Fréttablaðið - 30.11.2016, Side 28
Fyrirtækið vill vera
leiðandi í að bjóða fjöl-
breytt vöruúrval frá
traustum og viðurkennd-
um framleiðendum og
hjá Verkfærasölunni
fæst mikið af verkfærum
fyrir fagmenn.
Starri Freyr
Jónsson
starri@365.is
Mér tekst nú
reglulega að
selja einn og
einn penna. Það
skiptir mig þó
minna máli því
gleðin sem ég
fæ út úr því að
búa þá til
skiptir öllu
máli.
Finnbogi Unnsteinn
Gunnlaugsson
JólagJöF FagMannSinS Kynningarblað
30. nóvember 20166
„Á þessum tæplega áratug eru pennarnir sjálfsagt orðnir nokkuð hundruð en ég hef í
raun enga tölu á þeim,“ segir Finnbogi Unnsteinn gunnlaugsson, handverksmaður frá
grindavík.
Úrvalið er mikið hjá Finnboga og fjölbreytnin er mikil.Mikil vinna er á bak við hvern penna.
Grindvíkingurinn Finnbogi
Unnsteinn Gunnlaugsson hefur
undan farinn áratug átt sér
skemmtilegt áhugamál í bílskúrn-
um. Hann smíðar skefti fyrir
penna úr ýmsum viðartegundum
sem vakið hafa nokkra athygli á
handverkshátíðum og í skúrnum
heima þar sem gestir og gangandi
geta komið og skoðað úrvalið.
Sjálfur hefur hann starfað við
ýmislegt um ævina, t.d. sem vöru-
og flutningabílstjóri, verslunar-
maður í byggingavöruverslun og
við smíðar. „Ég hef hins vegar
alltaf haft mikinn áhuga á verk-
færum og vélum. Fyrsta renni-
bekkinn, sem var tengdur við bor-
vél, fékk ég í jólagjöf fyrir mörg-
um árum en hann hentaði frekar
í smærri verkefni.“
Enga tölu á fjölda
Smátt og smátt jókst áhugi Finn-
boga og verkefnin urðu stærri og
metnaðarfyllri. „Fyrir tæpum
tíu árum keypti ég mér gamlan
og stærri rennibekk sem er mjög
góður. Hann er frá NOVA og með
honum fylgdu hlutir í penna-
rennsli. Og þá byrjuðu hlutirnir
að gerast fyrir alvöru og áhuga-
málið um leið að verða miklu
skemmtilegra enda eyði ég tals-
verðum tíma úti í bílskúr þar sem
ég hef komið mér upp ágætri að-
stöðu.“
Finnbogi er sjaldnast búinn að
ákveða fyrirfram hvernig endan-
leg afurð mun líta út. Hugmyndin
fæðist iðulega þegar hann byrjar
að verka viðinn. „Það tekur tíma
að fá réttan við í hús. Síðan þarf
að þurrka hann svo hann nái réttu
rakastigi. Ég saga viðinn niður og
passa vel upp á að hann springi
ekki og eyðileggist í þurrkinum.
Viðinn þarf nefnilega að verka
ansi lengi svo hann sé í lagi því
ef það er smá raki eftir í honum
myndast sprungur og þá rifn-
ar hann. Ég nota ýmsar viðar-
tegundir, bæði íslenskar og er-
lendar, og einnig ýmis horn, t.d.
hreindýra- og buffalóhorn. Fyrir
vikið eru engir tveir pennar eins.
Á þessum tæplega áratug eru
pennarnir sjálfsagt orðnir nokk-
uð hundruð en ég hef í raun enga
tölu á þeim.“
Vekja athygli
Hann segist ekki hafa verið sér-
lega duglegur að koma sjálfum
sér á framfæri. Stöku sinnum
hafi hann kynnt pennana á hand-
verksmörkuðum og sett inn mynd-
ir á Facebook-síðu sína. „Um síð-
ustu helgi var ég t.d. á handverks-
markaði í Keflavík. Pennarnir
vekja alltaf athygli og mér tekst
nú reglulega að selja einn og
einn penna. Það skiptir mig þó
minna máli því gleðin sem ég fæ
út úr því að búa þá til skiptir öllu
máli. Það sem er síðan helst fram
undan hjá mér er að halda áfram
að gera betri, fjölbreyttari og fal-
legri penna sem vonandi eiga eftir
að vekja lukku eins og þeir eldri.“
Engir tveir eins
Finnbogi Unnsteinn eyðir stærstum hluta frítíma síns í bílskúrnum heima í
Grindavík. Þar býr hann til fallega penna úr ólíkum viðartegundum og dýrahornum.
Benedikt og félagar hjá Verkfærasölunni eru alltaf tilbúnir til að veita viðskipta-
vinum faglega ráðgjöf við val á verkfærum og áhöldum. MYnD/gVa
Verkfærasalan var stofnuð árið
1997 og hefur alla tíð verið á
sama stað, í Síðumúla 11. Í nóvem-
ber var opnuð ný verslun í Dals-
hrauni 13 í Hafnarfirði og að sögn
Marteins Guðbergs Þorlákssonar,
sem sér um innkaup og markaðs-
mál, verður það til þess að þjón-
usta við viðskiptavini Verkfæra-
sölunnar eykst enn meir. „Fyrir-
tækið vill vera leiðandi í að bjóða
fjölbreytt vöruúrval frá traustum
og viðurkenndum framleiðendum
og hjá Verkfærasölunni fæst mikið
af verkfærum fyrir fagmenn. Þar
má helst nefna verkfærin frá Mil-
waukee sem hefur verið brautryðj-
andi á sínu sviði.“
Milwaukee býður upp á stærstu
línuna í rafhlöðuverkfærum, yfir
áttatíu vélar sem ganga fyrir
sömu rafhlöðunni í 18 volta og
yfir sextíu vélar í 12 volta línunni.
„Meðal nýjunga frá Milwaukee
eru 6Ah og 9Ah rafhlöður og Blu-
etooth-tenging við nýjustu vélarn-
ar sem kallast ONE-KEY. ONE-
KEY appið gerir notanda kleift að
halda utan um allar vélar á vinnu-
stöðum. Hver vél er skráð í kerfið,
öll helstu verkfærin á einum stað
Verkfærasalan er leiðandi fyrirtæki á Íslandi í sölu og þjónustu á verkfærum og áhöldum fyrir fagmenn.
hægt er að uppfæra kaupdag fyrir
ábyrgð með því að skanna inn
kvittun, skrá í hvaða verki vélin
er, staðsetja vélina, skrá týnd-
ar vélar í kerfið og læsa stolnum
vélum. Appið er bæði fyrir iOS og
Android,“ útskýrir Marteinn.
Hann nefnir líka að í ONE-KEY
appinu sjáist notkun á hverri vél
fyrir sig og þannig sé möguleiki á
að breyta stillingum eins og snún-
ingshraða og átaki á borvélum,
bankvélum og herslulyklum og
fylgjast með stillingum á pressvél-
um fyrir vatnsfittings og kapalskó.
Það henti til dæmis vel fyrir sjálf-
snittaðar skrúfur þar sem hægt er
að stilla á réttan hraða og afl.
„Svo erum við með Ryobi-verk-
færi í miklu úrvali sem hafa sann-
að sig sem verkfæri fyrir þá sem
vilja gera meira fyrir minna. Þar
getur þú keyrt yfir fimmtíu vélar
á sömu rafhlöðunni, allt frá borvél
til sláttuvélar.“
Hjá Verkfærasölunni má einn-
ig finna mikið af verkfærum og
tækjum frá öðrum framleiðend-
um, jafnt til heimilisnota sem fyrir
fagmanninn. Allt eftir þörfum
hvers og eins. Má þar nefna hand-
verkfæri frá Bessey, Wera, Hulta-
fors, Gedore og Knipex, rafsuðu-
vörur frá Telwin og loftpressur
frá Fini. „Við erum líka með mikið
af aukahlutum fyrir þau verkfæri
sem eru í sölu hjá okkur og má þar
nefna sagarblöð, bora, slípivörur
og festingarvörur,“ segir Marteinn
og bætir við að tekið sé vel á móti
öllum í Verkfærasölunni og fagleg
ráðgjöf veitt við val á verkfærum
og áhöldum.
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
8
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
A
-C
4
0
C
1
B
7
A
-C
2
D
0
1
B
7
A
-C
1
9
4
1
B
7
A
-C
0
5
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
A
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K