Fréttablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 38
FÓLK ER KYNNINGARBLAÐ sem býður auglýs- endum að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit- stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega. ÚTGEFANDI: 365 MIÐLAR | ÁBYRGÐARMAÐUR: Svanur Valgeirsson UMSJÓNARMENN EFNIS: Elín Albertsdóttir, elin@365.is, s. 512 5349 | Lilja Björk Hauksdóttir, liljabjork@365.is, s. 512 5372 | Ragnheiður Tryggvadóttir, heida@365.is, s. 512 5367 Sólveig Gísladóttir, solveig@365.is, s. 512 5351 | Starri Freyr Jónsson, starri@365.is, s. 512 5358 | Vera Einarsdóttir, vera@365.is, s. 512 5357 SÖLUMENN: Atli Bergmann, atlib@365.is, s. 512 5457 | Jóhann Waage, johannwaage@365.is, s. 512 5439 | Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@365.is, s. 512 5429 | Ólafur H. Hákonarson, olafurh@365.is, s. 512 5433 Jakkaföt, frakkar, smóking, kjólföt og stak- ir jakkar flæða á móti blaðamanni þegar hann gengur inn á fatamarkað Jörmundar. Jörmundur er að afgreiða ungan mann sem kafar inn í fatarekka eftir einhverjum gull- mola. Þegar ungi maðurinn hefur kvatt setj- umst við niður innan um herðatré og Boss- jakka. „Það er svo sem ekki mikið að gera hjá mér enda er ég aðallega að þessu til að hafa stað til að hanga á,“ segir Jörmundur glettinn. „Þetta byggist allt á því að vera sem þægileg- ast fyrir mig enda opna ég ekki fyrr en eftir hádegi,“ segir hann en markaðurinn er opinn frá miðvikudegi til sunnudags frá 14 til 19. SLEPPTI SÉR Í FATAKAUPUM Jörmundur segist alltaf hafa viljað eiga góð föt. Oft fór hann í Kolaportið til að leita að einhverju spennandi. „Þar var kona sem hvatti mig til að koma og selja sjálfur. Ég var alltaf að kaupa föt, ekki bara á sjálfan mig heldur líka bræður mína og frændur sem síðan vildu kannski ekki eiga þau. Því fór þetta að safnast upp hjá mér. Ég ákvað því að fara að selja föt í Kolaportinu. Þá sleppti ég mér hins vegar alveg í kaupunum enda þótti mér það í lagi þar sem ég ætlaði að selja það allt saman aftur. En það fór nú ekki svo- leiðis,“ segir hann og hlær. „Síðan var ég svo heppinn fyrir fjórum eða fimm árum að fá þetta lagerpláss hér.“ SAFNAST UPP Jörmundi áskotnast föt eftir ýmsum leið- um. Stundum kaupir hann gamla lagera af búðum sem eru að hætta. „Svo leyfi ég fólki að skipta. Þannig geta menn komið með tvo jakka sem eru of litlir og fá í staðinn einn sem passar. Þá fjölgar enn hjá mér.“ Inntur eftir því hvort hann freistist ekki til að klæðast fötum af markaðnum segist hann eiga allt of mikið af fötum heima líka. „Ég setti mér þá vinnureglu að ef ég tek einn jakka af markaðnum heim þurfi ég að koma með tvo niður eftir í staðinn. En það geng- ur nú ekki alltaf eftir,“ segir hann kíminn. Hins vegar segist hann aldrei ganga í sömu fötunum í tvo daga í röð. „Það fer mun betur með fötin.“ SKIPULAGT KAOS Við fyrstu sýn virðist markaðurinn í algerri óreiðu en þegar betur er að gáð er skipulag á öllu. „Ég veit nokkurn veginn hvað ég á. Sumt hefur verið hér frá byrjun en það kemur allt- af að því að það selst. Ég held því alltaf fram að ef menn nenna að leita nógu lengi þá finni þeir eitthvað sem þeir geti alls ekki lifað án.“ TRUMP-JAKKARNIR SELDUST Úrvalið er mikið. „Ég á staka jakka, jakka- föt, smókinga, kjólföt, sjakket og hvíta smókinga og allt þar á milli,“ segir Jör- mundur sem bendir á Boss-jakkana sem liggja í sófanum. „Á ruglárunum var ekk- ert keypt nema það héti Boss eða Armani. Ég á dálítið af þeim jökkum. Svo átti ég líka tvo Trump-jakka, sem Donald Trump lét sauma fyrir einhverja verslun í sinni eigu. Þeir eru seldir,“ segir hann og bætir glett- inn við: „Þeir voru saumaðir í Kólumbíu.“ Og verðið? „Það er einfalt. Jakkaföt kosta tólf þúsund krónur ef þau eru úr hundrað prósent ull. Jakkarnir kosta svona átta, níu þúsund. Það eru ekki mörg verð í gangi, enda myndi það alveg æra mann,“ segir Jör- mundur. Hann tekur ekki við fötum nema þau séu alveg í lagi, og helst aðeins úr 100 prósent ull. Í KLÆÐSKERASAUMUÐUM FÖTUM En hvaðan kemur fataáhuginn? „Maður var bara alinn svona upp. Mamma annað- hvort saumaði föt á okkur bræðurna sjálf eða lét klæðskera sauma á okkur. Síðan þá hef ég alltaf lagt upp úr því að vera í al- mennilegum fötum.“ Jörmundur segir mikinn mun á fötum í dag og þegar hann var ungur. „Eftir að við gengum í EFTA hættu Íslendingar að smíða húsgögn og sauma föt. Allt var flutt inn í miklu verri gæðum,“ segir Jörmund- ur sem telur að föt og skór eigi að end- ast tuttugu ár eða meira. „Hingað fæ ég stundum föt frá saumastofunum Gefjun, Ultima og Iðunni sem eru jafnvel fimmtíu ára gömul og það sér ekki á þeim.“ LEIÐBEINIR UNGUM MÖNNUM Jörmundur segir viðskiptavini sína helst vera unga menn frá 15 ára upp í þrítugt. Hann segir í raun lítið upp úr fatasölunni að hafa en það sé hins vegar ekki tilgang- urinn að græða. „Mér finnst gaman að geta hjálpað mönnum að klæða sig. Ég tala nú ekki um eftir að þessi tíska kom til með allt of stuttum jökkum, níðþröngum með stutt- um ermum. Meira að segja Bjarni Ben lítur út eins og Angela Merkel í þessum fötum. Ef ég get aðeins lagfært þetta er ég mjög ánægður.“ ALDREI TVO DAGA Í SÖMU FÖTUNUM Jörmundur Ingi Hansen hefur frá unga aldri haft óbilandi áhuga á fötum. Hann rekur fatamarkað í kjallara á Laugavegi 25 og selur notuð föt sem honum hafa áskotnast með ýmsum hætti. Hann er kræsinn á föt og vill aðeins það besta. Sólveig Gísladóttir solveig@365.is Jörmundur Ingi innan um lítið brot af þeim jökkum og jakkafötum sem hann hefur til sölu á fatamarkaði sínum í kjallara á Laugavegi. MYND/EYÞÓR Holtasmára 1 (Hjartaverndarhúsið) Sími 571 5465 Smart Jólaföt, fyrir smart konur Netverslun á tiskuhus.is 1 . D E S E M B E R 2 0 1 6 F I M M T U D A G U R2 F Ó L K ∙ K Y N N I N G A R B L A Ð ∙ X X X X X X X XF Ó L K ∙ K Y N I N G A R B L A Ð ∙ T Í S K A 0 1 -1 2 -2 0 1 6 0 4 :2 0 F B 0 8 8 s _ P 0 5 4 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 5 1 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 5 K .p 1 .p d f F B 0 8 8 s _ P 0 3 8 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 B 7 F -A 8 F 0 1 B 7 F -A 7 B 4 1 B 7 F -A 6 7 8 1 B 7 F -A 5 3 C 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 3 A F B 0 8 8 s _ 3 0 _ 1 1 _ 2 0 1 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.