Fréttablaðið - 30.11.2016, Page 26
jólagjöf fagmannsins Kynningarblað
30. nóvember 20164
Sigurjón, sem er sölustjóri Vinnu-
véla, segir áhugann á verkfær-
um, vélum og smíði hafa vaknað
snemma. „Pabbi var mikið í út-
gerð á vörubílum og vélum og ég
ólst því upp í kringum tól og tæki.
Raunar svo mikið að ökukennaran-
um fannst ég grunsamlega góður
að keyra þegar ég fór í fyrsta öku-
tímann,“ segir Sigurjón glettinn en
hann eignaðist sitt fyrsta mótor-
hjól sextán ára. „Það var Kawasaki
5 með tvígengisvél.“ Mótorhjólinu
fylgdu síðan, eins og vill verða,
bæði viðgerðir og vélagrúsk.
„Ég hef alltaf viljað eiga góð
verkfæri og keypti mér þau
snemma. „Í fyrstu ferðinni sem ég
fór til útlanda, sextán ára gamall,
keypti ég fyrstu verkfærin, borvél
og ýmsa lykla.“
Sex mótorhjól í skúrnum
Mótorhjólaáhuginn hefur síst
minnkað með árunum en Sigur-
jón og kona hans eiga samtals sex
hjól í bílskúrnum. Fimm af gerð-
inni Kawasaki og eina Hondu.
„Við notum þau mikið og ferðumst
innan lands og utan.“
Sigurjón segist kaupa sér flest
sín verkfæri sjálfur. Sum hafi
hann þó fengið að gjöf frá börnum
sínum í gegnum tíðina.
En hvað á hann mörg verkfæri?
„Meinarðu í kílóavís eða stykkja-
tali?“ spyr hann glettinn, greini-
lega ekki með fjöldann á hreinu.
Hann segist þó eiga mjög mikið af
verkfærum til allra verka.
Hann segist einnig alla tíð hafa
haft mikinn áhuga á smíði. „Ég
smíða mikið, og við hjónin bæði.
Hún gefur mér ekki tommu eftir
í því,“ upplýsir Sigurjón og tekur
sem dæmi að þau hjónin hafi að
mestu smíðað húsið þeirra sjálf,
bæði innan og utan. „Síðasta
sumar hentum við svo stórum
hluta úr lóðinni hjá okkur og smíð-
uðum risaverönd í staðinn og girt-
um hana alla af. Það gerðum við
bara tvö á kvöldin og um helgar
með vinnu.“
Gott skipulag
Bílskúr Sigurjóns er þaulskipu-
lagður. „Ég vandist á þetta ungur,
þegar ég var vélstjóri í nokkur ár.
Það er mikið skipulag í vélarúm-
um á skipum. Þar á hvert verk-
færi sinn sess í hillu eða skáp enda
margir sem þurfa að nota verkfær-
in og menn þurfa að geta gengið að
þeim á vísum stað. Ég hef tileink-
að mér þennan kæk og fært yfir í
skúrinn hjá mér. Hér á hvert verk-
færi sinn krók, nagla eða hillu,“
segir Sigurjón sem smíðaði auð-
vitað sjálfur allt skipulagið.
Sigurjón segist dvelja í skúrnum
í törnum. „Stundum hef ég tekið
eldgömul mótorhjól og rifið þau í
frumeindir og gert þau eins og ný.
Þá er maður heilu og hálfu dagana
í skúrnum.“
Langar í rennibekk
En á hann sér uppáhaldsverkfæri?
„Mér þykir vænst um verkfærin
sem ég handsmíðaði þegar ég var
í Vélskólanum á sínum tíma. Þetta
eru hamarshaus og fleira sem ég
á enn í dag.“
Sigurjón segist annars helst
kjósa að eiga vönduð verkfæri
fremur en ódýr. „Svo vel ég líka
verkfæri eftir verkum. Ef ég er
í mikilli óþverravinnu nota ég
ákveðin verkfæri, en spariverk-
færi í fínni vinnu.“ En hvað notar
hann mest? „Líklega lykla og
skrúfjárn.“
Sigurjón segist fremur íhalds-
samur á að lána verkfærin sín.
„Það er dálítið algengt að fá
lánað og gleyma að skila. Ég
reyni því að halda verkfærunum
heima við.“
En er eitthvað sem vantar í
safnið? „Mig hefur alltaf dreymt
um að eiga lítinn rennibekk. Ég
læt það kannski rætast einhvern
tíma.“
Hvert verkfæri á sinn vísa stað
sigurjón P. stefánsson á vel skipulagðan bílskúr sem sumir staðhæfa að sé svo snyrtilegur að þar megi framkvæma skurðaðgerðir.
Sigurjón slær á slíkar yfirlýsingar en viðurkennir að hann eigi ógrynni af verkfærum til ýmissa verka. Þá eigi hvert verkfæri sinn stað.
Í Rafvörumarkaðinum við Fells-
múla er mikið úrval af verkfær-
um af ýmsum stærðum og gerðum
til notkunar í öllum mögulegum til-
gangi fyrir bæði heimili og fyrir-
tæki. Á meðal þekktra vörumerkja
sem verslunin selur má nefna Stan-
ley, Yato, Lund, Powerup, Kingstorm
og Sthor. „Við höfum verið að taka
inn nokkuð af nýjum vörum í stærri
kantinum undanfarið,“ segir Ingvar
Árni Óskarsson, starfsmaður Raf-
vörumarkaðarins, og bætir við að
þar megi helst nefna stórar læstar
verkfærakistur, sverðsagir, iðnað-
arbrotvélar til að brjóta steypu og
ýmis legt fleira, og LED-kastara.
„Allt eru þetta alvöru verkfæri
fyrir alvöru iðnaðarmenn, fagfólk
jafnt sem grúskara heima fyrir.“
Vörur í jólapakkann
Sigurður Davíð Skúlason stend-
ur einnig vaktina í Fellsmúlanum
með Ingvari. „Hjá okkur er fullt
af vörum sem gætu hentað í jóla-
pakkana fyrir fagmennina því úr-
valið er mikið,“ segir hann. Bor-
vélar og skrúfvélar þykja klass-
ískar til gjafa enda verkfæri sem
þarf á hverju heimili að sögn Sig-
urðar Davíðs. Einnig nefnir hann
fjölnota sög, flísasög, brotvélar og
upphengjanleg ljós sem er hægt að
tengja í USB. Sigurður Davíð nefn-
ir réttilega að ekki eru öll verkfæri
til stórra verka. „Á meðal verkfær-
anna okkar er gott úrval af minni
verkfærum í smærri viðfangsefni
og ekki síður í föndurvinnuna heima
fyrir. Þar má m.a. nefna stingsög,
föndurslípisett og ýmis handverk-
færi. Ekki má gleyma LED-vasa-
ljósum af ýmsum stærðum.“
Gæðavörur á góðu verði
Báðum finnst þeim auðvitað algjör
toppur að fá nýja og góða græju í
jólapakkanum. „Verkfæri eru tíma-
lausar gjafir sem endast lengi og
gagnast alltaf vel. Verkfærin hjá
okkur í Rafvörumarkaðinum eru
frá gæðaframleiðendum og eru á
góðu verði. Það er svo sannarlega
hægt að gera kostakaup hjá okkur
í Rafvörumarkaðinum.“
Rafvörumarkaðurinn er til húsa
við Fellsmúla í Reykjavík. Opið er
virka daga frá 9-18, laugardaga frá
10-16 og sunnudaga frá 12-16. Nán-
ari upplýsingar á Facebook undir
Rafvörumarkaðurinn.
Tímalausar gjafir undir jólatrénu
Góð verkfæri eru tímalausar gjafir sem henta frábærlega í jólapakkann fyrir fagfólk jafnt sem grúskarann heima fyrir.
Rafvörumarkaðurinn við Fellsmúla býður upp á gott úrval verkfæra frá mörgum þekktum vörumerkjum á góðu verði.
sigurður Davíð skúlason (t.v.) og ingvar Árni óskarsson standa vaktina í Rafvörumarkaðinum í fellsmúla. mYnD/anTOn BRinK
sigurjón á afar vel skipulagðan bílskúr enda á hann fjöldann allan af verkfærum sem þarf að koma vel fyrir. mYnDiR /ERniR
sólveig
gísladóttir
solveig@365.is
Verkfærin sem sigurjón handsmíðaði.sigurjón hannaði og smíðaði sjálfur veggina sem verkfærin eru hengd á.
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
A
-D
7
C
C
1
B
7
A
-D
6
9
0
1
B
7
A
-D
5
5
4
1
B
7
A
-D
4
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K