Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.01.1986, Side 9

Víkurfréttir - 30.01.1986, Side 9
VIKUR-fréttir Fimmtudagur 30. janúar 1986 9 Atvinnubílstjórar mót- mæltu þungaskattinum Hálfgert umferðaröng- þveiti varð í nágrenni skrif- stofu Bæjarfógetans í Keflavík og sýslumanns Gullbringusýslu s.l. mánu- dag er atvinnubílstjórar höfðu frammi mótmæli við þungaskattshækkun þá sem ákveðin var með bráðabirgðalögum s.l. haust og er til umræðu á Al- þingi, en hækkun þessi nemur rúmum 57%. Lögðu þeir ökutækjum sínum, vörubílum, leigubíl- um og ýmsum gerðum flutningavagna á Hring- brautinni, Vatnsnesvegin- um og á bílastæði embættis- ins upp úr kl. 14. Eftir að bílarnir höfðu verið þarna kyrrstæðir um hálfa klukkustund afhentu for- ráðamenn bílstjóra af Vörubílastöðinni og Aðal- stöðinni Guðmundi Kristj- ánssyni fulltrúa mótmæli sín. En hugmyndin hafði verið að afhenda sýslu- manni þau, en hann var fjarverandi vegna fundar- halda. Eftir að mótmælin höfðu verið afhent óku bílstjórar- nir burtu, en sumir þeirra kvöddu með hljóðmerkjum ökutækja sinna. Voru að- gerðir þessar mjög friðsam- ar og hljóðlátar. epj. Bílstjórar af Suðurnesjum ganga út frá fógeta. Lárus Guðbrandsson leigubílstjóri, ogGuðlaugur Guðjónsson vörubílstjóri, afhenda Guðmundi Kristj- ánssyni mótmæli atvinnubílstjóra. pr í m rnmtam Hluti bílanna sem lögðu fyrir framan fógetaembættið. TEPPA-UTSALA Mikið úrval af bútum og teppum í rúllum. Nokkur dæmi um verð: BÚTAR MEÐ ALLT AÐ 60% AFSLÆTTI. Verð og greiðslukjör við allra hæfi. Greiðslukortaþjónusta. - Þetta er útsala sem ekki er hægt að sleppa.

x

Víkurfréttir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.