Víkurfréttir - 24.05.1984, Qupperneq 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 24. maí 1984 15
Myllubakkaskóli fær andlitslyftingu.
Lesið af
fjöldanum.
viKun
jtaui
Skotfélag Suðurnesja
heldur almennan félagsfund, mánudaginn
28. maí n.k. kl. 20.30 á Glóðinni (uppi).
Rætt um skotæfingasvæði o.fl.
Nýir félagar velkomnir. - Mætum vel og
stundvíslega.
Stjórnin
Til leigu
3ja herb. íbúð við Fífumóa í Njarðvík. íbúð-
in er laus frá 1. júní.
Upplýsingar veittar á Fasteignaþjónustu
Suðurnesja.
Fimmtu bekkir Myllu-
bakkaskóla hófust handa
sl. mánudag við andlitslyft-
ingu á einum af veggjum
skólans sem haföi verið
málaður af nemendum fyrir
nokkrum árum síðan. „Við
gerum þetta alveg sjálf"
sögðu krakkarnir við blaða-
manninn er hann spurði
hvort þau fengju ekki hjálp
við verkið. „Hann Jón Ág-
úst, teiknikennari, hjálpar
okkur aðeins, en ekkert
meira en það“ sögðu þau
galvösk og máluðu af
eldmóöi. pket.-
Leikvöllur Sandgerðisbarna
Þeir eru Ijótir sorphaug-
arnir sem Sandgerðingar
eru að útbúa í gryfjunum
ofan við íþróttavöllinn. Upp-
haflega átti að vera þarna
áramótabrenna, en síðan er
farið að aka þarna alls kyns
sorpi, þ.á.m. húsasorpi, og
síðan er þetta orðið leik-
svæði barna sem búa þarna
í nágrenninu, foreldrum til
mikils ama.
Ætti Miðneshreppur að
sjá sóma sinn í að fjarlægja
draslið hið fyrsta, því af
þessu er lítil prýði, eins og
sést best á meðfylgjandi
mynd. - epj.
Togari skiptir
um nafn
B.v. Haförn GK 90, sem
Útgarður hf. í Garði hefur
gert út undanfarin 2 ár, hef-
ur nú fengið nýtt nafn,
„Gautur" og einkennisstaf-
ina GK 224. Mun skipið á-
fram veröa gert út af sömu
aðilum. - epj.
ö. V. Gautur GK224 uppi hjá Skipasmiðastöð Njarðvikurhf.
VÖRUUSTI HÚSBYGGJANDANS
Nú bjóöum við eftirtaldar
vörutegundir af lager:
LOFTPLÖTUR undir málningu í
stæröum 58x120 cm, 28x120 cm og
28x250 cm. - Verð frá 190 kr. m2.
VIÐARÞILJUR full-lakkaðar í stærð-
um 28x250 cm og 19x250 cm,
í eftirtöldum viðartegundum:
Furulamel, perutré, antik-eik, brún-eik, beyki,
furu og eik. - Verð frá kr. 390 pr. m2.
VEGGKLÆÐNINGAR undir
málningu, í stærðum
38,5x253 cm og 58,5x253 cm.
Verð frá 177 kr. m2.
AXIS
INNIHURÐIR afgreiddar af lager
í eftirtöldum viðartegundum:
Undir málningu: antik-eik, hnotulamel, perutré,
brún-eik, furulamel, eik, beyki og ask. - Aðrar
tegundir framleiddar eftir pöntunum.
Verð frá kr. 2.950.
FATASKÁPAR frá Axel Eyjólfssyni
í miklu úrvali.
GREIÐSLUSKILMÁLAR?
Já, við erum sveigjanlegir í samningum.
Allt í húsið í einum pakka.
TRÉSMIÐJA
ÞORVALDAR ÓLAFSSONAR HF.
Iðavöllum 6 - Keflavík - Sími 3320
Opiö frá kl. 8-17 alia virka daga.
TRÉ-X ER NÝJA VÖRUMERKIÐ OKKAR.
= I
m _ m 7 —— _ m —^ V 1
TRÉ :«.w