útskrifast
með háskólagráðu á Íslandi og að
meðaltali á Norðurlöndum.
Blikur hafa verið á lofti um vilja
stjórnvalda til aukinna fjárfest-
inga í háskólastiginu hér á landi.
Vísinda- og tækniráð, þar sem for-
sætisráðherra er formaður, setti fram
metnaðarfulla stefnu árið 2014 þar
sem gert var ráð fyrir stórauknum
stuðningi við háskólana. Sam-
kvæmt stefnunni er markmiðið að
ná meðal tali OECD-landanna í fjár-
mögnun háskólakerfisins á þessu ári
og meðaltali Norðurlanda árið 2020.
Því skýtur skökku við að í fjármála-
áætluninni sem ríkisstjórn Íslands
hefur lagt fram er lítil sem engin
aukning á framlögum til háskólanna
og því um algjöra stefnubreytingu
að ræða. Sú breyting er óskiljanleg
í ljósi þess að í dag þarf 60% meira
fé til þess að ná meðaltali OECD og
120% aukningu til að ná Norður-
löndunum. Því er ljóst að Ísland
mun dragast enn meira aftur úr hvað
varðar uppbyggingu háskólakerfis-
ins á næstu fimm árum nái fjármála-
áætlun þessi óbreytt fram að ganga,
þvert á stefnu Vísinda- og tækniráðs.
Alvarlegar afleiðingar
Afleiðingar áframhaldandi undir-
fjármögnunar háskólastigsins munu
verða alvarlegar. Háskólar geta ekki
tryggt gæði rannsókna og kennslu
með þessu áframhaldi. Langvarandi
fjárhagslegt svelti gerir háskólunum
einfaldlega ekki kleift að sinna hlut-
verki sínu með tilheyrandi afleið-
ingum fyrir menntun og nýsköpun
í landinu.
Sem þjóð verðum við að spyrja
okkur hvort við viljum háskólakerfi
sem styður við framþróun íslensks
samfélags. Ef Ísland vill stefna í sömu
átt og nágrannaþjóðir okkar verðum
við að efla fjármögnun háskóla-
kerfisins svo það megi tryggja að
ungt fólk hafi aðgengi að menntun af
sömu gæðum og þar tíðkast. Aðeins
þannig geta íslenskir háskólar sinnt
þekkingarsköpun sem stuðlar að
uppbyggingu þekkingarsamfélags
og tryggir samkeppnishæfi Íslands á
alþjóðavettvangi.
Þekkingarsköpun
háskólasamfélagsins:
framtíð þjóðar
Stjórn Vísindafélags Íslendinga
Þórarinn Guðjónsson
forseti, prófessor, Háskóla Íslands
Erna Magnúsdóttir
rannsóknasérfræðingur, Háskóla Íslands
Kristján Leósson
framkvæmdastjóri, Nýsköpunarmiðstöð Íslands
Margrét Eggertsdóttir
rannsóknaprófessor, Stofnun Árna Magnússonar
Þórólfur Þórlindsson
prófessor, Háskóla Íslands
Anna Ingólfsdóttir
prófessor, Háskóla Reykjavíkur
Steinunn Gestsdóttir
prófessor, Háskóla Íslands
Upp úr 2010 fylgdist heims-byggð öll með því sem síðar var kallað arabíska vorið.
Konur og karlar í arabalöndunum
virkjuðu samfélagsmiðla á borð við
Facebook og Twitter til að skipu-
leggja, skrásetja og opinbera viðleitni
sína til þess að losna undan harð-
stjórn. Um sama leyti var almenn-
ingur á Íslandi virkjaður til að semja
stjórnarskrá og þar með var sýnt
fram á að unnt væri að nota fjölmiðl-
unartæki tuttugustu og fyrstu aldar
til þess að skapa þátttökulýðræði.
Íslendingar brugðust við einokun
elítunnar á ákvarðanatöku með því
að leggja nýjan vettvang til sameigin-
legrar ákvarðanatöku almennings,
með þjóðfundum, stjórnlagaþingi og
loks þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja
stjórnarskrá.
Reyndar voru ákvarðanir þess-
ara aðila ekki bindandi, en þar var
sett fram og kynnt sameiginlegt
val almennings, og var þar með
vefengdur með afgerandi hætti hefð-
bundinn ákvörðunarréttur elítunnar.
Íslendingar luku upp rými sem gerði
almenningi kleift að skapa nýja fram-
tíðarsýn fyrir landið, með samspili
samfélagsmiðla og opinna umræðna,
og þar með varð til ný tegund þátt-
tökuferlis sem varð að fyrirmynd fyrir
„opinbera“ ritun stjórnarskrár, og var
það gert með leyfi stjórnarinnar.
Það eru orð að sönnu að tilraun
Íslendinga til stafræns lýðræðis
sannar að það er unnt að beita sam-
félagsmiðlum tuttugustu og fyrstu
aldar til þess að brydda upp á nýjum
aðferðum til þátttöku, þannig að
allir sitji „við sama borð“, eins og
það er orðað í formála nýju stjórnar-
skrárinnar. Slíkt lýðræði er gert af og
fyrir 99%, eða „okkur hin“, eins og
stjórnmálafræðingurinn Jodi Dean
orðaði það svo skýrt. Það er byggt
á sameiginlegum staðli þar sem
gerð er krafa um að við komum
að ákvörðunum sem hafa áhrif á
líf okkar, og að því valdi sem við
lútum. Eins og íslenskur þátttak-
andi orðaði það: „Það er hægt, við
sýndum fram á það.“
Tækifæri til að leiða nýtt átak
Á Íslandi eru aðstæður nokkuð sér-
stakar. Þjóðin er fámenn, menntuð
og einsleit, og nánast allir hafa
aðgang að Netinu. Því hafa ýmsir
dregið í efa að nýjungar sem Íslend-
ingar hafa lagt fram í stjórnarskrár-
málum geti nýst í lagskiptu, fjöl-
þjóðlegu, fjöltyngdu og fjölmennu
samfélagi á borð við Bandaríkin eða
Indland. Auðvitað er spurningunni
ósvarað, en við viljum benda á að
lítil ríki hafa oft haft forgöngu um
að breikka og dýpka framkvæmd
lýðræðis. Til dæmis var Nýja-Sjá-
land fyrsta ríkið, þar sem almennur
kosningaréttur fullorðinna var tek-
inn upp árið 1893, og nú þykir það
sjálfsagt í lýðræðisríki, þótt slíkur
kosningaréttur hafi ekki alls staðar
verið tekinn upp. Nú vísa Íslend-
ingar heimsbyggðinni veginn að lýð-
ræðisvæddu lýðræði, með nýtingu
hátæknitækja tuttugustu og fyrstu
aldar, þannig að nýjar hugmyndir
um þátttöku almennings komast í
framkvæmd og færa stjórnarskrár-
bundið lýðræði upp í æðra veldi.
Því miður hefur Alþingi ekki fullgilt
stjórnarskrána og hunsað ráðgef-
andi þjóðaratkvæðagreiðsluna 2012,
þar sem um tveir af hverjum þremur
kjósendum samþykktu hana.
Vorið 2016 færir Íslendingum
tækifæri til að leiða nýtt átak og
von um lýðræðislegar breytingar.
Kraftvægi skapaðist þegar for-
sætisráðherra sagði af sér í kjölfar
mótmæla, og nú þrýsta aðgerða-
sinnar á Alþingi til þess að full-
gilda stjórnarskrána eftir öll þessi
ár. Í maílok verður haldinn opinn
borgarafundur um framtíð lýð-
ræðis og stjórnarskrána. Eins og
vera ber þegar þátttaka er almenn
verður þessu vonandi fylgt eftir
með nokkurra daga almennri
greiningu stöðunnar og samræð-
um um sjálfa stjórnarskrána. Eins
og einn Íslendinganna orðaði það:
„Við erum bara lítið eyland en við
höfum hlutverki að gegna í heims-
sögunni. Ísland er eins og tilrauna-
stofa, það er tilraunastofa fyrir nýja
heimsmynd … Það sem við gerum í
grasrótinni, með því að veita öllum
aðild að hugsjónum okkar og gild-
um … það er nýjung í þróun lýðræð-
is.“ Við sendum ykkur kveðju yfir
Atlantsála og sameinumst ykkur
í von og baráttu um að þessi nýja
mynd lýðræðis verði loks að veru-
leika: lýðræði fyrir okkur öll.
Ólöf Pétursdóttir þýddi
Cricket Keating
prófessor í
stjórnmálafræðum við
Ohio State University
í Bandaríkjunum
Susan Burgess
prófessor í
stjórnmálafræðum við
Ohio State University
í Bandaríkjunum
Við sendum
ykkur kveðju
yfir Atlantsála
og sameinumst ykkur í von
og baráttu um að þessi nýja
mynd lýðræðis verði loks að
veruleika: lýðræði fyrir
okkur öll.
2 1 . m a Í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R18 S k o ð U n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-6
D
1
8
1
9
8
0
-6
B
D
C
1
9
8
0
-6
A
A
0
1
9
8
0
-6
9
6
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K