Víkurfréttir - 04.07.1985, Qupperneq 13
VIKUR-fréttir
Fimmtudagur 4. júlí 1985 13
Söguferð um Rosmhvalanes
N.k. sunnudag, þann 7. júlí
verður fyrsta ferðin í sumar-
áætlun Ferðamálasamtaka
Suðurnesja. Farið verður um
Rosmhvalanes og að Básend-
um undir leiðsögn Fíelgu
Ingimundardóttur.
Suðurnesjamönnum gefst
hér gullið tækifæri til að rifja
ýmislegt upp úr sögu Suður-
nesja. Komið verður m.a. við
hjá Prestvörðu fyrir ofan Leiru
er einn Utskálaklerka lét reisa
Guði til dýrðar eftir að hafa
bjargast með naumindum úr
mannraunum í Leirunni. Eftir
að hafa ekið um Garðinn og
skoðað merkisstaði þar verður
Skagagarðurinn hið mikla
fornmannamannvirki skoð-
aður. En hann liggur í landi
Hafurbjarnastaða þar sem
einn merkasti fornleifafundur
er orðið hefur hér á landi er
kumlateigur var grafinn þar
upp um miðja síðustu öld.
Steinsnar þar frá er Kirkjuból
er tvívegis hefur komið við í
Islandssögunni svo um
munaði. I fyrra skiptið með
Kirkjubólsbrunanum árið
1433, sem er hluti af mjög svo
sérstæðri ástarsögu og síðar
aðför Norðlendinga að einum
banamanna Jóns Arasonar
biskups, Kristjáni skrifara og
mönnum hans árið 1551. A
Flankastöðum í sömu sveit -
Miðnesinu - voru áður haldin
mikil teiti, svonefndir víki-
vakar, er geistleg yfirvöld
höfðu vægast sagt illan bifur á.
Um leið og ekið verður í gegn-
um Sandgerði verður saga
staðarins rifjuð upp áður en
haldið verður út að Hvalsnesi.
Þar verður litast um í kirkj-
unni en meðal margra ágætra
muna sem eru í vörslu hennar
er brot úr legsteini Steinunnar
Hallgrímsdóttur Péturssonar,
sem er álitið að séra Hall-
grímur hafi höggvið sjálfur.
Síðasti viðkomustaður eru
Básendar þar sem ein sterk-
ustu vé einokunarverslunar-
innar voru. Öll mannvirki
urðu eyðileggingu að bráð í
gífurlegum sjógangi, svoköll-
uðu Básendaflóði, árið 1799.
Lagt verður upp kl. 14.00
frá Bæjarskrifstofunum í
Keflavík. Áætluð ferðalok eru
kl. 17.30. Verð kr. 200,- fyrir
fullorðna. Börn yngrien 12ára
fá frítt í fylgd meðfullorðnum,
en börn 12 til 15 ára greiða
hálft gjald. (Sjá nánar auglýs-
ingu).
Innsigli rofið og
humrí stolið
Fimmtudaginn í síðustu
viku varstolið 12kössumaf
humri frá Rafni hf. í Sand-
gerði. Hafði humarinn
verið innsiglaður daginn
áður af Fiskmati ríkisins,
þar sem hann var of gamall
til að vera söluvara. Hafði
innsiglið verið rofið og
humarinn tekinn. Er málið
í rannsókn. - epj.
-Söfnuðu fyrir sundlaugabyggingu.
Þessi fjögur ungmenni héldu nýlega hlutaveltu í Garðinum til
styrktar sundlaugabyggingunni á staðnum og hafa þau afhent
ágóðann kr. 900.-. Þau heita t.v. Örlygur Örlygsson, Hólmar
Eyfjörð Hreggviðsson, Veiga Eyfjörð Hreggviðsdóttir og Fanney
Guðrún Magnúsdóttir. — epj.
_______Lítið ykkur nær________________________
Að undanförnu hafa bæjaryfirvöld m.a. í Keflavík sent út áskoranir
til bæjarbúa um að taka höndum saman og hreinsa í kringum sig. En
það er ekki nægjanlegt að skora á aðra ef yfirvöldin gleyma sjálfum
sér. Á mefylgjandi mynd sést Ijót jámahrúga sem einu sinni var bíll,
og hvar skyldi nú þetta drasl vera staðsett? Það er málið, - fyrir
framan hliðið að geymsluporti Áhaldahúss Keflavíkurbæjar við
Vesturbraut. - epj.
Voru með flöskusöfnun
Þessi fjögur ungmenni stóðu nýlega fyrir flöskusöfnun til
styrktar Þroskahjálp á Suðurnesjum og varð ágóðinn kr. 1.010.
Þau heita t.v. María R. Halldóra Björk, Ingibjörg og Ari. - epj.
Færðu númera-
spjöld mílli bfla
Það er alveg furðulegt
hvað mönnum getur dottið
í hug. Sunnudaginn 23. júní
sl. var lögreglunni tilkynnt
um að það sæist til manna
þar sem þeir væru að færa
númeraspjöld á milli bíla.
Fór lögreglan á staðinn
og reyndist það rétt vera.
Höfðu þeir skipt á sléttu á
bílum og ætluðu að leysa
skráningarmálin á þennan
hátt. - epj.
Leiðrétting
I frásögn um ráðningu
Kjartans Más Kjartansson-
ar í stöðu skólastjóra Tón-
listarskólans í Keflavík í
síðasta tbl. var sagt að tveir
bæjarfulltrúar hefðu setið
hjá við atkvæðagreiðslu um
málið. Þar vantaði nafn
Olafs Björnssonar, en hann
sat einnig hjá við atkvæða-
greiðsluna.
MÍKUR
OPIÐ
alla virka daga 9-18
laugardaga 10-16
sunnudaga 13-16
YALGEIRS BAKARÍ
HÖLAGDTU 17 SÍMl 2600
GARÐUR
Sölu- og
leiguíbúðir
Til sölu er íbúð í fjölbýlishúsinu Silfurtúni
20 í Garði. íbúðin er byggð samkvæmt
lögum nr. 38/1976 og er hún 70 ferm. að
stærð.
Umsóknum ásamt fjölskyldu- og
tekjuvottorði sendist formanni stjórnar
verkamannabústaða, Unnari Má
Magnússyni, Lyngbraut 15, Garði, fyrir 15.
júlí n.k.
Stjórn verkamannabústaða
KODAK
UMBOÐIÐ
VERSLUNIN HLJÓMVAL
Hafnargötu 28 - Keflavík - Sími 3933
ál/2viiöi!
Um leið og filman fer í H-Lúx framköllun biður þú um
Sumaraukann og þú færd aukaeintök af myndunurn þínurn
á hálfvirði!
Gildir frá 17. júní til 17. ágúst
Gefdu ljósmynd.