Fréttablaðið - 15.07.2016, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 15.07.2016, Blaðsíða 10
Maður á ekki að þurfa að venjast þessu Sema Erla Serdar, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir suma fjölmiðla og stjórnmálamenn ala á ótta í garð minnihlutahópa hér á landi. Hún nefnir Útvarp Sögu og Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem dæmi í því sambandi. Sema Erla segir áreitið í sinn garð komið langt út fyrir öll velsæmismörk. Fréttablaðið/Eyþór Fordómar breytast í hatur. Ótti breytist oft í ofbeldi eða annað verra. Þetta leiðir til ójafnaðar og mismununar. Það viljum við ekki og þess vegna verðum við að hafna þessum sundrungaröflum,“ segir Sema Erla Serdar, formaður Samfylkingarinn- ar í Kópavogi. Sema hefur verið talsvert í umræðunni undanfarið þegar athygli var vakin á afar ógeðfelld- um ummælum sem skrifuð voru í athugasemd undir frétt um Semu og það ekki í fyrsta sinn. Konan sem skráð var fyrir athugasemdinni, þar sem þess var óskað að Sema myndi deyja í hryðjuverkaárás, er leikskólakennari í Vestmanna- eyjum, en hún sagðist ekki standa fyrir skrifunum. Síðar kom í ljós að sambýlismaður hennar hafði ritað ummælin. Athugasemdir sem þessar, einkaskilaboð og símtöl eru daglegt brauð hjá Semu. Hún er fædd og uppalin á Íslandi, móðir hennar íslensk og faðirinn frá Tyrklandi. Sema segist ekki alltaf hafa upplifað fordóma. „Ég er fædd inn í þjóðkirkjuna eins og allir Íslendingar, skírð og fermd. En það er nafnið; Sema er tyrkneskt nafn þannig að það kannski býður upp á þetta, ég veit það ekki,“ segir Sema og bætir við að hún hafi reyndar síðar skráð sig úr þjóðkirkjunni. Hatur í hennar garð hafi hafist þegar hún fór að taka þátt í opin- berri umræðu, stjórnmálum og sam- félagsrýni. Verður verra og verra „Ég sá aldrei fyrir að þetta myndi ganga svona langt. Þetta hefur stig- magnast og orðið verra og verra. Það er alveg sama hvort það er eitt- hvað sem ég segi eða skrifa og verið er að fjalla um í fréttum; það getur tengst Samfylkingunni, Tyrklandi eða innflytjendamálum, þá er mér strax blandað inn í umræðuna. Oft án þess að ég hafi nokkuð með hana að gera. Um daginn urðu óeirðir í Þýskalandi og þá skrifaði einn athugasemd undir fréttina: Þetta er það sem Sema vill bjóða upp á hér á landi.“ Fyrst fór Sema að veita haturs- fullum ummælum um sig á kom- mentakerfum athygli. „Svo fóru að koma tölvupóstar, einkaskilaboð á Facebook og þetta er orðið þannig að fólk er að hringja. Því finnst í lagi klukkan hálf tíu á þriðjudagskvöldi að hringja til þess að segja mér hvað allir múslimar séu hræðilegir. Endar á því að öskra á mann og skella á,“ útskýrir Sema. „Þetta er erfið barátta og mun vera löng en mikilvæg.“ Hún segir fólkið sem hringi yfir- leitt vilja úthúða henni. Sumir hafi þó bara spurningar. Sema hefur tekið upp á því að birta á Facebook- síðu sinni hatursfull ummæli fólks í sinn garð. Oft fær hún hringingar frá fólki sem vill að hún taki ummælin út. Sema hefur sagst ætla að verða við því þegar fólk biðst afsökunar á ummælunum. „En það gerist eigin- lega aldrei. Fólk kennir frekar öðrum um að hafa skrifað þau.“ Hryðjuverkamaður Sema segist löngu hætt að svara ummælum sem um hana falla í kommentakerfum miðlanna. „Ég lærði fljótt að það er ekki hægt,“ segir hún. „Ég nota bloggið til að svara þessum fullyrðingum sem eru settar fram. Ég hef safnað saman þessum hræðilegu athugasemdum og birt. Það geri ég undir þeim formerkjum að hér sé um hrikalegt persónuníð að ræða. Það er verið að setja út á uppruna minn, ég er sökuð um alls konar hluti. Ég er hryðjuverkamaður og skoðanakúgari, þöggunarkommúnisti og gyðingahat- ari. Allt vegna þess að pabbi minn er Tyrki. Ég hef birt þetta reglulega. Það virðist vera eina vopnið sem maður hefur til þess að skila skömminni. Svona athugasemdir segja ekki neitt um mig, þær segja allt um þann sem setur þetta fram. Maður gerir þetta í þeirri von að einhver sem sér þessi komment sé vinur eða fjölskyldu- meðlimur sem getur talað við þetta fólk og sagt því að þetta sé ekki í lagi.“ leitar til lögreglu Sema stóð í þeirri trú þegar hún byrjaði að birta athugasemdir fólks að áreitið myndi minnka en sú hefur ekki verið raunin. „Ég hef í langan tíma setið undir þessu. Ekki bara ég, heldur fjöl- skylda mín, vinir og aðrir nákomnir. Það er ekki gaman fyrir mömmu að sitja undir þessu – að það sé einhver að óska barninu hennar dauða í hryðjuverkaárás. Þetta er viðbjóður.“ Í vikunni ákvað hún að láta lög- reglu vita þegar hún fékk sérstak- lega grófa athugasemd undir nafni leikskólakennarans í Vestmannaeyj- um: Vona að Sema Erla Serðir farist í næstu hryðjuverkaárás skítmenna af hennar tagi (múslimaskítmenna). „Það hefur einu sinni á Íslandi fallið dómur í svona máli. Ég veit til þess að ítrekað hafa verið lagðar fram kærur en ekkert gerst í þessum málum. En nú hefur verið stofnað sérstakt embætti um hatursglæpi hjá lögreglunni, þannig að ég vona að það komi eitthvað út úr þessu. Það mun koma í ljós í haust og ef dómar falla höfum við allavega nýlegt fordæmi. Það mun gera mikið fyrir þessa baráttu gegn hatursorð- ræðu á netinu og fordómum.“ Sema segir þó að ekki megi gleyma þeim mikla stuðningi sem hún fær líka. „Ég fæ líka hringingar og skilaboð frá fólki sem stendur með mér. Segir að mín barátta hjálpi þeim. Þá verður þetta þess virði.“ þögnin verst En hvar liggja mörkin? Hvað má segja og hvað ekki? „Auðvitað er þetta erfitt að eiga við og viðkvæmt. Það er tjáningar- frelsi en þú getur ekki verið með morðhótanir. Það er bannað með lögum að mismuna fólki vegna uppruna, trúar eða annarra þátta sem einkenna líf þess. Auðvitað á fólk að geta leitað réttar síns í slík- um málum. Líka vegna þess að við eigum að geta fengið að tjá okkur óáreitt, en þessar athugasemdir og þetta áreiti í minn garð er komið út fyrir allt sem telst eðlilegt. Þetta er orðið hræðilegt. Við vitum hverjar afleiðingarnar af þessu verða. Við vitum hvað er að gerast í Evrópu og úti í heimi. Gullna reglan í öllu þessu er sú að þú skrifar ekkert á int- ernetið sem þú getur ekki sagt við fólk þegar það stendur fyrir framan þig. Ég hugsaði með mér, þegar mér var óskað dauða í hryðjuverkaárás, að ég þyrfti að gera eitthvað í mál- inu. Áður en þetta fer allt gjörsam- lega úr böndunum. Maður á ekki að þurfa að venjast þessu.“ Sema hefur ekki viljað svara skila- boðum og segir þögnina ögrandi fyrir netníðingana. „Þau verða vitlaus á því að ég svari þeim ekki. Þau vilja draga mig inn í þetta. Þessir sömu einstaklingar og eru að níðast á mér á netinu adda mér sem vini á Facebook. Hvernig dettur þeim í hug að ég fari að gefa þeim aðgang að mínu persónulega svæði? Þau vilja komast þangað því þau eru að ærast á þögninni.“ tikkar í öll boxin En, af hverju er formaður Sam- fylkingarinnar í Kópavogi orðinn holdgervingur íslamska ríkisins á Íslandi? „Þetta er mjög góð spurning,“ segir Sema og hlær. „Ég bara veit það ekki.“ Breski fjölmiðillinn The Guardian fór nýlega yfir kommentakerfin hjá sér í þeim tilgangi að greina haturs- umræðu, sem hefur líka verið mikið fjallað um í Bretlandi. „Þeirra niðurstöður í þessu eru þær að í fyrsta lagi þá verða konur mest fyrir hatursorðræðu. Þeir karlar sem urðu mest fyrir haturs- orðræðu voru litaðir eða samkyn- hneigðir. Þeir sem urðu minnst Ólöf Skaftadóttir olof@frettabladid.is Viktoría Hermannsdóttir viktoria@frettabladid.is Þú tekur ekki svona hóp af fólki og alhæfir með þessum hætti. föstudagsviðtal 1 5 . j ú l í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R10 F R é T T i R ∙ F R é T T A B l A ð i ð 1 5 -0 7 -2 0 1 6 0 5 :2 4 F B 0 5 6 s _ P 0 5 0 K _ N Y .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 4 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 0 7 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 0 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 1 A 0 3 -4 8 C C 1 A 0 3 -4 7 9 0 1 A 0 3 -4 6 5 4 1 A 0 3 -4 5 1 8 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 7 A F B 0 5 6 s _ 1 4 _ 7 _ 2 0 1 6 C M Y K
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.