Fréttablaðið - 21.05.2016, Qupperneq 36
Ástæða heimsóknarinnar var leið-
togafundur Norðurlandanna og
Bandaríkjanna. Einungis rúmur
mánuður er síðan Sigurður Ingi
tók við embætti forsætisráðherra,
en áður var hann sjávarútvegs- og
landbúnaðarráðherra. Elsa viður-
kennir að fyrir tveimur mánuð-
um hefði henni ekki dottið í hug
að fram undan væri veisla í Hvíta
húsinu. „En svona getur lífið
breyst snögglega,“ segir hún. „Það
var stórkostleg upplifun að koma
í Hvíta húsið og jafnframt mikill
heiður. Forsetahjónin, Obama og
Michelle, hafa einstaklega sterka
nærveru og manni líður mjög vel
í návist þeirra. Andrúmsloftið var
afslappað og notalegt. Fyrirfram
hafði ég búist við að allt yrði mun
formlegra. Bandaríkjamenn tóku
vel á móti okkur og öryggisgæsla
var mikil,“ segir Elsa.
Í buxum af mömmu
Á meðan norrænir forsætisráð-
herrar funduðu með forsetanum
fengu makar leiðsögn um nær-
liggjandi gallerí með Michelle.
„Okkur var boðið að skoða Ren-
wick-galleríið sem er stórt lista-
safn. Maður fann svolítið barnið
í sjálfri sér með því að ganga um
sali þessa safns þar sem voru ein-
stök listaverk. Á eftir komu börn
á grunnskólaaldri sem sungu og
dönsuðu fyrir okkur. Þarna sá
maður hvernig börnin horfðu á
forsetafrúna með aðdáunaraugum.
Hún ræddi síðan við þau um gildi
menntunar. Þaðan lá leiðin í gesta-
hús Hvíta hússins þar sem bornar
voru fram léttar veitingar.“
Þegar Elsa er spurð hvort hún
hafi mátt ráða fatavali í heimsókn-
inni, svarar hún: „Sem betur fer
fengum við upplýsingar um klæða-
burð fyrirfram. Þar sem þetta var
opinber heimsókn fengum við
ítar lega dagskrá þar sem tekið
er fram hvernig sé heppilegt að
klæðast. Ég mátti til dæmis klæð-
ast buxum þegar ég fór á safnið.
Ég valdi föt sem eru mest ég,“ út-
skýrir Elsa og bætir við að hún
hafi klæðst gömlum buxum af lát-
inni móður sinni. „Hún var sauma-
kona og valdi góð efni. Ég hélt að
mamma hefði saumað buxurn-
ar en þegar ég skoðaði þær betur
var inni í þeim fatamiði sem á stóð
Michelle. Það kom mér skemmti-
lega á óvart og var kannski tákn-
rænt. Ég vissi það ekki þegar
ég pakkaði þeim niður. Í kvöld-
veislunni klæddist ég síðum kjól
sem Kolbrún Sveinsdóttir saum-
aði og hannaði. Ég þekki hand-
bragð hennar og verk og leitaði
því til hennar. Eiginmaðurinn var
í nýjum smóking sem hann keypti
fyrir þetta tilefni,“ segir Elsa að-
spurð.
Óvænt veisla
Þau hjónin höfðu aldrei komið til
Washington áður. „Það var líka
upplifun að kynnast borginni. Við
fengum þrjá tíma þegar formlegri
dagskrá lauk til að skoða okkur
um. Við skoðuðum meðal annars
heimili George Washington sem er
gömul plantekra fyrir utan borg-
ina. Þar var þrælahald á sínum
tíma. Það var forvitnilegt að sjá
þennan stað og við fengum höfð-
inglegar móttökur þar eins og ann-
ars staðar.“
Þegar Elsa er spurð hvort hún
hafi átti von á því að sitja veislu í
Hvíta húsinu, svarar hún því neit-
andi. „Síst af öllu átti ég von á því
og ekki Sigurður Ingi heldur. Þetta
er staðfesting á því að maður veit
aldrei hvað kemur upp í hendurn-
ar á manni,“ svarar hún.
RÓmantÍk Í fRamsÓkn
Elsa vill ekki meina að sitt eigið
líf hafi breyst mikið eftir að Sig-
urður Ingi varð forsætisráðherra.
„Ég myndi heldur ekki vilja að það
breyttist. Það sem hefur breyst er
að hann er meira fjarverandi en
áður. Ég er heima í sveitinni en
hann í bænum. Hlutirnir gerð-
ust snöggt og það var enginn tími
fyrir hann að undirbúa sig fyrir
þetta nýja starf. Ég lít á þetta sem
verkefni til að leysa og við fjöl-
skyldan stöndum á bak við hann,“
segir Elsa sem starfar hálfan dag-
inn sem gæðastjóri hjá Landstólpa
en sinnir hrossum þeirra hjóna þar
fyrir utan. Þau eru með 25 hross
og eru öflugir hestamenn. Elsa
og Sigurður Ingi búa á sveitabæ í
Hrunamannahreppi. Elsa er alin
upp í Garðabænum en á ættir að
rekja í Þingeyjarsýslu þar sem
hún dvaldi í sveit á sumrin. „Þar
finnst mér rætur mínar liggja,“
segir hún.
Elsa og Sigurður Ingi höfðu
þekkst lengi áður en samband
þeirra hófst. „Hann vann að
sveitar stjórnarmálum og ég vann
sem framkvæmdastjóri Heil-
brigðis eftirlits Suðurlands. Við
fórum að horfa á hvort annað
á kjördæmaþingi Framsóknar-
flokksins. Það var nú ekki róman-
tískara,“ segir hún og hlær. Þau
gengu síðan í hjónaband árið 2009.
RáðheRRann gÓðuR kokkuR
Elsa segir að þau reyni að slaka á
í frístundum. „Okkar tómstund-
ir eru með hestunum. Þar fáum
við hvíld og getum hlaðið batterí-
in. Eftir að hann tók við sem ráð-
herra kunnum við vel að meta
samverustundir í rólegheitum.
Þessar stundir eru dýrmætar,“
segir Elsa sem er í hefðarkvenna-
hóp sem fer saman í hestaferðir.
„Ég er að fara reiðtúr í dag með
góðum vinum en Sigurður Ingi
sinnir sinni vinnu. Það verður
riðið hér um Hrunamannahrepp-
inn og endað með grillveislu. Á
morgun ætla ég á síðustu æfingu
kirkjukórsins hér fyrir vortón-
leika í Skálholti á mánudag. Um
aðra helgi verður síðan stúdents-
veisla hjá okkur þegar örverpið út-
skrifast frá Laugarvatni.“
Elsa segir að Sigurður Ingi sé
kokkurinn á heimilinu og eldi mjög
góðan mat. „Hann er duglegur að
elda fyrir mig,“ segir hún. „Þegar
ég er orðin leið á skyri og súrmjólk
keyri ég í bæinn og fæ að borða
hjá honum.“
Óvægin umRæða
Elsa var á fullu í pólitík og hefur
starfað mikið innan Framsóknar-
flokksins í gegnum árin. Hún
hefur þó dregið í land eftir að Sig-
urður Ingi fór á þing. „Framsókn-
arflokkurinn leiddi okkur saman.
Sigurður Ingi verður líklegast
fyrir hörðustu pólitísku umræð-
unni hér heima og við erum ekki
alltaf sammála þótt við endum um-
ræðuna með bros á vör,“ segir hún
hlæjandi.
Þegar hún er spurð hvort hún sé
viðkvæm fyrir opinberri umræðu
um eiginmanninn, segir Elsa: „Ég
er meira viðkvæm fyrir umræð-
unni um Framsóknarflokkinn.
Mér finnst hún óvægin. Ég vona
að við berum gæfu til að vera hóf-
stilltari í orðum og sanngjarnari
hvert við annað.“ elin@365.is
fRamsÓkn leiddi okkuR saman
Forsætisráðherrahjónin Elsa Ingjaldsdóttir og Sigurður Ingi Jóhannsson voru gestir Baracks og Michelle Obama í Hvíta
húsinu um síðustu helgi. Elsa segir að ferðin hafi verið einstaklega ánægjuleg og margt hafi komið sér á óvart.
Þau kynntust í Framsóknarflokknum og hafa bæði sterkar skoðanir á pólitík. Hún hefur þó dregið úr starfi sínu fyrir flokkinn.
Glæsileg í sérsaumuðum kjól sem Kolbrún Sveinsdóttir hannaði. Elsa, Michelle,
Sigurður Ingi og Barack Obama í Hvíta húsinu.
Okkar tómstundir
eru með hest-
unum. Þar fáum við hvíld
og getum hlaðið batt-
eríin.
Koma
millifyrirsögn
í eina línu
Viðurkenndur
bókari
Gagnlegt og áhugavert nám sem nýtist þér
Viðurkenndur bókari
Lykill að góðu starfi
Nám til undirbúnings fyrir próf á vegum atvinnu- og nýsköpunarráðuneytisins skv, 43. grein laga
nr. 145/1994 um bókhald. Kennslan fer fram í samvinnu við KPMG. Kennt er þrjá daga í viku frá
kl. 16:30 – 19:30.
Starfsmennt greiðir skólagjöld sinna félagsmanna.
INNRITUN STENDUR YFIR TIL 10. JÚNÍ. Sjá mk.is
inga.karlsdottir@
mk.is
Menntaskólinn í Kópavogi
sími: 594 4000
2 1 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R4 F ó L k ∙ k y n n i n G a R b L a ð ∙ X X X X X X X XF ó L k ∙ k y n i n G a R b L a ð ∙ h e L G i n
2
1
-0
5
-2
0
1
6
0
3
:5
8
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
9
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
9
8
0
-C
5
F
8
1
9
8
0
-C
4
B
C
1
9
8
0
-C
3
8
0
1
9
8
0
-C
2
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
9
6
s
_
2
0
_
5
_
2
0
1
6
C
M
Y
K