Fréttablaðið - 30.11.2016, Side 22
Þeir sem leggja leið sína á útgáfu-
tónleika söngkonunnar Þórhildar
Örvarsdóttur annað kvöld klukk-
an átta í Fríkirkjunni í Reykja-
vík eða á sunnudag í Akureyrar-
kirkju á sama tíma mega eiga von
á kyrri og notalegri stemningu,
jafnvel svolítið hátíðlegri. Það er
að sögn Þórhildar, eða Hildu eins
og hún er kölluð, meginhugsunin á
bak við plötuna, að hún færi fólki
friðsæld á aðventunni sem annars
á það stundum til að verða svolítið
annasöm. „Það má jafnvel greina
skammdegið í þessari músík en
líka gleðina og vissuna yfir hækk-
andi sól,“ segir hún.
Í samvinnu með fagfólki
Tónleikarnir eru haldnir í tilefni
af útgáfu jólaplötunnar Hátíð sem
Þórhildur vann með Atla bróður
sínum sem er kvikmyndatónskáld
og hefur búið árum saman í Banda-
ríkjunum en er nýlega fluttur heim.
„Með okkur var upptöku- og mixer-
maður frá London, Steve McLaug-
hlin. Inn á plötuna spila svo algjör-
lega frábærir listamenn, Eyþór Ingi
Jónsson á orgel, Kristján Edelstein
á gítar, Einar Scheving á trommur,
Greta Salóme á fiðlu, auk þess sem
hún á einn texta á plötunni, og Ásdís
Arnardóttir á selló.“
Það var lengi búið að vera á
stefnuskránni hjá Þórhildi að taka
upp plötu og þar sem hún hefur
verið að vinna við ólíka hluti í tón-
list síðustu árin segist hún hafa
verið svolítið að leita að grundvelli
til að sameina þá þætti. „Mig lang-
aði að skapa einhvern heim, eins og
í kvikmyndatónlistinni og ná líka
mikilli nánd eins og oft verður í lif-
andi flutningi, til dæmis við kirkju-
athafnir. Mér fannst jólin einmitt ná
að sameina þetta. Það lá því beinast
við að leiða saman þrjá af mínum
helstu samstarfsmönnum síðustu
árin, þá Atla, Eyþór og Kristján, til
að vinna að þessu með mér,“ segir
Þórhildur.
Innblástur fyrir plötuna sótti
Hilda í skandinavíska jólatónlist
sem hún hefur verið alveg heilluð af.
„Það er svo fallegur þjóðlagakennd-
ur blær á þessari tónlist og eitthvað
við hana sem endurspeglar norðr-
ið, einhvers konar sameiginleg-
ur reynsluheimur þjóðanna. Sam-
starfskona mín og vinkona, Helga
Kvam, hefur verið óþreytandi að
finna og kynna mig fyrir þessari
músík og vann mikið að gerð plöt-
unnar með mér. Við fengum fallega
íslenska texta við erlendu lögin frá
Kristjáni Hreinssyni, Gretu Salóme
og Sigurði Ingólfssyni. Við þetta
blanda ég svo nokkrum íslenskum
lögum sem eru mér afar kær.“
frostrósir Í sumarhita
Söngkonan segist vera mikið jóla-
barn og hefur henni alltaf fundist
jólin vera yndislegur tími. „Mínar
minningar um jólin þegar ég var
barn eru yndislegar, ég kem úr
stórum systkinahópi og það var oft
mjög glatt á hjalla. Það var ekki
mikil áhersla á stórar gjafir þegar
ég var að alast upp en samveran
og gleðin var mikil og hún er allt-
af stærsta gjöfin. Þegar við eldumst
munum við ekki svo mikið hvað
við fengum að gjöf en við munum
stundirnar og samveruna og það
er dýrmætara en allt annað. Ég hef
reynt að færa mínum börnum þess-
ar upplifanir af samveru og gleði í
kringum jólahaldið og reyni að
kenna þeim að njóta hverrar mín-
útu og það að fara á tónleika er al-
gjörlega órjúfanlegur þáttur af jóla-
haldinu.“
Jólaplatan var unnin í sumar og
haust og segir Hilda að það hafi
verið bæði skrítið og skemmtilegt.
„Sérstaklega þar sem veðrið var
með eindæmum gott á meðan við
vorum í upptökum. Haustið var líka
alveg einstakt, með sumarhita fram
í október, og því stundum svolítið
skrítið að vera að skoða frostrós-
ir og snæviþaktar myndir fyrir al-
búmið, hlusta aftur og aftur á lögin
og skipuleggja markaðssetningu á
jólaplötu, þetta var stundum dálítið
spaugilegt. En við tókum mikið upp
í Akureyrarkirkju og þar er alltaf
hátíðlegt að koma og bara hljómur-
inn einn og sér færir manni jóla-
stemningu,“ segir Hilda með bros
á vör.
færir friðsæld á aðventunni
Jólaplatan Hátíð með Þórhildi Örvarsdóttur er nýlega komin út. Af því tilefni verður söngkonan með tónleika í Reykjavík
annað kvöld og á Akureyri á sunnudagskvöld. Platan á að færa fólki friðsæld á annasamri aðventunni.
Lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
Söngkonan Þórhildur Örvarsdóttur heldur útgáfutónleika annað kvöld klukkan átta í Fríkirkjunni í Reykjavík og á sunnudag í
Akureyrarkirkju klukkan átta í tilefni af útkomu jólaplötu hennar, Hátíð. MYND/AUÐUNN NÍELSSON
Töfrastund
sem varðveitist
Gjafakort í Þjóðleikhúsið gleður
unga sem aldna, enda ávísun á
upplifun og ævintýri.
Hafðu samband við miðasölu
Þjóðleikhússins í síma 551 1200
eða á leikhusid.is
3 0 . n ó v e m b e r 2 0 1 6 m I Ð v I K U D A G U r4 F ó l K ∙ K y n n I n G A r b l A Ð ∙ X X X X X X X X ∙ K y n n I n G A r b l A Ð v I Ð b U r Ð I r
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
3
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
A
-F
0
7
C
1
B
7
A
-E
F
4
0
1
B
7
A
-E
E
0
4
1
B
7
A
-E
C
C
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K