Víkurfréttir - 10.11.1983, Qupperneq 10
10 Fimmtudagur 10. nóvember 1983
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 10. nóvember 1983 11
Myndatökur við
/a\\ra hœfi. >
Hafnargötu 26 - Keflavik - Stmi 1016
Gengiö inn frá bílastæöi.
Námskeið í jólaföndri
verður haldið dagana 19. og 20. nóvember.
Nánari upplýsingar í síma 2669 (Anna) milli
kl. 19.30 - 21 virka daga og kl. 13 - 21 laug-
ardaga og sunnudaga.
Aðalfundur 1983
verður haldinn í húsi félagsins, Tjarnar-
götu 3, Keflavík, laugardaginn 12. nóvem-
ber kl. 2 e.h.
DAGSKRÁ:
Venjuleg aðalfundarstörf
Skýrslur lífeyrissjóða
Útgáfa iðnaðarmannatals
Erindi Jóns E. Unndórssonar, iðnráð-
gjafa Suðurnesja, um iðnþróun á
Suðurnesjum.
Félagar, mætið vel og stundvíslega.
Stjórnin
Áður
Sól Saloon
SÓLBAÐSSTOFA
Háteig 13 - Keflavík
Vorum að fá
sterku perurnar.
Opið frá:
mánud. - föstud. 7-23
laugardaga .... 10-20
sunnudaga ..13-20
Sími 3680
Eftir
VÍKUR-fréttir
Heimsókn í Baðstofuna
Á fimmtudögum i hverri viku kemur saman um 15 manna hópur i kennslustofu
einni i Gagnfræðaskólanum i Keflavík. Er hér um aö ræöa hóp á vegum
Baðstofunnar, og þaö sem fram fer iþessari stofu er myndlistarkennsla og er hún
i umsjá eins þekktasta myndlistarmanns íslendinga i dag, sá heitir Eirikur Smith,
Hafnfiröingur, eöa gaflari, eins og hann segir sjálfur. Baðstofan hefur i sinni um-
sjá 2 deildir í myndlist, er önnur í umsjá Eiriks og hin, sem kemur saman á öðrum
tima undir leiösögn Jóns Gunnarssonar, einnig úr Hafnarfiröi. Forsvarsmaður
hennar er Elsa Hertervig.
Til aö fræöast örlítiö meira um þessa starfsemi og einnig af einskærri forvitni,
sló blaðamaður Vikur-frétta til og heimsótti annan hópipn sl. fimmtudag og
spjallaði við nokkra áhugasama nemendur og Eirik, leiöbeinanda þeirra.
„Ég sagði nei við Erling, en
hann hafði það á endanunV
- segir Eiríkur Smith, listmálari og
kennari í Baðstofunni
„Þetta byrjaði nú eigin-
lega þannig, að Erlingur
Jónsson, stofnandi Bað-
stofunnar, hringir í mig eitt
kvöldið og spyr mig hvort
ég geti komið og kennt
myndlist hérna í Keflavík,
einu sinni í viku. Ég var nú
ekkert á því og sagði bara
nei, en Erlingurvarekkertá
því að gefa sig og suðaði í
mér, og þegar hann varfar-
inn að kjökra, svona meira í
gríni sagt, þá gaf ég mig.
Þetta var haustið 1975 og
þetta er því níundi veturinn
hjá mér nú.“ Þessi orð
mælir Eiríkur Smith, einn
þekktasti listmálari okkar
(slendinga í dag, en hann er
kennari við myndlistardeild
Baðstofunnar.
„Já, það má eiginlega
segja að þetta sé bein
kennsla, og það verður að
segjast eins og er, að ég hef
mjög gaman að því að starfa
meö þessu fólki, enda er
þetta allt orðið nánir vinir
manns eftir öll þessi ár.
Kennslan verður mun
áhugaverðari og skemmti-
legri þegar nemendurnir
eru áhugasamir og leggja
sig fram, og það er einmitt
sem þetta fólk hérna hjá
mér gerir. Þegar maður
skoðar svo málið nánar, þá
munar mig ekkert um að
keyra hingað til Keflavíkur
einu sinni í viku."
Hvaö er hópurinn stór, og
hvernig er kennslu háttaö?
„Við komum saman á
fimmtudagskvöldum í
hverri viku og höfum að-
stöðu í Gagnfræðaskólan-
um í Keflavík. Hópinn skipa
um 15 manns, bæði karlar
og konur, og er það mjög
æskileg stærð á svona hóp
að vera, svo að hægt sé að
ná til hvers og eins. Nú,
kennslutímabilinu er skipt á
þann veg, að fyrir jól teikn-
um við, en eftir áramót er
málað, bæði olía og vatns-
litir. Annað hvert ár er svo
haldin sýning á verkum
hópsins. Þessu fólki hér
hetur farið mikið fram, sé
einnig tekið tillit til þess að
við komum bara saman
einu sinni í viku, 3 tíma í
senn. Aftur á móti vilji fólk
ná enn betri árangri þá er
æskilegt að það máli heima,
og stór hluti hópsins ef ekki
flestir, gera það.“
En aö læra aö mála, er
þaö fyrir hvern sem er, -
„Jú, ég verð að viður-
kenna það, og ósjaldan
hittir maður fólk á förnum
vegi sem segir beint við
mann: „Ég verð að fara að
fá mynd hjá þér“, og þannig
er nú statt hjá mér núna, að
margar myndir stoppa
orðið stutt hjá mér og ef ég
ætlaði að halda sýningu, þá
yrði ég að hægjaásölunni."
Pálmi Viöar og Eirikur viröa fyrir sér myndefniö.
verður maöur ekki aö hafa
þetta I sér, eins og sagt er?
„Það sem þarf er fyrst og
fremst áhugi, ákveðinn
neisti, og ef hann er fyrir
hendi, þá lætur árangurinn
ekki á sér standa."
Nú, svo ég spyrjl þig aö-
eins út í þlg sjálfan, þá hefur
eftirsókn i myndir þínar
aukist mjög á undanförn-
um árum?
Fá myndlistarmenn ekki
oft verkefni sem hinir ýmsu
aöilar biöja um?
„Vissulega. Fyrir 2 árum
síðan fékk ég t.d. það verk-
efni að mála mynd af ánni
sem Karl Bretaprins veiðir í
þegar hann kemur til ís-
lands, og var það gjöf frá ís-
lendingum til hans og
Díönu á brúðkaupsafmæli
þeirra."
Hvert sækir þú aðallega
þitt myndefni?
„Ég sæki það mest héðan
af Suðurnesjum og einnig
umhverfis Hafnarfjörð,
þessi svæði bjóða upp á
mikla möguleika," sagði
Eiríkur Smith, listmálarinn
kunni, að lokum.
„Fer beint að mála
eftir vinnu“
- segir Soffía Þorkelsdóttir
„Teikningin er náttúrlega
undirstaðan, en ég hef
Soffia Þorkelsdóttir mundar blýantinn.
gaman að bæði málning-
unni og teikningunni,“
sagði Soffía Þorkelsdóttir.
„Þetta er níundi veturinn
hjá mér og þetta er mjög
skemmtilegt, hópurinn
mjög góðurog leiðbeinand-
inn okkar hann Eiríkur, er
alveg skínandi góður. Já, ég
mála all mikið, þegar ég er
búin að vinna klukkan sex
þá fer ég oft beint að mála,
og svo er ég einnig að á
kvöldin og um helgar.
Halda áfram? Jú, hver
ósköp, á meðan áhuginn er
fyrir hendi þá geri ég þaö,“
sagði Soffía Þorkelsdóttir.
„Mest fyrir olíuna
- segir Guðmundur Maríasson
„Ég er búinn að vera i
Baðstofunni frá 1974 og
vorum við þá undir leiðsögn
Guðmundar Karls og síðan
þeirra Péturs Friðriks og
Ragnars Páls, þartil Eiríkur
Guömundur Mariasson lætur
handarmeiósl ekki aftra sér frá
áhugamálinu.
Ljosm. og
texti:
pket.
Ásta Árnadóttir og Eirikur mæla út, eins og sjá má, á einfaldan máta. Aörir á myndinni, Sigriöur
Rósinkransdóttir og Nikulai Bjarnason.
Smith byrjaði 1975 og hefur
verið síðan,“ segir Guð-
mundur Maríasson. „Ég tek
þetta grafalvarlega," sagði
hann og hló, „eyði öllum
mínum frístundum í að mála
og er nánast á hverju kvöldi
með pensilinn í höndunum.
Olían heillar mig og ég er
eingöngu í henni og mála
mest sjávarlífsmyndir og
myndir frá gamla tímanum.
Það er alveg sérstakur andi í
þessum hóp okkar, sérstök
stemmning sem ríkir og ég
er alveg ákveðinn að halda
þessu áhugamáli mínu á-
fram á meðan ég get,“ sagði
Guðmundur.
„Viðerum eins og
stór fjölskylda“
- segir Ásta Árnadóttir
„Ég byrjaði fyrst árið
1970, en þá hófst starfsemi
Baðstofunnar undir stjórn
Erlings Jónssonar, og
vorum við þá aðallega í leir-
mótun og tréskurði, mynd-
listin kom svo síðar. Bað-
stofunafnið er síðan á
þessum árum Erlings, og í
dag er þessi hópur sem við
erum í núna, einungis deild
innan Baðstofunnar," sagði
Ásta Árnadóttir, en hún
ásamt Sigríöi Rósinkrans-
dóttur, eru forsvarsmenn
deildarinnar.
„Árið eftir að ég byrjaði
hjá Erlingi tók ég svo við
verslun héríbæog kom lítið
sem ekkert nálægt þessu í
10 ár, eða þar til ég seldi
verslunina árið 1981, og þá
byrjaði ég af fullum krafti
aftur. Að vísu tók ég aðeins
þátt í sýningunni vorið 1980
og átti þá nokkrar myndir á
þeirri sýningu, og meðal
annars þessa," sagði Ásta
og benti á vegg einn í eld-
húsinu.
Er þetta eltthvaö i þér,
eöa læröiröu eitthvað á fyrri
árum? (blaöamaöur yfir sig
hrifinn af myndinni).
„Ég var tvo vetur í
Handíöa- og myndlistar-
skólanum í Reykjavík árin
’39 og ’41 og var þá þýskur
kennari og gyðingur, Kurt
Zier að nafni, mjög góður,
og er meðal annars einn af
kennurum Eiríks Smith."
H vernig er aö vera i svona
hóp og undlr leiðsögn
þekkts listmálara eins og
Eiríkur er?
„Þetta er mjög góður
hópur og það má segja að
við séum eins og stór fjöl-
skylda og að vera undir leið-
sögn Eiríks erum við alveg
sérstaklega ánægð með og
stolt að hafa svona góðan
listamann að kenna okkur
hér á Suðurnesjum,” sagði
Ásta Árnadóttir.
GÖLF- og VEGGDÚKAR
við allra hæfi.
j dropinn
Hafnargötu 80 - Keflavik - Siml 2652
Meiri háttar Sanrio-sending
Vinsælu stimplarnir eru komnir
Jólakjólllnn i ár
kr. 324
Kfnajakkar
kr. 595
VERIÐ
VELKOMIN
SENDUM í PÓSTKRÖFU
NEPAL Hafnargötu 26, Keflavík, sími 3943