Fréttablaðið


Fréttablaðið - 21.05.2016, Qupperneq 72

Fréttablaðið - 21.05.2016, Qupperneq 72
Þetta eru tónleikar helgaðir minn-ingu kennara míns og meistara, sellósnillingsins Erlings Blöndals Bengtssonar. Þegar hann lést fyrir tæpum þremur árum fór ég að hugleiða hvernig ég gæti minnst hans með tónleikum. Ég hef aldrei fundið neinn hentugan ramma utan um þessa tónleika þangað til að mér tókst að semja við Listahátíð um að halda þessa tónleika í minningu hans. Mér fannst tilvalið að leita til nemenda minna sem eru í raun og veru barnabörn Erlings í tónlistarlegum skilningi. Ég þurfti að velja átta sellóleikara úr stórum hópi af nemendum sem ég hef haft í gegnum 35 ár hér á Íslandi. Svo fékk ég til liðs við mig yndislega söngkonu, Huldu Björk Garðarsdóttur, sem á að syngja einsöng í einu af þessum verkum. En við flytjum á þessum tón- leikum tvö verk eftir Villa-Lobos fyrir átta selló og söngrödd með dásamlegum texta sem Reynir Axelsson hefur þýtt alveg meistaralega. Síðan er Bachianas Brasileiras nr. 1 sem er bara fyrir átta selló, við endum tónleikana á því. Næst verður flutt ein einleikssvíta eftir Bach sem Mar- grét Árnadóttir sellóleikari flytur og svo er eitt yndislegt lag, sem er katalónskt þjóð- lag sem Pablo Casals sellósnillingur gerði heimsfrægt. Hann lék þetta alltaf í lok allra sinna tónleika eftir að hann þurfti að flýja sitt heimaland. Erling Blöndal Bengtson þarf nú vart að kynna á Íslandi. Móðir hans var íslensk en hann ólst upp í Danmörku. Faðir hans var danskur fiðluleikari og ég varð nemandi hans 1964 og var hjá honum sem nemandi í sjö ár. Á þeim tíma fékk ég það einstæða tækifæri frá honum að gerast aðstoðar- kennarinn hans. Það styrkti mig og hjálp- aði mér mikið í þeirri köllun sem ég hafði til að verða kennari. Ég kom til Íslands 1980 og hef kennt hérna og spilað síðan. Ástæðan fyrir þessum verkum er sú að Erling var alveg stórkostlegur flytjandi einleiksverka Bachs. Bæði þessi verk eftir Villa-Lobos tengjast Bach, þess vegna heita þau Bachianas Brasileiras. Hann var sellóleikari sjálfur hann Villa-Lobos og hann samdi þessi tvö verk undir sterkum áhrifum frá Bach. Mér fannst allt pró- grammið tengjast Erling. Ég flutti þetta síð- asta verk, Bachianas Brasileiras nr. 1, sem nemandi hans undir hans stjórn í Tivoli concert salnum 1968, þannig tengist þetta allt saman Erling. Ég vona að fólk flykkist að, því að Erling var búinn að gefa þess- ari þjóð mikið með list sinni í meira en 60 ár. Hann kom hingað sem undrabarn 14 ára gamall og síðustu tónleikana sína hélt hann á 75 ára afmælinu sínu. Hann var búinn að koma hingað geysilega oft og halda tónleika. Hann var óskaplega frænd- rækinn og hélt mikið upp á þetta land. Þegar hann fluttist til Bandaríkjanna þá hafði hann ekkert síður litið á Ísland sem sitt ættland, miklu frekar heldur en Dan- mörku.“ stefanthor@frettabladid.is Heldur tónleika í minningu kennara síns Gunnar Kvaran sellóleikari heldur á morgun, sunnudaginn 22. maí, tónleika í Laugarnes- kirkju til minningar um Erling Blöndal Bengtsson, kennara sinn og meistara. Gunnar Kvaran ásamt hljómsveitinni og Huldu Björk Garðarsdóttur söngkonu. Ég vona að fólk flykkist að, því að Erling var búinn að gefa þessari þjóð mikið með list sinni í meira en 60 ár. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, hlýhug og vináttu við andlát og útför elskulegs föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, Ólafs Árna Thorarensen kaupmanns á Siglufirði. Þakkir til allra þeirra er minntust hans og sérstakar þakkir til starfsfólks hjúkrunarsviðs Sjúkrahúss Siglufjarðar fyrir ómetanlega og óaðfinnanlega umönnun á Óla síðustu árin. Honum þótti vænt um ykkur öll. Ólafur Thorarensen Ragnar Thorarensen Sigríður Axelsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Sigursteinn Sigursteinsson Skjólbrekku, andaðist á heimili sínu þriðjudaginn 17. maí. Útförin fer fram frá Borgarneskirkju fimmtudaginn 26. maí kl. 14.00. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vildu minnast hans er bent á Krabbameinsfélag Borgarfjarðar. Guðrún Jóhannsdóttir Viggó Sigursteinsson Björgvin Sigursteinsson Steinunn B. Hilmarsdóttir Björk Sigursteinsdóttir Sigurður J. Sigurðarson og barnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna andláts og útfarar ástkærrar móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, Kristínar Maríu Kristinsdóttur handavinnukennara, áður til heimilis að Kópavogsbraut 11. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins Sunnuhlíðar fyrir frábæra umönnun. Guðbjörg Jóna Jakobsdóttir Þórarinn Helgason Þórður Jakobsson Jón Kristinn Jakobsson Guðrún Emilía Daníelsdóttir og fjölskyldur. Útfarar- og lögfræðiþjónusta Vesturhlíð 2 Fossvogi | Sími 551 1266 | útför.is Útfararstofa kirkjugarðanna Jón G. Bjarnason Við erum til staðar þegar þú þarft á okkur að halda Við önnumst alla þætti undir- búnings og framkvæmd útfarar ásamt vinnu við dánarbússkiptin. Við þjónum með virðingu og umhyggju að leiðarljósi og af faglegum metnaði. ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS ÚTFARARSTOFA HAFNARFJARÐAR Auðbrekku 1, Kópavogi Útfararþjónusta síðan 1996 Vaktsímar: 581 3300 & 896 8242 • www.utforin.is • Allan sólarhringinn ALÚÐ • VIRÐING • TRAUST • REYNSLA Flatahraun 5a • www.utfararstofa.is • Símar: 565 5892 & 896 8242 Kristín Ingólfsdóttir Hilmar Erlendsson Sverrir Einarsson Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, Valgerður K. Sigurðardóttir kennari, Daltúni 28, Kópavogi, lést á líknardeild Landspítalans föstudaginn 13. maí. Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju þriðjudaginn 24. maí kl. 15.00. Pálmar Sölvi Sigurgeirsson Sigurður Pálmarsson Sigríður Pálmarsdóttir Ingvar Pálmarsson tengdabörn og barnabörn. 2 1 . m a í 2 0 1 6 L a U G a R D a G U R40 t í m a m ó t ∙ F R É t t a B L a ð i ð tímamót 2 1 -0 5 -2 0 1 6 0 3 :5 8 F B 0 9 6 s _ P 0 7 3 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 7 2 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 9 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 9 8 0 -A 8 5 8 1 9 8 0 -A 7 1 C 1 9 8 0 -A 5 E 0 1 9 8 0 -A 4 A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 9 6 s _ 2 0 _ 5 _ 2 0 1 6 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.