Fréttablaðið - 30.11.2016, Side 32
jólagjöf fagmannsins Kynningarblað
30. nóvember 201610
Bólstrarinn sigurjón umkringdur fallegum leðurvörum sem hannaðar voru á leður-
verkstæðinu. mYnD/gVa
Belti og axlabönd hafa verið búin til á leðurverkstæðinu frá upphafi eða í áttatíu ár. nú hafa slaufur bæst við framleiðsluna.
Drífa skúladóttir við axlabandavélina góðu. Drífa á mestan heiðurinn af búð leðurverkstæðisins að sögn sigurjóns.
Bólstrarinn Sigurjón Kristensen
notar alls kyns verkfæri á degi
hverjum, bæði við húsgagnafram
leiðslu og á leðurverkstæði sínu.
Hann segir bólstrara nota ýmis
tæki og tól eins og saumavélar,
heftibyssur, límkönnur og hand
verkfæri. Áður fyrr hafi sérstök
tól tilheyrt bólstrurum, eins og
hamrar með segli, borðastrekkj
arar og fleiri tól.
Allt nýtt
Fyrir þremur árum keypti Sigur
jón rekstur Leðurverkstæðis
Reykjavíkur sem var í eigu fóstur
afa hans og hefur verið til í áttatíu
ár. „Ég hef haft Leðurverkstæðið í
hjáverkum og haldið áfram þeirri
framleiðslu sem þar var, til dæmis
gerð axlabanda og belta. Nýlega
ákvað ég að blanda saman bólstr
uninni og Leðurverkstæðinu því
þegar ég framleiði mikið af hús
gögnum úr leðri fellur mikið af
bútum til sem ekki er hægt að nota
í húsgögnin. Ég safnaði þeim alltaf
og safna enn og nú erum við farin
að nota þetta og búum til vörur
sem við seljum svo á Leðurverk
stæðinu,“ útskýrir Sigurjón.
Vöruþróun í gangi
Í síðustu viku var opnuð í fyrsta
skipti í áttatíu ára starfsemi
Leður verkstæðisins verslun þar
sem vörurnar sem þar eru fram
leiddar eru til sölu. „Við vorum að
frumsýna nokkrar línur sem við
búum til úr leðri sem annars færi
í ekki neitt. Til dæmis svuntur og
slaufur úr afgöngum.“
Sigurjón segir Drífu Skúladótt
ur eiga mestan heiðurinn af slaufu
gerðinni og opnun verslunarinn
ar en hún er nýlega farin að starfa
með honum, bæði á Leðurverkstæð
inu og við bólstrunina. „Með þessu
náum við að nýta það sem fellur
til í bólstruninni. Það er gaman að
því í góðærinu að nýta búta og vera
umhverfisvæn um leið. Við erum
að þreifa okkur áfram með ýmsar
nýjar vörur svo sem buddur og hálf
gerða sjópoka. Sjópokinn hefur til
dæmis verið í fæðingu í nokkrar
vikur en hann er úr eins konar segli
sem er vísun í gamla sjópokann og
svo blöndum við saman við hann
leðurbútum sem falla til af verk
stæðinu. Pokinn er svolítið gróf
ur en við erum líka að gera minni
týpur og í fleiri litum.“
Gömlu tækin enn notuð
Verslunin er skreytt með skemmti
legum verkfærum sem eru orðin
ævagömul en þau notaði afi Sigur
jóns á Leðurverkstæðinu. „Nýj
asta græjan er frá 1988 og það er
vél sem heggur framan af beltum
og gerir götin. Það er Atari tölva
í þeirri græju þannig að þetta
var eina tækniundrið á staðnum,“
segir Sigurjón í léttum dúr. Að
spurður segist hann nú hafa upp
fært verkfærakassann aðeins. „Við
erum samt sem áður enn að nota
sumar af skurðarvélunum og ýmis
verkfæri sem var hætt að nota
þegar ég fæddist.“
Hönnunarvinnan skemmtilegt ferli
Sigurjón var beðinn um að lýsa
daglegu starfi bólstrarans. „Við
erum fjögur hér í húsgagnafram
leiðslunni og fáum timbur og
járnagrindur sem þarf að undir
vinna. Það þarf að setja fjaðra
system í grindurnar eða teygju
dúka, það er ýmiss konar. Eitt
verkferlið felst í því að setja
þetta saman. Síðan eru aðrir í því
að sníða og svo er þetta saumað
saman, skotið á þetta og endan
lega skrúfað saman. Þannig er
ferlið í framleiðslunni hjá okkur
en svo erum við líka að klæða
gömul húsgögn og ég lærði það
á sínum tíma. Þá þarf einhver að
taka að sér að rífa þau í sundur
og það vinnur hjá okkur smiður
sem er í því. Hann tekur líka tré
verkið og límir það upp og púss
ar og litar eða lakkar. Síðan þarf
að byggja upp setuna eða hvern
ig sem það er. Það er misjafnt
hvernig uppbyggingin á húsgagn
inu er.“
Það skemmtilegasta við starf
bólstrarans segir Sigurjón vera
fjölbreytnina en hann er með
húsgagnaframleiðslu þar sem
meðal annars er framleitt fyrir
Sýrusson og Á. Guðmundsson.
„Fjölbreytnin heldur manni
gangandi. Það skemmtilegasta
sem ég geri er að búa til nýjar
týpur og vinna þær með hönnuð
unum. Það kemur alltaf spreng
ing eftir áramótin hjá okkur
þegar hönnuðirnir eru að fara að
frumsýna nýjar vörur á Hönn
unarMars. Þá þarf að liggja yfir
prótótýpunni í margar vikur og
það er mjög skemmtilegt ferli,
það er að segja ef þetta er ekki
allt á síðustu stundu. Oft tek ég
þátt í að búa til prótótýpur af allt
að fimm nýjum hlutum.“
starf bólstrarans er alltaf fjölbreytt
sigurjón Kristensen bólstrari segir fjölbreytnina halda sér gangandi í starfi. Hann tók við rekstri áttatíu ára gamals leðurverkstæðis
fósturafa síns þar sem hann meðal annars vinnur vörur úr afgangsleðurbútum sem falla til við húsgagnaframleiðslu hans.
lilja Björk
Hauksdóttir
liljabjork@365.is
ÖLL MIÐVIKUDAGSKVÖLD Á STÖÐ 2 SPORT
VIKULEGUR SPJALLÞÁTTUR UM ÍÞRÓTTIR,
DÆGURMÁL, LISTIR OG MARGT FLEIRA.
3
0
-1
1
-2
0
1
6
0
4
:1
2
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
A
-D
C
B
C
1
B
7
A
-D
B
8
0
1
B
7
A
-D
A
4
4
1
B
7
A
-D
9
0
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
6
B
F
B
0
5
6
s
_
2
9
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K