Víkurfréttir


Víkurfréttir - 24.05.1984, Page 15

Víkurfréttir - 24.05.1984, Page 15
VÍKUR-fréttir Fimmtudagur 24. maí 1984 15 Myllubakkaskóli fær andlitslyftingu. Lesið af fjöldanum. viKun jtaui Skotfélag Suðurnesja heldur almennan félagsfund, mánudaginn 28. maí n.k. kl. 20.30 á Glóðinni (uppi). Rætt um skotæfingasvæði o.fl. Nýir félagar velkomnir. - Mætum vel og stundvíslega. Stjórnin Til leigu 3ja herb. íbúð við Fífumóa í Njarðvík. íbúð- in er laus frá 1. júní. Upplýsingar veittar á Fasteignaþjónustu Suðurnesja. Fimmtu bekkir Myllu- bakkaskóla hófust handa sl. mánudag við andlitslyft- ingu á einum af veggjum skólans sem haföi verið málaður af nemendum fyrir nokkrum árum síðan. „Við gerum þetta alveg sjálf" sögðu krakkarnir við blaða- manninn er hann spurði hvort þau fengju ekki hjálp við verkið. „Hann Jón Ág- úst, teiknikennari, hjálpar okkur aðeins, en ekkert meira en það“ sögðu þau galvösk og máluðu af eldmóöi. pket.- Leikvöllur Sandgerðisbarna Þeir eru Ijótir sorphaug- arnir sem Sandgerðingar eru að útbúa í gryfjunum ofan við íþróttavöllinn. Upp- haflega átti að vera þarna áramótabrenna, en síðan er farið að aka þarna alls kyns sorpi, þ.á.m. húsasorpi, og síðan er þetta orðið leik- svæði barna sem búa þarna í nágrenninu, foreldrum til mikils ama. Ætti Miðneshreppur að sjá sóma sinn í að fjarlægja draslið hið fyrsta, því af þessu er lítil prýði, eins og sést best á meðfylgjandi mynd. - epj. Togari skiptir um nafn B.v. Haförn GK 90, sem Útgarður hf. í Garði hefur gert út undanfarin 2 ár, hef- ur nú fengið nýtt nafn, „Gautur" og einkennisstaf- ina GK 224. Mun skipið á- fram veröa gert út af sömu aðilum. - epj. ö. V. Gautur GK224 uppi hjá Skipasmiðastöð Njarðvikurhf. VÖRUUSTI HÚSBYGGJANDANS Nú bjóöum við eftirtaldar vörutegundir af lager: LOFTPLÖTUR undir málningu í stæröum 58x120 cm, 28x120 cm og 28x250 cm. - Verð frá 190 kr. m2. VIÐARÞILJUR full-lakkaðar í stærð- um 28x250 cm og 19x250 cm, í eftirtöldum viðartegundum: Furulamel, perutré, antik-eik, brún-eik, beyki, furu og eik. - Verð frá kr. 390 pr. m2. VEGGKLÆÐNINGAR undir málningu, í stærðum 38,5x253 cm og 58,5x253 cm. Verð frá 177 kr. m2. AXIS INNIHURÐIR afgreiddar af lager í eftirtöldum viðartegundum: Undir málningu: antik-eik, hnotulamel, perutré, brún-eik, furulamel, eik, beyki og ask. - Aðrar tegundir framleiddar eftir pöntunum. Verð frá kr. 2.950. FATASKÁPAR frá Axel Eyjólfssyni í miklu úrvali. GREIÐSLUSKILMÁLAR? Já, við erum sveigjanlegir í samningum. Allt í húsið í einum pakka. TRÉSMIÐJA ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF. Iðavöllum 6 - Keflavík - Sími 3320 Opiö frá kl. 8-17 alia virka daga. TRÉ-X ER NÝJA VÖRUMERKIÐ OKKAR. = I m _ m 7 —— _ m —^ V 1 TRÉ :«.w

x

Víkurfréttir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.