Fréttablaðið - 21.05.2016, Síða 30
Lífríki Mývatns sýnir augljós og alkunn merki um ofauðgun. Við því hefur verið varað aftur og aftur á undanförnum árum að eitthvað hafi farið illilega úrskeiðis og grípa þurfi til aðgerða. Nú bregður svo
við að vart hefur áður sést ástand eins og við
vatnið síðastliðin tvö sumur þegar óhemju
magn svokallaðra blábaktería hreinlega yfir-
tók lífríkið suma daga.
Þeir sem gerst þekkja til segja að ástandið í
vatninu hljóti að tengjast athöfnum manna,
því Mývatn er frá náttúrunnar hendi við-
kvæmt og mjög næringarríkt og því virðist
sem hlutfallslega lítil viðbót við náttúrulegt
innflæði næringarefna hafi dugað til að raska
náttúrulegu jafnvægi vatnsins og höggvið svo
nærri lífríki þess sem raun ber vitni.
Grugg
Leirlos er það kallað á meðal heimamanna
þegar Mývatn gruggast upp af sýanóbakterí-
um, en það eru ljóstillífandi og niturbindandi
bakteríur [áður nefndar blágrænir þörungar]
sem ná miklum þéttleika í næringarríkum
vötnum þar sem mikið er af fosfór en hlut-
fallslega lítið af köfnunarefni (nitri).
Þessar bakteríur eru, sýnir reynslan um heim
allan, algengur fylgifiskur áburðarmengunar
af völdum landbúnaðar eða þéttbýlis og eru
oft undanfari ofauðgunar og dauða í vötnum.
Þær skyggja meðal annars á vatnsbotninn sem
veldur því að botngróður hverfur og ýtir það
enn frekar undir ofauðgun. Margar tegundir og
afbrigði þessara blábaktería eru eitraðar. Mörg
eiturefni koma við sögu, sum bráðhættuleg
mönnum og búfénaði, önnur verka sljóvgandi
á vatnalífverur – þó engar sterkar vísbendingar
séu enn um slíkt í Mývatni.
Heimildir eru til um leirlos í Mývatni á
fyrri hluta 20. aldar og mælingar á litarefnum
í borkjarna úr Mývatni sýna að þess hefur
Svavar
Hávarðsson
svavar@frettabladid.is
Staðreyndir
öskra á aðgerðir við
Mývatn
ávallt gætt þar í einhverjum mæli. Það telst
því náttúrulegt í vatninu og má rekja til fos-
fórríks grunnvatns í Ódáðahrauni.
Ráðgáta
Árni Einarsson, forstöðumaður Náttúru-
rannsóknastöðvarinnar við Mývatn (RAMÝ),
hefur sagt að leirlosið sé ein stærsta óleysta
gátan í Mývatni. En nýlegar breytingar á lífríki
Mývatns, einkum á botngróðri og dýrum sem
honum tengjast, verði varla skýrðar nema gert
sé ráð fyrir að leirlos hafi aukist á síðustu ára-
tugum, og þá eftir 1970, en engar beinar mæl-
ingar eru til fyrir þann tíma. Leirlos kemur
ekki á hverju ári og er engin sjáanleg regla
hvað það snertir önnur en sú að mýlausum
árum, sem koma á um það bil sjö ára fresti
– Mývatnssveiflan svokallaða – fylgir alltaf
mjög mikið leirlos og er sumarið 2015 dæmi
um slíkt ástand.
Á síðustu þremur árum hefur einnig komið
í ljós að fleiri en ein tegund baktería mynda
leirlosið og virðast áraskipti að því hver hefur
yfirhöndina. Þessi vitneskja byggir á því að á
undanförnum árum hafa orðið miklar fram-
farir í rannsóknum á þessum bakteríum
og má rekja það til nýrrar tækni til efna- og
erfðagreininga. Leirlosið sumarið 2014 var til
dæmis af völdum annarrar tegundar en það
sem birtist í fyrrasumar, þegar niðurstöður
mælinga sýndu tólffalt það magn sem talið er
óhóflega mikið í leiðbeiningum Alþjóða heil-
brigðismálastofnunarinnar (WHO).
↣
Neyðarköll berast úr öllum áttum vegna ástandsins í
Mývatni – heimamenn, alþingismenn, vísindamenn og
almenningur krefjast aðgerða stjórnvalda. Fyrirliggjandi
vitneskja fræðimanna, sérlög um Mývatn og Laxá, vá
listaskráning Umhverfisstofnunar og alþjóðasamningar
benda í eina átt. Ráðherra hefur skipað samráðshóp.
Kölski meig á móti sólinni
og úr varð Mývatn
Í Þjóðsögum Jóns Árnasonar segir þannig
frá sköpun Mývatns:
Þegar guð drottinn hafði skapað himin og
jörð virti hann það fyrir sér og sá, að það var
harla gott. En kölski var ekki á því; honum
sveið það hversu fagur heimurinn væri.
Hann tók það ráð í reiði sinni, að hann meig
á móti sólinni og ætlaði að myrkva með
því þennan dýrðar depil sköpunarverksins.
En ekki varð nú af því samt, því úr migu
kölska myndaðist Mývatn á Norðurlandi;
enda þykir það jafnan ljótt stöðuvatn, og þó
mývargurinn, er vatnið dregur án efa nafn
af, enn verri, og er hann sannkallað kval-
ræði fyrir menn og málleysingja umhverfis
vatnið.
Ekki gæfulegt
Sú mynd sem þessa dagana er dregin upp er
ekki gæfuleg. Fyrst er að telja að hinn frægi
kúluskítur heyrir sögunni til, og er um bein
orsakatengsl við ofauðgun vatnsins að ræða
og í hvarfi hans kristallast vandinn. Eins og
áður segir er vart nokkrum vafa undirorpið
að athafnir manna hafi aukið bakteríuvöxt-
inn svo óhóflega með losun næringarefna í
Mývatn – og þar komi meðal annars til frá-
rennsli frá þéttbýli, áburðargjöf og iðnrekstri
sem skilar sér til Mývatns með grunnvatns-
straumum. Eins getur verið að enn þá gæti
áhrifa frá Kísilverksmiðjunni við Mývatn sem
lokað var 2004, vegna rofs á setlögum sem losa
næringarefni sem áður voru bundin.
Kúluskítur hefur fundist í einu stöðuvatni
í Japan fyrir utan Mývatn og þar var brugðið
á það ráð, til að leysa sama vanda og blasir
nú við í Mývatni, að veita öllu skólpvatni frá
mannabyggð frá vatnakerfinu – sem gjör-
breytti ástandinu þar til hins betra og ofauðg-
un vatnsins hefur verið snúið við að mestu.
Eitt má gera strax
Í raun er því aðeins um eitt að ræða til að
stemma stigu við þessari þróun, og það er
að tryggja að sem allra minnst af næringar-
efnum frá mannabyggð (köfnunarefni og fos-
fór) berist í grunnvatnið og þannig í Mývatn.
Frárennslismál Skútustaðahrepps hafa því að
undanförnu verið í fréttum, og sú staðreynd
að sveitarfélagið getur ekki með nokkru móti
komið til móts við þær kröfur sem lög og regl-
ur setja því við endurbætur sem nauðsynlegar
eru. Í þessu ljósi verður að hafa hugfast að um
nokkurt skeið hefur verið bent á gríðarlega
fjölgun ferðamanna, sem enn eykur á álag á
lífríkið í Mývatni og mikilvægi mótvægisað-
gerða. Yfir sumartímann sýna rannsóknir að
yfir 40 prósent af erlendum gestum okkar
koma í Mývatnssveit og skipta því nokkrum
hundruðum þúsunda.
Því er ákallið til stjórnvalda hávært – eða
neyðarkallið. Fyrst og síðast frá forsvars-
mönnum sveitarfélagsins sem hafa ítrekað
farið á fund ráðamanna og gert grein fyrir
ástandinu, eins og Fréttablaðið sagði frá strax
í vetur. Fréttum fylgdu ályktanir hagsmuna-
aðila og náttúruverndarfólks – frá Veiðifélagi
Laxár og Krákár, Veiðifélagi Mývatns, frá Fjör-
eggi, félagsskap heimamanna um náttúru-
vernd og heilbrigt umhverfi í Mývatnssveit,
og frá Landvernd, sem stendur fyrir undir-
skriftasöfnun á meðal almennings til að ýta
við stjórnvöldum.
2 1 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R30 h e L G i n ∙ F R É T T a B L a ð i ð
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
7
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-7
B
E
8
1
9
8
0
-7
A
A
C
1
9
8
0
-7
9
7
0
1
9
8
0
-7
8
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K