Fréttablaðið - 15.07.2016, Side 10
Maður á ekki að þurfa að venjast þessu
Sema Erla Serdar, formaður Samfylkingarinnar í Kópavogi, segir suma fjölmiðla og stjórnmálamenn ala á ótta í garð minnihlutahópa
hér á landi. Hún nefnir Útvarp Sögu og Ásmund Friðriksson, þingmann Sjálfstæðisflokksins, sem dæmi í því sambandi.
Sema Erla segir áreitið í sinn garð komið langt út fyrir öll velsæmismörk. Fréttablaðið/Eyþór
Fordómar breytast í hatur. Ótti breytist oft í ofbeldi eða annað verra. Þetta leiðir til ójafnaðar og mismununar. Það viljum við ekki og þess
vegna verðum við að hafna þessum
sundrungaröflum,“ segir Sema Erla
Serdar, formaður Samfylkingarinn-
ar í Kópavogi.
Sema hefur verið talsvert í
umræðunni undanfarið þegar
athygli var vakin á afar ógeðfelld-
um ummælum sem skrifuð voru í
athugasemd undir frétt um Semu
og það ekki í fyrsta sinn. Konan
sem skráð var fyrir athugasemdinni,
þar sem þess var óskað að Sema
myndi deyja í hryðjuverkaárás,
er leikskólakennari í Vestmanna-
eyjum, en hún sagðist ekki standa
fyrir skrifunum. Síðar kom í ljós
að sambýlismaður hennar hafði
ritað ummælin. Athugasemdir sem
þessar, einkaskilaboð og símtöl eru
daglegt brauð hjá Semu.
Hún er fædd og uppalin á Íslandi,
móðir hennar íslensk og faðirinn
frá Tyrklandi. Sema segist ekki
alltaf hafa upplifað fordóma. „Ég er
fædd inn í þjóðkirkjuna eins og allir
Íslendingar, skírð og fermd. En það
er nafnið; Sema er tyrkneskt nafn
þannig að það kannski býður upp á
þetta, ég veit það ekki,“ segir Sema
og bætir við að hún hafi reyndar
síðar skráð sig úr þjóðkirkjunni.
Hatur í hennar garð hafi hafist
þegar hún fór að taka þátt í opin-
berri umræðu, stjórnmálum og sam-
félagsrýni.
Verður verra og verra
„Ég sá aldrei fyrir að þetta myndi
ganga svona langt. Þetta hefur stig-
magnast og orðið verra og verra.
Það er alveg sama hvort það er eitt-
hvað sem ég segi eða skrifa og verið
er að fjalla um í fréttum; það getur
tengst Samfylkingunni, Tyrklandi
eða innflytjendamálum, þá er mér
strax blandað inn í umræðuna. Oft
án þess að ég hafi nokkuð með hana
að gera. Um daginn urðu óeirðir
í Þýskalandi og þá skrifaði einn
athugasemd undir fréttina: Þetta er
það sem Sema vill bjóða upp á hér
á landi.“
Fyrst fór Sema að veita haturs-
fullum ummælum um sig á kom-
mentakerfum athygli.
„Svo fóru að koma tölvupóstar,
einkaskilaboð á Facebook og þetta
er orðið þannig að fólk er að hringja.
Því finnst í lagi klukkan hálf tíu á
þriðjudagskvöldi að hringja til þess
að segja mér hvað allir múslimar
séu hræðilegir. Endar á því að öskra
á mann og skella á,“ útskýrir Sema.
„Þetta er erfið barátta og mun vera
löng en mikilvæg.“
Hún segir fólkið sem hringi yfir-
leitt vilja úthúða henni. Sumir hafi
þó bara spurningar. Sema hefur
tekið upp á því að birta á Facebook-
síðu sinni hatursfull ummæli fólks í
sinn garð. Oft fær hún hringingar frá
fólki sem vill að hún taki ummælin
út. Sema hefur sagst ætla að verða
við því þegar fólk biðst afsökunar á
ummælunum. „En það gerist eigin-
lega aldrei. Fólk kennir frekar öðrum
um að hafa skrifað þau.“
Hryðjuverkamaður
Sema segist löngu hætt að svara
ummælum sem um hana falla í
kommentakerfum miðlanna. „Ég
lærði fljótt að það er ekki hægt,“
segir hún.
„Ég nota bloggið til að svara þessum
fullyrðingum sem eru settar fram. Ég
hef safnað saman þessum hræðilegu
athugasemdum og birt. Það geri ég
undir þeim formerkjum að hér sé um
hrikalegt persónuníð að ræða. Það er
verið að setja út á uppruna minn, ég
er sökuð um alls konar hluti. Ég er
hryðjuverkamaður og skoðanakúgari,
þöggunarkommúnisti og gyðingahat-
ari. Allt vegna þess að pabbi minn er
Tyrki. Ég hef birt þetta reglulega. Það
virðist vera eina vopnið sem maður
hefur til þess að skila skömminni.
Svona athugasemdir segja ekki neitt
um mig, þær segja allt um þann sem
setur þetta fram. Maður gerir þetta í
þeirri von að einhver sem sér þessi
komment sé vinur eða fjölskyldu-
meðlimur sem getur talað við þetta
fólk og sagt því að þetta sé ekki í lagi.“
leitar til lögreglu
Sema stóð í þeirri trú þegar hún
byrjaði að birta athugasemdir fólks
að áreitið myndi minnka en sú hefur
ekki verið raunin.
„Ég hef í langan tíma setið undir
þessu. Ekki bara ég, heldur fjöl-
skylda mín, vinir og aðrir nákomnir.
Það er ekki gaman fyrir mömmu
að sitja undir þessu – að það sé
einhver að óska barninu hennar
dauða í hryðjuverkaárás. Þetta er
viðbjóður.“
Í vikunni ákvað hún að láta lög-
reglu vita þegar hún fékk sérstak-
lega grófa athugasemd undir nafni
leikskólakennarans í Vestmannaeyj-
um: Vona að Sema Erla Serðir farist
í næstu hryðjuverkaárás skítmenna
af hennar tagi (múslimaskítmenna).
„Það hefur einu sinni á Íslandi
fallið dómur í svona máli. Ég veit
til þess að ítrekað hafa verið lagðar
fram kærur en ekkert gerst í þessum
málum. En nú hefur verið stofnað
sérstakt embætti um hatursglæpi
hjá lögreglunni, þannig að ég vona
að það komi eitthvað út úr þessu.
Það mun koma í ljós í haust og ef
dómar falla höfum við allavega
nýlegt fordæmi. Það mun gera mikið
fyrir þessa baráttu gegn hatursorð-
ræðu á netinu og fordómum.“
Sema segir þó að ekki megi
gleyma þeim mikla stuðningi sem
hún fær líka. „Ég fæ líka hringingar
og skilaboð frá fólki sem stendur
með mér. Segir að mín barátta hjálpi
þeim. Þá verður þetta þess virði.“
þögnin verst
En hvar liggja mörkin? Hvað má
segja og hvað ekki?
„Auðvitað er þetta erfitt að eiga
við og viðkvæmt. Það er tjáningar-
frelsi en þú getur ekki verið með
morðhótanir. Það er bannað með
lögum að mismuna fólki vegna
uppruna, trúar eða annarra þátta
sem einkenna líf þess. Auðvitað á
fólk að geta leitað réttar síns í slík-
um málum. Líka vegna þess að við
eigum að geta fengið að tjá okkur
óáreitt, en þessar athugasemdir og
þetta áreiti í minn garð er komið út
fyrir allt sem telst eðlilegt. Þetta er
orðið hræðilegt. Við vitum hverjar
afleiðingarnar af þessu verða. Við
vitum hvað er að gerast í Evrópu
og úti í heimi. Gullna reglan í öllu
þessu er sú að þú skrifar ekkert á int-
ernetið sem þú getur ekki sagt við
fólk þegar það stendur fyrir framan
þig. Ég hugsaði með mér, þegar mér
var óskað dauða í hryðjuverkaárás,
að ég þyrfti að gera eitthvað í mál-
inu. Áður en þetta fer allt gjörsam-
lega úr böndunum. Maður á ekki að
þurfa að venjast þessu.“
Sema hefur ekki viljað svara skila-
boðum og segir þögnina ögrandi
fyrir netníðingana.
„Þau verða vitlaus á því að ég svari
þeim ekki. Þau vilja draga mig inn í
þetta. Þessir sömu einstaklingar og
eru að níðast á mér á netinu adda
mér sem vini á Facebook. Hvernig
dettur þeim í hug að ég fari að gefa
þeim aðgang að mínu persónulega
svæði? Þau vilja komast þangað því
þau eru að ærast á þögninni.“
tikkar í öll boxin
En, af hverju er formaður Sam-
fylkingarinnar í Kópavogi orðinn
holdgervingur íslamska ríkisins á
Íslandi?
„Þetta er mjög góð spurning,“
segir Sema og hlær. „Ég bara veit
það ekki.“
Breski fjölmiðillinn The Guardian
fór nýlega yfir kommentakerfin hjá
sér í þeim tilgangi að greina haturs-
umræðu, sem hefur líka verið mikið
fjallað um í Bretlandi.
„Þeirra niðurstöður í þessu eru
þær að í fyrsta lagi þá verða konur
mest fyrir hatursorðræðu. Þeir
karlar sem urðu mest fyrir haturs-
orðræðu voru litaðir eða samkyn-
hneigðir. Þeir sem urðu minnst
Ólöf Skaftadóttir
olof@frettabladid.is
Viktoría
Hermannsdóttir
viktoria@frettabladid.is
Þú tekur ekki svona
hóp af fólki og
alhæfir með þessum hætti.
föstudagsviðtal
1 5 . j ú l í 2 0 1 6 F Ö S T U D A G U R10 F R é T T i R ∙ F R é T T A B l A ð i ð
1
5
-0
7
-2
0
1
6
0
5
:2
4
F
B
0
5
6
s
_
P
0
5
0
K
_
N
Y
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
7
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
0
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
A
0
3
-4
8
C
C
1
A
0
3
-4
7
9
0
1
A
0
3
-4
6
5
4
1
A
0
3
-4
5
1
8
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
A
F
B
0
5
6
s
_
1
4
_
7
_
2
0
1
6
C
M
Y
K