Fréttablaðið - 01.12.2016, Blaðsíða 84
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, Ólafur H. Hákonarson olafurh@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
SAMKVÆMT BÓKSÖLU Í PENNANUM EYMUNDSSON UM LAND ALLT
METSÖLULISTI EYMUNDSSON
VIKAN 23.11.16 - 29.11.16
1 2
5 6
7 8
109
43 Pabbi prófessor Gunnar HelgasonHeiða Steinunn Sigurðardóttir
Þín eigin hrollvekja
Ævar Þór Benediktsson
Vonda frænkan
David Walliams
Elsku Drauma mín
Vigdís Grímsdóttir
Svartigaldur
Stefán Máni
Svartalogn
Kristín Marja Baldursdóttir
Petsamo
Arnaldur Indriðason
Aflausn
Yrsa Sigurðardóttir
Tvísaga
Ásdís Halla Bragadóttir
Æ fingar hafa geng-ið vonum fram-ar. Við hittumst á þriðjudag og mundum allt og þetta lofar
góðu. Vonandi munum við allt
þegar við stöndum á sviðinu,“ segir
Eyþór Arnalds en hann mun stíga á
svið með Tappa tíkarrass í kvöld á
fullveldispönktónleikum sem fram
fara á Hard Rock.
Tappa tíkarrass er óþarfi að
kynna, en í þeirri hljómsveit sleit
sem Björk unglingsskónum með og
sló í gegn í Rokki í Reykjavík. Björk
verður reyndar ekki með að þessu
sinni og því mun upprunalegur
söngvari Tappans, Eyþór Arnalds,
sjá um söng og önnur tilþrif. Þetta
verða fyrstu tónleikar Tappa tíkar-
rass síðan hljómsveitin spilaði síð-
ast í Safarí 1985.
„Ég var söngvari á undan Björk og
síðar með henni. Við vorum saman
í Rokki í Reykjavík en ég hætti í
hljómsveitinni þegar ég fór að læra
á selló,“ segir Eyþór. „Það má kalla
þetta endurkomu mína í pönkið
en hljómsveitin er svo forn að hún
spilaði síðast árið 1985. Síðan hefur
hún legið í dvala. En mér þykir vænt
um þessa hljómsveit, þetta voru og
eru miklir vinir mínir og pönkið á
Íslandi var mjög fallegt.“
Upphaflega áttu Taugadeildin
og Q4U að spila á tónleikunum
en vegna hjartaþræðingar Árna
Daníels Júlíussonar duttu þær út. Í
staðinn telja Suð og Tappi tíkarrass
í myljandi pönk. Suð er rokktríó
sem sendi frá sér sína aðra plötu á
dögunum – Meira suð. Fræbbblarnir
byrja kvöldið og Jonee Jonee endar
það, en bandið kom síðast fram árið
1982.
„Pönkið á Íslandi var öðruvísi
en pönkið í Bretlandi því það var
svo mikil gleði í kringum þetta hér.
Pönkið í Bretlandi var svolítið eins
og stéttabarátta en á Íslandi var það
ákall um frelsi. Við vorum að upp-
götva að heimurinn væri fullur af
möguleikum,“ segir Eyþór.
Síðustu ár hefur hann meira verið
þekktur fyrir að vera athafnamaður
og pólitíkus en ekki syngjandi á
sviði. Hann er stjórnarformaður í
hvalaskoðunarfyrirtækinu Special
Tours sem á og rekur fjóra báta.
„Það er mjög skemmtileg útgerð og
jákvæður andi svífur yfir enda er
ég með gott starfsfólk,“ segir hann
kátur. benediktboas@365.is
Sagan á bak
við nafnið
Nafnið Tappi tíkarrass vekur alltaf
athygli. Eyþór segir að það hafi
verið pabbi Jakobs Magnússonar
bassaleikara sem hafi átt það.
„Magnús, hann var alltaf jákvæður
og ákaflega skemmtilegur maður.
Hann spurði okkur einhvern
tímann eftir æfingu hvernig gengi
og við sögðum sem svo að þetta
væri allt að smella. Og þá sagði
hann: Já, þetta smellur eins og
tappi í tíkarrass. Þá gripum við
hann á orðinu og sagan segir að
þetta sé orðtæki að vestan.“
Tappi
tíkarrass
Stofnuð árið 1981.
Stofnmeðlimir hennar voru
Eyþór Arnalds (söngur), Jakob
Smári Magnússon (bassi), Eyjólfur
Jóhannsson (gítar), og Oddur F.
Sigurbjörnsson (trommur).
Síðar bættust við þau Björk
Guðmundsdóttir (söngur) og
Guðmundur Þór Gunnarsson
(trommur).
Sveitin gaf út tvær plötur –
Bitið fast í vitið (1982) og Miranda
(1983).
Í kvöld fara fram fullveldispönktónleikar
á Hard Rock. Þar stígur á svið Tappi tíkar-
rass sem spilaði síðast í Safarí árið 1985.
Eyþór Arnalds, upprunalegur söngvari
hljómsveitarinnar, mun þenja raddböndin.
Tappa
tíkarrass
Snýr aftur í
Skjáskot úr myndinni
Rokk í Reykjavík þar sem
hljómsveitin spilaði tvö
lög, Hroll og Dúkkulísur.
Eyþór Arnalds rekur nú hvala-
skoðunarfyrirtækið Special Tours
við Gömlu höfnina í Reykjavík.
Fyrirtækið býður upp á hvalaskoð-
unar-, lunda-, norðurljósa-, hvata- og
skólaferðir auk kvöldverðarsiglinga.
Langt er síðan Eyþór steig á svið með
Tappa tíkarrass. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
1 . d e s e m b e r 2 0 1 6 F I m m T U d A G U r68 L í F I ð ∙ F r É T T A b L A ð I ð
0
1
-1
2
-2
0
1
6
0
4
:2
0
F
B
0
8
8
s
_
P
0
8
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
7
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
0
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
8
8
s
_
P
0
1
2
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
B
7
F
-6
D
B
0
1
B
7
F
-6
C
7
4
1
B
7
F
-6
B
3
8
1
B
7
F
-6
9
F
C
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
5
A
F
B
0
8
8
s
_
3
0
_
1
1
_
2
0
1
C
M
Y
K