Fréttablaðið - 15.07.2016, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 15.07.2016, Blaðsíða 20
Matgæðingurinn Snorri Guð- mundsson hefur haft áhuga á mat- argerð frá því hann fór að elda ofan í sjálfan sig sem ungling- ur og prófa að fikta í eldhúsinu. Hann segir fjölskyldu sína alla vera mikið matfólk og yfirleitt mikið um kræsingar í kringum hana. Snorri byrjaði nýlega með eigið blogg þar sem hann setur inn uppskriftir og myndir af matnum sem hann eldar en hann er með ljósmyndadellu á byrjunarstigi að eigin sögn. „Bloggið varð til út frá hvatn- ingu frá vinum og vandamönn- um eftir að ég fyllti Facebook-ið hjá mér af matarmyndum. Blogg- ið var aðallega hugsað til þess að halda utan um matarmyndirn- ar mínar og þær uppskriftir sem ég held upp á og deila þeim með öðrum sem hafa áhuga. Svo setur það líka smá pressu og hvatningu á mig til þess að halda áfram að læra nýja hluti tengda matargerð og matarljósmyndun.“ Snorra þykir gaman að búa til karamellur og eftirrétti en skemmtilegast þykir honum þó að prófa að gera eitthvað nýtt og prófa sig áfram. Hann segist aðal- lega elda og baka fyrir sína nán- ustu en að baksturinn endi stund- um ofan í vinnufélögunum líka. Snorri gæti ekki verið ánægðari þessa dagana en hann er nýkominn úr brúðkaupsferð frá Bandaríkj- unum. Hann og Nanna Guðlaug- ardóttir giftu sig á dögunum og í ferðinni fékk Snorri innblástur til góðra verka í eldhúsinu. Hann gefur lesendum hér uppskrift að rækju-taco sem hann smakk- aði í Los Angeles. „Þar er allt er vaðandi í gómsætum mexíkósk- um mat, en þar fékk ég ótrúlega góðar rækju-tacos sem mig lang- aði til þess að endurskapa hérna heima og þessi uppskrift er af- raksturinn af því. Hún er einföld í framkvæmd, sumarleg og góm- sæt,“ segir Snorri en fallegu mat- armyndirnar hans og uppskriftir að réttunum er að finna á snorri- eldar.com. Rækju-taco með pico de gallo Rækjurnar 24 risarækjur (sirka 350 gr) 2 msk. ólífuolía 2 hvítlauksrif 1 tsk. cumin 3/4 tsk. cayenne pipar 1/2 tsk. laukduft (onion powder) 1/2 tsk. reykt paprika 1/2 tsk. salt safi úr 1/4 lime Setjið olíuna í skál, kreistið hvítlauk- inn út í og hrærið kryddunum svo saman við. Setjið rækjurnar svo út í blönduna og leyfið þeim að marine- rast í að minnsta kosti klukkutíma, því lengur sem þær fá að liggja því meira bragð fæst. Klárið að undir- búa afganginn af meðlætinu áður en rækjurnar eru eldaðar. Steikið rækjurnar á mjög heitri pönnu í sirka 2,5 mínútur á hvorri hlið. Kreistið svo lime safa yfir að lokum. guacamole 3 avókadó 1 hvítlauksrif 1/4 pakkning ferskur kóríander (líka stilkarnir) safi úr 1/4 lime salt & pipar eftir smekk. Blandið öllum hráefnunum vel saman í matvinnsluvél. pico de gallo 1 pakki kirsuberjatómatar 1 lítill rauðlaukur 1 jalapeño eða rautt chili 1 hvítlauksrif 1/2 bolli kóríanderlauf Safi úr 1/4 lime Salt & pipar eftir smekk Skerið allt hráefnið smátt og bland- ið vel saman. Sýrði rjóminn 100 g 10% sýrður rjómi 2 msk. smátt skorin kóríanderlauf safi úr 1/4 lime Hrærið öllum hráefnunum vel saman. Rauðkálssalat 100 g rauðkál skorið þunnt 2 rifnar gulrætur 1 pakkning mini-tortillur (8 stykki) Hitið að lokum mini-tortillurnar á pönnu og raðið svo á þær guaca- mole, rauðkálssalatinu, pico de gallo, rækjunum og toppið með sýrða rjómanum. Skreytið með af- gangs kóríander og njótið. SumaRleguR RækjuRéttuR Gaman væri að elda og gæða sér á girnilegum rétti Snorra Guðmundssonar, rækju-taco með pico de gallo, um helgina. Snorri er mikill matgæðingur með ljósmyndadellu og heldur hann úti blogginu Snorri eldar. Snorri er mikill áhugamaður um bæði mat og ljósmyndun. Hann sameinar áhugamálin á snorrieldar.com. Allir hjartanlega velkomnir SumarhátíðinStefnumót við Múlatorg Hin árlega sumarhátíð Sumarhússins og garðsins og Lindarinnar verður haldin á Selfossi laugardaginn 16. júlí frá kl. 11-17. Stefnumótið er við Múlatorg á horni Eyravegar og Fossheiðar. Markaðsstemning, tónlist, ljósmynda- og plöntusýning Tískufatnaður, handverk, listmunir ásamt grænmeti og plöntum er til sölu á markaðnum Ljósmyndasýning Páls Jökuls í garðinum á Fossheiði 1 Sýning á fjölærum og ætum plöntum Linus Orri og Jamie í hljómsveitinni Croo ked chimmey sjá um tón listina Tríó 3 C 1 5 . j ú l í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R4 F ó l k ∙ k y n n i n G A R b l A ð ∙ X X X X X X X XF ó l k ∙ i ∙ l í F S S T í l l 1 5 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 3 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 2 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 5 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 3 -4 3 D C 1 A 0 3 -4 2 A 0 1 A 0 3 -4 1 6 4 1 A 0 3 -4 0 2 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 6 B F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.