Víkurfréttir - 24.11.1983, Page 3
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 24. nóvember 1983 3
Atli Eðvalds í Keflavík
Atli Eðvaldsson, knatt- gerði eins og kunnugt er
spyrnumaðurinn snjalli, samning við Puma, sem
felst í þvi að hann leiki í bún-
ingum og skóm frá fyrirtæk-
inu.
( síöustu viku kom hann
til landsins með sölu-
stjóra Puma í Evrópu, þar
sem sýndir voru skór og
búningar sem verða með
nafni Atla á. Þeir félagar
heimsóttu Keflvíkinga, þar
sem þeir ræddu við knatt-
spyrnuráð um hugsanlega
notkun 1. deildar liös IBK á
skóm og búningum frá
Puma og þá með Atla nafni.
Auk þess voru viðstaddir
umboðsmaður Puma á (s-
landi, Ingólfur Óskarsson
og Rúnar Helgason, eig-
andi verslunarinnar Sport-
vík í Keflavík. Meðfylgjandi
mynd sýnir Rúnar, Atla, og
Altmann, umboðsmann
Puma. - pket.
- ANNETTA -
Snyrtistofa - Verslun
Verið velkomin á snyrtistofuna.
Andlitsböð - Húöhreinsun - Föróun
Litun - Vax - Hand- og fótsnyrting
Mikið úrval af jólagjöfum
fyrir dömur og herra.
Opið alla daga, einnig laugardaga.
- ANNETTA -
Hafnargötu 23 - Simi 3311
Fyrsta bílaþvottaplanið í Garði: ~
Ný bensínstöð
á 5 ára afmælinu
Sl. föstudag var opnuð ný
bensínafgreiðslustöð í
Garði, en þann dag voru
einmitt 5 ár liðin síðan
fyrsta sjálfstæða bensín-
stöðin var opnuð í Garði.
Nýja bensínstöðin er eins
og sú fyrri í húsnæði sem
Olíufélagið á, en rekin af
Ingibjörgu Sólmundardótt-
ur. En áður en hún tók við
afgreiðslu var engin sjálf-
stæð bensínafgreiðsla i
Garði, heldur aðeins af-
greitt eins og til sveita frá
dælu.
Hið nýja húsnæði er
þrisvar sinnum stærra en á
gamla staðnum, sem nú
hefur lokað og verður senn
fjarlægt. Á nýja staðnum er
nú í fyrstaskiptiðboðiðupp
á þvottaaðstöðu fyrir bíla.
Þá er í fyrsta skipti einnig
sjálfstæð bensínsala þar
sem afgreiðslumaður sér
um að fylla á tankinn og
einnig eru þarna á boðstól-
um allar þær vörur sem
Olíufélagið (ESSO) hefur á
slíkum stöðum. Þá rekur
Ingibjörg verslun í sama
húsi þar sem boðið er upp á
ýmsa þjónustu eins og vará
gamla staðnum, en þá í
þrengra húsnæði. - epj.
Eigendaskipti að leik-
tækjasal Tomma
Hákon Aðalsteinsson frá
Húsavík hefur fest kaup á
Hamborgara- og leiktækja-
sal Tomma að Hafnargötu
54 í Keflavík, og hefur hann
þegar tekið við staðnum, en
ekki er enn ákveðið hvort
gerðar verða einhverjar
breytingar á honum eða
undir hvaða nafni staðurinn
verði rekinn.
Eins og fram kemur ann-
ars staðar i blaðinu eru nú
liöin 2 ár síðan þessi staður
var opnaður í Keflavík og á
þeim tima hafa um 150 þús-
und hamborgarar verið
seldir í Keflavík og inni á
Fitjum, en sá staður er eins
og kunnugt er í eigu Jó-
hannesar Sigurðssonar.
Vegna þessara tímamóta
var sl. laugardag útdeilt á
sérstöku kjaraverði um 800
hamborgurum hjá Tomma,
Fitjum. - epj.
Efri salur -
FOSTUDAGUR 25. NOVEMBER:
„HVAÐA KVENMAÐUR ER ÞETTA . . . ?“
kl. 20.30.
Matur framreiddur frá kl. 19.30.
DANSLEIKUR HEFST KL. 23.00.
LAUGARDAGUR 26. NÓVEMBER:
LOKAÐ VEGNA EINKASAMKVÆMIS
Eignamiðlun Suðurnesja
Hafnargötu 57 - Keflavík - Símar 1700, 3868
Akurbraut 6, Njarfivfk:
Gott 138 rrPeinbýlishúsásamt nýleg-
um 40 m2 bílskúr. - 1.950.000.
KEFLAVÍK:
Góð 95 m2 neðri hæð við Vesturgötu,
ásamt bílskúr. - 1.150.000.
Góð 3ja herb. íbúð við Mávabraut. -
950.000.
Góð 4ra herb. efri hæð við Miðtún. -
1.300.000.
SUMARBÚSTAÐUR í Grímsnesi, um
45 m2, fullgerður.
Birkitelgur 11, Kefiavfk:
Gott steinsteypt einbýlishús á tveim-
ur hæðum, ásamt nýlegum bílskúr.
Mikið endurnýjaö, m.a. nýir gluggar
og gler, nýtt eldhús o.fl. - 2.200.000.
OPIÐ Á LAUGARDÖGUM
frá kl. 10 - 15.
VERIÐ VELKOMIN.