Fréttablaðið - 21.05.2016, Side 20

Fréttablaðið - 21.05.2016, Side 20
Sunnudagur 16.00 Demantamót í Rabat Sport 17.00 AT&T-mótið Golfstöðin 19.30 Breiðablik - KR Sport 00.00OKC - Golden State Sport 17.00 ÍBV - Víkingur Hásteinsvöllur 19.15 Valur - Þróttur Valsvöllur 19.15 Fjölnir - Vík Ó. Fjölnisvöllur 20.00 Breiðablik - KR Kópavogsv. Nýjast Handbolti „Ég hafði það alls ekki gott í Vestmannaeyjum. Ég var mikið einn og þetta var erfitt,“ segir Hákon Daði Styrmisson, leikmaður Hauka í Olís-deild karla í handbolta, Hákon Daði, sem fluttist tólf ára gamall til Vestmannaeyja, þurfti að flýja Eyjar vegna eineltis fyrr í vetur en hann samdi þá við Hauka. Það reyndist gæfuspor fyrir þennan 18 ára gamla hornamann. Hann fór á kostum með Haukum og þá sérstaklega í úrslitakeppninni þar sem hann skoraði í heildina 94 mörk. Hann stóð uppi sem Íslands- meistari með Haukum eftir odda- leik gegn Aftureldingu en hann skoraði tíu mörk í leiknum. „Ég fór að hugsa um sjálfan mig,“ segir Hákon Daði um ástæðu þess að hann yfirgaf Eyjar. „Ég setti mig í fyrsta sætið og fór að hugsa um minn feril. Ég tel mig hafa tekið rétta skrefið í átt að betri og stærri ferli. Ég þurfti bara að taka aðeins til hjá mér.“ Eineltið í garð Hákonar Daða fólst í útilokun eins og hann segir frá. Þetta varð að stórmáli innan íBV og í Eyjum fyrir áramót en málið var rannsakað og steig þjálfarinn, Arnar Pétursson, til hliðar á meðan greitt var úr málinu sem endaði með því að Hákon fór. Eineltið var innan ÍBV en hjá jafnöldrum Hákonar, ekki reyndari mönnum liðsins og þjálfara. „Mér leið aldrei illa að fara á æfingar. Eldri strákarnir í meistaraflokknum tóku ekkert eftir þessu því þetta var aldrei í gangi á æfingum með þeim. Ég fékk þvílíkan stuðning frá eldri strákunum og Arnari þjálfara,“ segir Hákon sem sagði engum frá raunum sínum fyrr en hann gat ekki meir síðasta vetur. „Ég fer til Adda þjálfara og segi honum frá þessu því ég vildi fara. Eins leiðinlegt og honum fannst þetta þá skildi hann mig alveg og stóð þétt við bakið á mér. Fyrst þegar við töluðum saman sagði ég honum ekkert ástæðuna. Þarna vissi enginn hvað var í gangi. Mamma og pabbi vissu það ekki einu sinni. Þegar ég segi Arnari frá þessu brýst allt út og ég  brotna niður,“ segir Hákon. Skildi margt eftir í Eyjum Það getur stundum verið þannig í eineltismálum að fórnarlambinu finnst það eiga sök í máli og þann- ig leið Hákoni á tímabili. „Eftir að vera svona útilokaður í nokkur ár fer maður að efast um sjálfan sig. Maður efast alltaf um hvort fólk vilji hafa mann með sér og hvort maður eigi eitthvað að segja,“ segir Hákon Daði sem er á mun betri stað í dag. „Mér líður vel í dag. Það breyttist mikið þegar ég kom upp á land og bara um leið og ég kom þessu frá mér. Ég var með þetta í bakpok- anum lengi en um leið og ég tæmdi hann og þetta hætti að bögga mig fór boltinn að rúlla. Ég fékk meiri spiltíma hjá Gunna hjá Haukunum og þá kom sjálfstraustið.“ Hákon Daði spilaði frábærlega í einvígi Hauka gegn ÍBV og héldu þar margir að hann var í hefndarhug. En svo var ekki. Þar var hann að spila gegn mönnunum sem stóðu með honum og þjálfaranum sem vildi allt fyrir hann gera. „Það var mikill kærleikur í þeim. Bróðir minn [Andri Heimir Friðriks- son, leikmaður ÍBV] var æðislegur og þetta styrkti samband okkar til muna. Svo voru allir strákarnir; Teddi, Aggi, Dagur, Maggi Stef, Sindri, Grétar, Andri Heimir og Addi alveg æðislegir,“ segir Hákon Daði sem saknar eðlilega Eyja að hluta til. „Fjölskyldan mín er í Eyjum og ég sakna hennar að sjálfsögðu. Ég átti líka ágætis vini og tvo bræður sem ég er í sambandi við á hverjum degi. Svo átti ég gott samband við mömmu og pabba. Að flytja leysti ekki öll vandamálin en það er eitt- hvað sem ég þurfti að gera,“ segir Hákon Daði. tomas@365.is Var útilokaður og einn í Eyjum Hákon Daði Styrmisson sló í gegn í úrslitakeppninni með Haukum og var nálægt markameti. Hann þurfti að yfirgefa Vestmannaeyjar vegna eineltis og opnar sig um veturinn í samtali við Fréttablaðið. 13.30 Formúla E: Berlín Sport 15.30 ÍA - Fylkir Sport 16.15 Man. Utd - C. Palace Sport2 17.00 AT&T-mótið Golfstöðin 00.30 Toronto - Cleveland Sport 14.00 KA - Huginn KA-völlur 14.00 KFF - Keflavík Fjarðab.höll. 14.00 HK - Þór Kórinn 16.00 Grindavík - Leiknir F. Grindav. 16.00 ÍA - Fylkir Norðurálsvöllur Laugardagur inkasso-deildin Fram -Haukar 1-1 0-1 Haukur Ásberg Hilmarsson (40.), 1-1 Ivan Bubao (65.). Fram nældi í sín fyrstu stig í Inkasso-deildinni en rauðklæddu úr Hafnarfirði eru með fjögur stig eftir þrjá leiki. Selfoss - Leiknir R. 0-1 0-1 Kári Pétursson (36.). Lánsmaður frá Stjörnunni, Kári Pétursson, tryggði Leikni R. sigur á Selfossi. Leiknir er á toppi deildar- innar með fullt hús stiga eftir þrjá leiki, en Selfoss er með þrjú stig. bætist í hóp ólympíufara? Á sunnudag keppir sveit Íslands í 4x100 m fjórsundi á EM í London en hún keppir nú að því að bæta sinn besta tíma til að komast í hóp sextán bestu sveita heims. Þeim verður boðið til þátttöku á ÓL í Ríó í sumar. Tvær úr sveitinni, Eygló Ósk Gústafsdóttir og Hrafnhildur Lúth- ersdóttir, hafa tryggt sér keppnisrétt á ÓL í sínum einstaklingsgreinum en þetta er stærsta tækifæri Jóhönnu Gerðu Gústafsdóttur, systur Eyglóar, og Bryndísar Rúnar Hansen til að komast til Ríó. „Ég vil gera allt sem ég get til að koma þeim til Ríó og að Ísland fari með sem flesta þangað,“ sagði Eygló Ósk við Fréttablaðið. Hrafnhildur segir að sveitin stefni hátt. „Við urðum í fjórða sæti á EM í fyrra og það væri gaman að ná í verðlaun núna,“ segir hún. Hákon Daði Styrmisson flúði Vestmannaeyjar vegna eineltis en stóð uppi sem óvænt hetja Hauka og Íslandsmeistari. FRéTTABLAðið/AnTOn BRinK Þarna vissi enginn hvað var í gangi. Mamma og pabbi vissu það ekki einu sinni. Hákon Daði Styrmisson Sund Hrafnhildur Lúthersdóttir kórónaði frábæra frammistöðu sína á EM í 50 m laug í London með því að vinna brons í 200 m bringu- sundi í gær. Hún vann silfur í 100 m bringusundi á miðvikudag en þetta eru fyrstu verðlaun ófatlaðs íslensks sundmanns í 90 ára sögu mótsins. „Ég gæti bara ekki verið ánægð- ari,“ sagði Hrafnhildur Ósk við Fréttablaðið í gær. Hún synti á 2:22,96 mínútum og bætti Íslands- met sitt í greininni um tíu hund- raðshluta úr sekúndu. En hún komst í fyrsta sinn undir 2:23,00 mínútur sem hún hafði stefnt lengi að. „Eftir að ég komst svo nálægt 23 sekúndunum í fyrra hefur það verið markmið mitt að komast undir þær. Þegar það tekst þá er maður kom- inn í hóp með þeim bestu í heimi,“ segir Hrafnhildur sem stefnir á að ná langt á Ólympíuleikunum í Ríó í ágúst. „Nú fer ég aftur til Flórida og æfi á fullu síðustu tvo mánuðina fyrir Ríó. Klára öll smáatriði og einbeiti mér að því að fá eins mikið úr þessu og ég get. Það var líka frábært að fá þetta mót til að sjá hvar ég stend. Og það gekk allt upp. Ég er ánægð með árangurinn og nú er bara að sjá hvernig framhaldið verður.“ – esá Brons bættist í verðlaunasafn Hrafnhildar frá EM Hrafnhildur, lengst til hægri, með bronsverðlaun sín. FRéTTABLAðið/EPA vinnur van gaal bikarinn? Manchester United og Crystal Palace eigast við í úrslitaleik ensku bikarkeppninnar sem fer að venju fram á Wembley-leik- vanginum í Lund- únum. Leikurinn hefst klukkan 16.30 og er í beinni útsendingu á Stöð 2 Sport. Þessi sömu lið áttust við í dramatískum úrslita- leik árið 1990 þar sem niðurstaðan var 3-3 jafntefli. Spila þurfti aftur og hafði þá United betur, 1-0. Það er mikið í húfi fyrir Louis van Gaal, stjóra United, en þetta er eini mögu- leiki hans á titli þetta árið. Ef United vinnur í dag verður það í tólfta sinn í sögu bikarsins sem liðið verður meistari og myndi félagið jafna þar með árangur Arsenal sem er í dag sigursælasta lið enska bikarsins. 2 1 . m a í 2 0 1 6 l a u G a R d a G u R20 S p o R t ∙ F R É t t a b l a ð i ð Sport 2 1 -0 5 -2 0 1 6 0 3 :5 8 F B 0 9 6 s _ P 0 7 7 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 6 8 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 9 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 9 8 0 -8 0 D 8 1 9 8 0 -7 F 9 C 1 9 8 0 -7 E 6 0 1 9 8 0 -7 D 2 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.