Fréttablaðið - 30.11.2016, Side 14
Í dag
19.05 Grindav. - Skallagrím. Sport 3
19.40 Arsenal - Southampt. Sport2
19.55 Man. Utd - West Ham Sport
19.15 Stjarnan - Njarðvík Ásgarður
19.15 Snæfell - Valur Stykkishólm.
19.15 Grindavík - Skallagr. Grindvík
19.15 Haukar - Keflavík Ásvellir
Nýjast
Enski deildabikarinn í fótbolta
Liverpool - Leeds 2-0
1-0 Divock Origi (76.), 2-0 Ben Woodburn
(81.).
Hull - Newcastle 0-0
Leikurinn var framlengdur og ekki lokið
þegar blaðið fór í prentun.
Hvar ert þú
búin að vera?
Ólafía Þórunn Kristinsdóttir fór
umhverfis hnöttinn frá 4. október
til 16. nóvember þar sem hún
keppti bæði á úrtökumótum í
Bandaríkjunum sem og á mótum
á LET-mótaröðinni sem fóru fram í
Kína, á Indlandi og í Abú Dabí. Hún
náði að koma heim í fimm daga
áður en hún flaug aftur til Banda-
ríkjanna til að undirbúa sig fyrir
lokaúrtökumótið.
„Það er alltaf gaman að koma
heim og sjá alla og þá sérstaklega
eftir svona langan tíma í burtu.
Viktoría Katrín, litla frænka mín,
var samt að skamma mig og
spurði: „Hvar ert þú búin að vera?
Ég er ekki búin að sjá þig í nokkur
ár!“ Henni fannst sjö vikur vera
rosa langur tími,“ segir Ólafía.
Langar þig að sjá Liverpool eða
Manchester City spila?
Heimsferðir bjóða beint flug til Liverpool og ferðir til
Liverpool og Manchester 20.-22. janúar 2017. Báðar
borgirnar eru frábærar heim að sækja og tilvaldar
fyrir stutta helgarferð! Það er gott að versla í báðum
borgunum en veitingastaðir og barir eru á hverju strái og
oft mikið líf og fjör. Laugardaginn 21. janúar er svo unnt
að fara á leik en þá spila bæði Liverpool og Manchester
City. Liverpool tekur á móti Swansea kl. 12.30 á Anfield
en Manchester City leikur gegn Tottenham kl.17.30 á
Etihad.
Flogið er til Liverpool föstudaginn 20. janúar kl. 08.00
og til Keflavíkur sunnudaginn 22. janúar kl. 19.00.
Bir
t m
eð
fy
rir
va
ra
um
pr
en
tvi
llu
r.
He
im
sfe
rð
ir
ás
kil
ja
sé
r r
étt
til
le
iðr
étt
ing
a á
sl
íku
. A
th.
að
ve
rð
ge
tur
br
ey
st
án
fy
rir
va
ra
.
E
N
N
E
M
M
/
S
IA
•
N
M
77
86
3
LIVERPOOL
EÐA MAN. CITY?
20. janúar í 2 nætur
MANCHESTER
Hotel Brittania
Frá kr. 78.900 m/morgunmat
Netverð á mann frá kr. 78.900 m.v. 2 í herbergi.
Miði á leik Man. City – Tottenham frá 26.900 kr.
LIVERPOOL
Hotel Campanile
Frá kr. 79.900 m/morgunmat
Netverð á mann frá kr. 79.900 m.v. 2 í herbergi.
Miði á leik Liverpool – Swansea frá 22.500 kr.
Einnig í boði Premier Club miði á 29.000 kr.
Stutt og hnitmiðuð fótboltaferð
á frábæru verði!
Flug og hótel
frá kr.
78.900
m/morgunmat
Miði á leik
frá kr.
22.500
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r14 s p o r t ∙ F r É t t A b L A Ð I Ð
sport
GoLF Ólafía Þórunn Kristinsdóttir
stígur stórt skref fyrir íslenska kylf-
inga í dag þegar hún hefur keppni
á lokaúrtökumótinu þar sem 157
kylfingar keppa um tuttugu laus
sæti á sterkustu atvinnumótaröð
kvenna. Í þessum sporum hefur
íslensk kona aldrei staðið áður.
Ólafía Þórunn spilar fyrsta hring-
inn á Hills-vellinum og slær hún
fyrsta höggið í dag klukkan 14.17
að íslenskum tíma sem er klukkan
9.17 að staðartíma.
Reynir að vera afslöppuð
„Mér líður bara vel. Ég ætla að fara
inn í þetta mót alveg eins og hin tvö
stigin. Reyna að vera afslöppuð með
engar væntingar, þolinmóð og gera
mitt besta,“ segir Ólafía. Hún lék á
fimm höggum undir pari á fyrsta
úrtökumótinu (5. sæti) og á parinu
á öðru stiginu (12. sæti). Hún hefur
með árangri sínum á öðru stiginu
þegar tryggt sér keppnisrétt á
Symetra-mótaröðinni sem er næst-
sterkasta mótaröðin.
„Ég mætti snemma á staðinn til
að venjast grasinu og hefja hörku-
æfingar. Svo núna er komið að því
bara að halda æfingunum við og
spara kraftana. Þetta er svo rosalega
langt mót að það er mjög mikilvægt
að hvíla sig síðustu tvo dagana fyrir
keppni,“ segir Ólafía.
Hún skipulagði tímann vel fram
að móti. „Ég fékk ráðleggingar frá
nokkrum leikmönnum sem hafa
spilað hérna áður og komist inn á
mótaröðina. Þær mæltu með því
að spila ótrúlega mikið snemma í
vikunni og æfa vel. Svo taka bara
níu holur síðustu tvo dagana fyrir
mótið og léttar æfingar. Þannig að
ég er búin að spila fjórum sinnum
18 holur,“ segir Ólafía.
Hún talaði bæði við Cheyenne
Woods sem var með henni í Wake
Forest og svo hitti hún tvo kylfinga
á mótum hjá LET. „Það var gott að
staðfesta að það sem ég var að gera
var besti mögulegi undirbúningur-
inn,“ segir Ólafía.
Vandræði eftir klukkan níu
Hún hefur spilað mjög mikið golf
síðan hún kom út 21. nóvember
síðast liðinn. „Ég er í vandræðum
með að halda mér vakandi lengur
en til níu á kvöldin. En það er
fínt því þá get ég byrjað daginn
snemma,“ segir Ólafía og bætir við:
„Líkaminn er ágætur, en hefur verið
betri. En ég þarf bara að vera dugleg
að teygja og gera léttar æfingar. Ég
fór líka í nudd,“ sagði Ólafía.
Hún þurfti tíma til að venjast
öðruvísi grasi en var til dæmis á
golfvöllunum á Evrópumótaröð-
inni. „Hérna er bermúdagras. Það
er mjög þétt gras og því öðruvísi að
slá úr því. Maður þarf að vera extra
ákveðinn,“ segir Ólafía.
Hún hefur líka notað tímann til
að læra á vellina tvo þar sem loka-
úrtökumótið verður að þessu sinni.
„Hills-völlurinn er talinn þrengri og
flatirnar þar eru pínulitlar. Jones-
völlurinn er aðeins opnari og flat-
irnar með miklu landslagi. Þetta
eru báðir skemmtilegir vellir,“ segir
Ólafía sem heldur vel utan um allt
leikskipulagið sitt. „Ég skrifa niður
á hverja einustu síðu mið af teig og
punkta svo aukalega niður ef það
er eitthvað sem ég þarf að hafa í
huga,“ segir Ólafía en taktíkbókin
hennar er aldrei langt undan.
Ólafía fór heilan hring í kringum
hnöttinn á 48 dögum en fékk síðan
smá tíma heima á Íslandi. „Það
var frábært að komast heim. Ég er
reyndar aldrei uppteknari en þegar
ég er á Íslandi enda með alveg fulla
dagskrá,“ segir Ólafía. Ólafía kynnt-
ist ýmsu á mótum sínum í Asíu.
Hugsa sem minnst um það
„Ég tel alla reynslu vera góða
reynslu. Bæði góðu hlutina og
slæmu hlutina sem hafa gerst á
golfvellinum. Maður lærir af öllu,“
segir Ólafía en hvaða þýðingu
hefði það fyrir hana að komast inn
á LPGA-mótaröðina í Bandaríkj-
unum?
„Ég reyni að hugsa sem minnst
um það núna. Bara að halda mér
í núinu og svo sjáum við til,“ sagði
Ólafía að lokum. ooj@frettabladid.is
Ætlar
bara að
halda
sér í
núinu
Ég tel alla
reynslu vera
góða reynslu. Bæði
góðu hlutina og
slæmu hlutina
sem hafa
gerst á
golfvell-
inum.
Ólafía
Þórunn
Kristins-
dóttir
Gr-ingurinn Ólafía
Þórunn Kristinsdóttir
nýtti sér góð ráð reyndari
kylfinga þegar hún bjó
sig undir lokaúrtöku-
mótið fyrir sterkustu
atvinnumótaröð kvenna
í golfi sem hefst í dag.
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
A
-B
A
2
C
1
B
7
A
-B
8
F
0
1
B
7
A
-B
7
B
4
1
B
7
A
-B
6
7
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K