Fréttablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 20
365.is
Sími 1817
ENDALAUS
Gerðu verðsamanburð og lækkaðu GSM reikninginn þinn með 365
GSM
Hvaða leið hentar þér?
LEIÐ 1
Endalaus símtöl og sms
óháð fjarskiptafyrirtæki*
0 GB gagnamagn
790kr.
LEIÐ 2
Endalaus símtöl og sms
óháð fjarskiptafyrirtæki*
1 GB gagnamagn
1.680kr.
LEIÐ 3
Endalaus símtöl og sms
óháð fjarskiptafyrirtæki*
5 GB gagnamagn
2.680kr.
LEIÐ 4
Endalaus símtöl og sms
óháð fjarskiptafyrirtæki*
30 GB gagnamagn**
2.990kr.
365.is Sími 1817
*Greitt er fyrir farsímanotkun erlendis, til útlanda og í upplýsinganúmer. Á ferðalögum erlendis eru boðnir ferðapakkar Evróski Draumurinn og Ameríski Draumurinn
**30 GB gagnamagn er innifalið í hverjum mánuði en endalaust gagnamagn fyrir 2.000 krónur bætist við ef farið er umfram 30 GB
tækni
Instant Games nefnist nýjasta við
bótin við skilaboðaforritið Face
book Messenger. Með uppfærslunni
verður hægt að keppa við þá sem
maður spjallar við í tölvuleikjum
á borð við PacMan, Galaga, Words
with Friends og Space Invaders.
Slíkt hið sama var áður hægt að
gera í litlum körfuboltaleik sem falinn
var í forritinu. Instant Gamesviðbót
in fór í loftið í gær í þrjátíu löndum.
Ísland er þó ekki eitt þeirra eftir því
sem Fréttablaðið kemst næst.
Til að byrja með verða leikirnir
sautján talsins og eru framleiðendur
þeirra til að mynda Konami, King og
Zynga.
Allir leikirnir eru kóðaðir í
HTML5 og því þarf ekki að hlaða
þeim niður í snjallsímann líkt og
þeir væru stök snjallforrit.
„Við trúum því að þessi nýi vett
vangur fyrir tölvuleiki hafi í för
með sér nýjar og einstakar upplif
anir. Þær munu gleðja og skemmta
spilurum um allan heim,“ segir í
yfirlýsingu frá Kimihiro Horiuchi,
markaðsstjóra Konami. – þea
Innreið tölvuleikja í
Facebook Messenger
Finnska sprotafyrirtækið Oura Ring
aflaði um sex hundruð milljóna
króna í fyrstu fjármögnunarlotu
fyrirtækisins. Hyggst fyrirtækið
framleiða snjallhring sem fylgist
með líkamsstarfsemi þess sem ber
hringinn.
Á meðal fjársterkra aðila sem fjár
festu í fyrirtækinu eru vísindamenn
við MIT, stofnverkfræðingur Skype
og stofnandi skráaskiptaforritsins
Kazaa.
Hringurinn er kominn í almenna
sölu en fjármagnið á að nýtast til að
hjálpa til við framleiðslu og frekari
þróun Ourahringsins. Um sjötíu
prósent allra seldra eintaka hingað
til hafa verið seld í Bandaríkjunum.
Hringurinn virkar þannig að
hann er tengdur með Bluetooth við
snjallsíma þess er ber hringinn. Í
snjallsímann verður síðan að sækja
þar til gert forrit svo hægt sé að
skoða upplýsingarnar sem hringur
inn aflar.
Þar má til dæmis nefna hjartslátt,
andardrátt, svefn undanfarinna
nátta auk annarra þátta.
Út frá þessum upplýsingum mælir
hringurinn síðan með líkamsrækt
við hæfi fyrir notandann. Segir bún
aðurinn notandanum er hann
vaknar hvort hann sé úthvíldur
eður ei. Ef hann er úthvíldur mælir
hringurinn með mikilli áreynslu
þann daginn.
Í samtali við fréttasíðuna Tech
crunch segir forstjórinn, Petteri
Lahtela, að næstu skref í þróun
hringsins verði stigin í samráði við
listamenn og tískuhönnuði. Ljóst er
því að áhersla verður lögð á fegurð
hringsins á næstunni.
Á Techcrunch er sömuleiðis
greint frá því að hringurinn eigi auð
velt með að safna upplýsingunum
þar sem merki úr æðum í fingrum
séu sterkari en úr æðum á úlnlið.
Þaðan fá snjallúr sín merki.
Oura er hins vegar ekki eina fyrir
tækið sem framleiðir snjallhringa en
það gerir Ringly sömuleiðis. Hringar
Ringly gegna sama hlutverki og
Oura, það er að miðla upplýsingum
um ástand líkamans í snjallsíma
notandans. thorgnyr@frettabladid.is
Fjárfesta fyrir
600 milljónir í
snjallhring
Finnska sprotafyrirtækið Oura Ring vill framleiða
snjallhring sem fylgist með starfsemi líkamans.
Hringurinn frá Oura Ring. NORdicpHOtOs/AFp
pac-Man er einn aðgengilegra leikja í
Facebook Messenger.
Oura-hringurinn mælir
hjartslátt, öndun og aðra
líkamsstarfsemi og miðlar
upplýsingum í snjallsíma.
til að byrja með verða
leikirnir sautján talsins og
eru framleiðendur til að
mynda konami og king.
1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U d A G U r20
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
6
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
0
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
2
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
B
7
F
-6
8
C
0
1
B
7
F
-6
7
8
4
1
B
7
F
-6
6
4
8
1
B
7
F
-6
5
0
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
4
B
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K