Fréttablaðið - 15.07.2016, Blaðsíða 54
SÍMAR AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Svanur Valgeirsson svanur@365.is ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 512-5401: Gústaf Bjarnason gustaf@365.is,
Hafsteinn Hafsteinsson hafsteinn@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@365.is, Sigfús Örn Einarsson sigfus@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is FÓLK/SÉRBLÖÐ SÍMI
512-5402: Atli Bergmann atli.bergmann@365.is, Bryndís Hauksdóttir bryndis@365.is, Jóhann Waage johannwaage@365.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@365.is, FÓLK OG
SÉRBLÖÐ EFNI: Sólveig Gísladóttir solveig@365.is og Vera Einarsdóttir vera@365.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 512-5403: Hrannar Helgason hrannar@365.is,
Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Sigrún Helga Guðmundsdóttir sigrunh@365.is
Við byrjum á einum og þeir stefna á að vera búnir að opna 30 um mitt næsta ár.
Þeir ætla að byrja á að opna í Port-
land í Oregon,“ segir allskonar-
maðurinn Unnar Helgi Daníelsson
um útrás pitsustaðarins Ugly.
Auk pitsustaðarins á Unnar og
rekur skemmtistaðinn Dúfnahóla
10 ásamt Arnari Finni Arnarsyni og
á einnig fyrirtækið Reykjavík Rocks.
Reykjavík Rocks sérhæfir sig í að
skemmta útlendingum, sem vill til
að eru oft vel stæðir, og var það ein-
mitt í gegnum fyrirtækið sem Unnar
komst í kynni við Taylor Sause sem
ólmur vill Ugly til Bandaríkjanna.
Fyrir þá sem ekki vita þá er sér-
staða pitsustaðarins Ugly fólgin í
áður óþekktri fjölbreytni í pitsu-
botnum en boðið er upp á blóm-
káls- og kjötbotna auk hefðbundn-
ari deig- og speltbotna.
Var það kannski blómkálsbotn-
inn sem náði athygli Bandaríkja-
mannsins.
„Hann var kúnni hjá mér í gegn-
um Reykjavík Rocks og kom bara
hingað sem ferðamaður. Þannig
kynntist ég honum. Svo var hann
forvitinn um hvað ég var að gera
og ég fór að útskýra fyrir honum
þessa blómkálsbotna,“ segir Unnar
og heldur áfram að útskýra hvernig
útrásin kom til: „Svo kom hann og
skoðaði þetta fyrir tveimur mán-
uðum. Síðan þá hefur þetta bara
gerst ótrúlega hratt.“
Ekki er langt síðan Ugly var opn-
aður, en tveir staðir eru starfræktir
á höfuðborgarsvæðinu; í Kópavogi
og Grafarvogi. Stefnan er svo sett á
að opna þriðja staðinn hér á landi á
þessu ári en sá verður í Hafnarfirði.
En á mánudaginn mun staðurinn
einnig hefja samstarf sitt við kleinu-
hringjavagninn Dons Donuts. Stefnt
er að opnun í Portland í byrjun
október í gömlu verslunarhúsnæði
sem breytt verður í veitingastað.
Unnar Helgi er að vonum stoltur
af árangrinum og hlakkar til kom-
andi tíma. „Oftast tekur maður öllu
með fyrirvara, þegar fólk er svona
að segja hitt og þetta. Sérstaklega
Ameríkanar. En svo er þetta bara
„for real“. Ég fer út eftir tvo mánuði
og hjálpa þeim að opna fyrsta stað-
inn,“ segir hann spenntur og segir
að stefnan hafi alltaf verið sett á að
gera Ugly að keðju.
Konsept staðarins mun að sögn
eigandans haldast óbreytt en
boðið verði upp á nýja vöru þarna
ytra sem hann segir að sjokkera
muni Íslendinga. „Ég veit ekki alveg
hvort ég vil segja frá því strax. Þetta
er alveg nýtt hjá okkur og nýtt alls
staðar og er kannski svolítið við-
kvæmt fyrir marga,“ segir hann dul-
arfullur þegar hann er inntur eftir
því um hvaða nýjung er að ræða.
Auk veitingastaðarins verða
blómkálsbotnar framleiddir í auknu
magni og seldir í heilsumatvöru-
verslunum.
„Við erum að stefna á að gera
það á Íslandi líka svo fólk geti búið
til blómkálspitsu heima hjá sér án
þess að þurfa að eyða hellingstíma
í það,“ segir Unnar Helgi og bætir
við að samkvæmt hans vitneskju
verði þeir fyrstir allra í heiminum til
þess að framleiða blómkálsbotna til
sölu. „Ég er búinn að vera að skoða
markaðinn vel, sá ekkert svona og
hugsaði bara: Já, ókei, þarna er ég
með eitthvað.“
gydaloa@frettabladid.is
Ljótar pitsur á
leið til Bandaríkjanna
Pitsustaðurinn Ugly mun síðar á árinu opna sinn fyrsta stað í Port-
land í Oregon. Stefnan er svo sett á að opna fleiri staði, bæði hér og í
Bandaríkjunum, auk þess að hefja framleiðslu á blómkálsbotnum.
Unnar Helgi vonar að sjálfsögðu að Kaninn taki vel í blómkálsbotninn. Það var í gegnum einn af kúnnum Unnars Helga hjá
fyrirtækinu Reykjavík Rocks sem útrásin hófst. FRÉTTABLAÐIÐ/EyÞÓR
ALLAR HELGAR
365.is Sími 1817
Afinn sem allir elska og fjörugu vinkonurnar Skoppa
og Skrítla skemmta börnum og foreldrum á laugardags-
og sunnudagsmorgnum á Stöð 2.
HELGARFJÖR FYRIR FLOTTASTA FÓLKIÐ
Oftast tekur
maður öLLu með
fyrirvara, þegar fóLk er
svOna að segja hitt Og
þetta. sérstakLega amerík-
anar. en svO er þetta Bara
„fOr reaL“. ég fer út eftir
tvO mánuði Og hjáLpa þeim
að Opna fyrsta staðinn.
1 5 . j ú l í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R26 l í F i ð ∙ F R É T T A B l A ð i ð
1
5
-0
7
-2
0
1
6
0
5
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
A
0
3
-2
1
4
C
1
A
0
3
-2
0
1
0
1
A
0
3
-1
E
D
4
1
A
0
3
-1
D
9
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
3
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K