Fréttablaðið - 20.10.2016, Side 52
KviKmynd
Grimmd
HHHHH
Leikstjóri: Anton Sigurðsson
Framleiðendur: Anton Sigurðsson,
Haraldur Bender, Jói Björnsson
Handrit: Anton Sigurðsson
Klipping: Árni Freyr Haraldsson
Kvikmyndataka: Árni Filippusson
Förðun: Sandra María Ásgeirsdóttir
Leikarar: Margrét Vilhjálmsdóttir,
Sveinn Ólafur Gunnarsson, Hannes
Óli Ágústsson, Atli Rafn Sigurðarson
og Pétur Óskar Sigurðsson
Kvikmyndagerðarmaðurinn Anton
Sigurðsson má eiga þann heiður að
vera sá fyrsti í háa herrans tíð til að
skella íslenskum sakamálatrylli upp
á hvíta tjaldið, þótt fáir geti neitað
því að vel hafi farið um slíka í sjón-
varpsgeiranum okkar. Grimmd er
önnur mynd Antons í fullri lengd
en sú fyrri var hrollvekjan Grafir
og bein frá 2014. Óskaplega fáir sáu
hana (skiljanlega) en áhugi Antons
á skuggalegu andrúmslofti og til-
þrifaríkum leik var í það minnsta
sýnilegur.
Nú hefur Anton óneitanlega
vaðið í metnaðarfyllri kvikmynd
og segir Grimmd frá tveimur ungum
stúlkum sem hverfa skyndilega
af leikvelli og finnast síðar látnar
í Heiðmörk. Atburðarásin tengir
saman líf ýmissa ólíkra persóna á
meðan reyndar rannsóknarlöggur
vinna hörðum höndum við að leysa
málið. Þegar glitta fer í svör flækjast
málin enn frekar og áhorfandinn
fær að leika sér að því að giska á
það hver morðinginn er næstu 90
mínúturnar.
Myndin fer því miður alls ekki
vel af stað. Tónninn er strax gefinn
með kjánalegri upphafssenu sem
framkallaði meira að segja nokkur
fliss í salnum sem ég sat í. En fljót-
lega fara þarna að sjást merki um
óslípað flæði, gallaða hljóðvinnslu
og leikstjórn þar sem ekki er haldið
nægilega fast um efnistaumana.
Samtölin eru oft stirð og háfleyg,
eins og þau séu stundum bein-
þýdd úr vondum Hollywood-trylli.
Einnig er mikið af slæmum útskýr-
ingarsamtölum og ósannfærandi
lausnum. Það er ýmislegt í hand-
ritinu sem bregður fyrir eða hverfur
óútskýranlega eftir þörfum. Ýmsir
litlir söguþræðir eru endasleppir og
nokkrum persónum hefði algerlega
mátt sleppa, þó ekki væri nema til
að gefa öðrum meira svigrúm, þróa
sambönd og persónuleika. Oft fékk
ég á tilfinninguna að mikilvægar
senur hefðu verið klipptar úr.
Atburðarásin snýst meira um að
villa stöðugt um fyrir áhorfendum
en að einbeita sér að einhverju bita-
stæðara. Í allri sakamálasögunni er
leikið með truflandi og athyglisverð
þemu en lítið verður úr þeim, gisk-
leikurinn verður að þurrum farsa
og spennubyggingin missir allan
kraft þegar leikstjórinn fellur í þá
gryfju að sýna stundum of mikið of
snemma, eða gefa upp svör löngu
eftir að þau eru orðin öllum ljós.
Endirinn er líka handónýtur og
sagan vekur í rauninni fleiri spurn-
ingar en hún svarar, ekki á góðan
hátt.
Að mestu er hér annars að finna
hinn fínasta hóp leikara. Liðið getur
verið mistrúverðugt eftir því hvern-
ig samræðurnar (eða aðstæðurnar)
eru skrifaðar, en Margrét Vilhjálms-
dóttir, Hannes Óli, Sveinn Ólafur,
Atli Rafn og Pétur Óskar standa sig
nógu vel til þess að tryggja það að
slök kvikmynd verði bærilegri. Sama
má segja um ýmsa í aukahlutverkum
sem skilja eitthvað eftir sig, til dæmis
Jörund Ragnarsson, Ólafíu Hrönn
eða „Jónana“ tvo, sem meira hefði
mátt gera við. Salóme Gunnarsdóttir
er einnig fín sem hin brotna móðir
stúlknanna, þótt hún geri fátt annað
en að skjóta upp kollinum reglulega
og gráta úr sér augun. Gráturinn er
vissulega sannfærandi, en persónan
er í besta falli einhliða. Það sama á
við um þær flestar.
Kvikmyndataka og klipping er í
meðalgóðu standi, þótt hnökrum
bregði fyrir í rennslinu og lýsingin
í kvöldsenum eða dökku umhverfi
sé ekki alltaf að gera sig. Einnig
stemmir tónlistin ekki alveg við og
dregur frekar úr andrúmsloftinu en
að styrkja það. Eins og áður kom
fram hefði meiri tími mátt fara í
hljóðvinnuna, „döbbin“ svoköll-
uðu voru heldur ekki alltaf vel falin.
Vandræðalegt.
Segja má að Grimmd standi undir
nafni, en hún er undarlega áhrifa-
laus miðað við umfjöllunarefnið.
Með betri úrvinnslu hefði þetta
mögulega getað gengið upp sem
sjónvarpsmyndasería, því hér eru
alltof margir boltar á lofti. Myndin
reynir að gera of mikið en verður að
lokum að ósköp litlu. Henni er þó
ekki alls varnað og það er hæfileika-
ríkum leikurum að þakka, vissum
áherslum í stílnum og prýðilegri
förðun. En skynsamlegra væri að
leita til betri sakamálasagna, inn-
lendra eða erlendra.
Tómas Valgeirsson
niðurstaða: Andrúmsloftið er ágætt
og leikararnir hafa miklu við að bæta
en persónusköpunin er flöt, handritið
gloppótt og samtölin svo stíf að heildin
gliðnar í sundur.
Júlíana Sara Gunnarsdóttir og Margrét Vilhjálmsdóttir í hlutverkum sínum.
Grafalvarleg en áhrifalaus
Frumsýningar
Tröll
Aðalleikarar: Anna Kendrick,
Zooey Deschanel, James Corden,
Christopher Mintz-Plasse, Justin
Timberlake, Gwen Stefani, Rus-
sell Brand, Quvenzhané Wallis,
Christine Baranski, John Cleese,
Jeffrey Tambor, Kunal Nayyar
Frumsýnd: 21. október
IMDb: 6,8
Rotten Tomatoes: 77%
Jack reacher: Never Go
back
Aðalleikarar: Tom Cruise, Cobie
Smulders, Robert Knepper, Aldis
Hodge, Holt McCallany, Jason
Douglas, Danika Yarosh, Teri
Wyble, Michael Papajohn, Billy
Slaughter
Frumsýnd: 21. október
IMDb: 8,0
MasTerMiNds
Aðalleikarar: Kristen Wiig, Kate
McKinnon, Jason Sudeikis, Owen
Wilson, Zach Galifianakis, Leslie
Jones, Ken Marino, Devin Ratray,
Rhoda Griffis, Kevin J. O'Connor
Frumsýnd: 28. október
IMDb: 5,8
Rotten Tomatoes: 34%
JÓLABLAÐ FRÉTTABLAÐSINS
Stóra jólablaðið frá Fréttablaðinu kemur út
þriðjudaginn 22. nóvember.
Áhugasamir hafi samband við:
Blaðið er stútfullt af allskonar skemmtilegu efni tengdu jólunum.
Jón Ívar Vilhelmsson
Sími/Tel:
+354 512-5429
jonivar@365.is
Jóhann Waage
Sími/Tel:
+354 512-5439
johannwaage@365.is
Atli Bergmann
Sími/Tel:
+354 512-5457
atlib@365.is
Ólafur H. Hákonarson
Sími/Tel:
+354 512-5433
olafurh@365.is
2 0 . o K t ó b e r 2 0 1 6 F i m m t u d a G u r36 m e n n i n G ∙ F r É t t a b L a ð i ð
bíó
2
0
-1
0
-2
0
1
6
0
4
:2
1
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
5
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
4
K
-N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
0
0
-7
1
3
0
1
B
0
0
-6
F
F
4
1
B
0
0
-6
E
B
8
1
B
0
0
-6
D
7
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
B
F
B
0
6
4
s
_
1
9
_
1
0
_
2
0
1
C
M
Y
K