Fréttablaðið - 20.10.2016, Page 25

Fréttablaðið - 20.10.2016, Page 25
fólk kynningarblað DéBé bretti og stíll ehf. rekur vefverslunina debe.is. Þetta er fjölskyldufyrirtæki sem hóf starfsemi sína í desember í fyrra. Fyrirtækið er með umboð fyrir Burton hér á landi, en Bur- ton býður upp á snjóbretti og allan útbúnað sem þeim tengist. Auk þess framleiðir Burton gríð- arlega breitt úrval af fatnaði, allt frá sokkum upp í virkilega vand- aðan og fallegan útivistarfatnað. Fyrirtækið á rætur sínar að rekja til snjóbrettaáhuga fjöl- skyldu einnar á Reyðarfirði. „Við hjónin og synir okkar erum mikið á snjóbrettum og höfum tengst brettafélaginu hér fyrir austan,“ segir Dagný Björk Reynisdóttir, eigandi debe.is. „Í upphafi kom þessi hugmynd um að skoða umboð frá sonum okkar. Burton-vörurnar höfðu ekki verið aðgengilegar hér á landi í mörg ár, þrátt fyrir að vera eft- irsóttar og vandaðar vörur. Við sendum því fyrirspurn til þeirra upp á von og óvon, og við feng- um mjög jákvæð viðbrögð frá þeim. Því var þetta spurning um að hrökkva eða stökkva.“ Stór Sending á leiðinni Von er á fyrstu stóru vetrarsend- ingunni frá Burton í lok október. „Þessa dagana erum við í óða- önn að setja nýju vörurnar inn á heimasíðuna. Þetta eru meðal annars snjóbretti, skór og bind- ingar, vetrarfatnaður, snjóbux- ur, úlpur og jakkar fyrir alla fjölskylduna. Fatalínan þeirra er gríðarlega flott og vönduð. Auk vetrar- og útivistarfatnaðar, er mikið úrval af almennum fatn- aði,“ lýsir Dagný og tekur fram að fatnaðurinn henti í hvaða úti- vist sem er. Dagný segir snjóbrettaíþrótt- ina vera að breytast, iðkendahóp- urinn er orðinn breiðari en var á árum áður. „Það er mikið barna- starf í gangi í íþróttinni og iðk- endum er að fjölga. Fólk er líka að verða meðvitaðra um örygg- ismál sem er mjög góð þróun og bjóðum við upp á flotta og vand- aða hjálma og gleraugu frá Anon. Einnig erum við með brynj- ur frá Dainese sem henta jafnt skíða- og brettafólki. Allar þess- ar vörur uppfylla gildandi örygg- isstaðla,“ segir Dagný. Vandaðar jógaVörur Í netversluninni má líka fá jóga- og íþróttafatnað á konur og karla, frá flottum og vönduðum merkj- um. „Okkur langaði að vera með fjölbreytt vöruúrval. Við erum með fallegan og vandaðan jógafatn- að frá Teeki, Onzie og The Choclo Project og svo frábærar jógadýn- ur frá Jade Yoga úr hrágúmmíi. Við leggjum áherslu á að framleiðendur þeirra vara sem við seljum hafi um- hverfisvernd og samfélagsábyrgð að leiðarljósi við framleiðsluna.“ Hægt er að skoða úrvalið og fá nánari upplýsingar á debe.is og á Facebook undir DéBé Bretti og stíll og DéBé Jóga, einnig á Insta­ gram. 2 0 . o k t ó b e r 2 0 1 6 F I M M t U D A G U r DéBé bretti og stíll ehf. rekur vefverslunina debe.is og er fjölskyldufyrirtæki í eigu þeirra Björgvins Hólm Birgissonar, Dag­ nýjar Bjarkar Reynisdóttur, Reynis Birgissonar og Birgis Arnar Tómassonar. Debe.is er með fallegan og vandaðan jógafatnað frá Teeki, Onzie og The Choclo Project og frábærar jógadýnur frá JadeYoga úr hrágúmmíi. Fatalínan frá Burton er gríðarlega flott og vönduð. Auk vetrar­ og útivistarfatnaðar er mikið úrval af almennum fatnaði. Burton komið til ÍSlandS Debe.is kynnir Á debe.is er mikið úrval af vönduðum snjóbrettavörum og fatnaði frá snjóbrettaframleiðandanum Burton. Auk þess býður verslunin upp á fallegan jógafatnað og dýnur frá ýmsum framleiðendum. Debe.is leggur metnað sinn í að vera samkeppnishæft við erlendar vefverslanir með sambærilega vöru. Skoðið Laxdal.is Vertu vinur á Facebook HAUSTYFIRHAFNIR Laugavegi 63 • S: 551 4422 2 0 -1 0 -2 0 1 6 0 4 :2 1 F B 0 6 4 s _ P 0 4 1 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 4 0 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 4 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 B 0 0 -A 2 9 0 1 B 0 0 -A 1 5 4 1 B 0 0 -A 0 1 8 1 B 0 0 -9 E D C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 B F B 0 6 4 s _ 1 9 _ 1 0 _ 2 0 1 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.