Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.01.1986, Blaðsíða 16

Víkurfréttir - 30.01.1986, Blaðsíða 16
16 Fimmtudagur 30. janúar 1986 VÍKUR-fréttir VÍKUR-fréttir - Auglýsingasími 4717 ÁRNESINGAR Okkar árlega þorrablót veröur haldið í Safnaöarheimilinu Innri-Njarðvík, laugardaginn 1. febrúar. Rútuferö kl. 19 frá SBK. Miðapantanir í simum 1640, 1376 og 1046. Árnesingafélagiö í Keflavik t Þökkum auösýnda samúð og vináttu við andlát og útför móður minnar, PETRÍNAR SIGRÚNAR JÓNSDÓTTUR Fyrir hönd aðstandenda. Ásthildur Herman Hitaveita Suðurnesja Rafmagns- deild Óskar eftir að ráða starfsmann til almennra starfa í lágspennudeild. Launakjör samkvæmt kjarasamningi Starfsmannafélags Suðurnesjabyggða. Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á skrifstofu Hitaveitu Suðurnesja, Brekkustíg 36, Njarðvík, og skulu umsóknir berast þangað eigi síðar en 7. febrúar 1986. TIL SÖLU nýleg 109 m2 íbúð að Nónvörðu 12, e.h., með sér inngangi. Bílskúr og geymsla ca. 35 m2. - Skipti á stærra koma til greina. - Upplýsingar í síma 2983. Ný línuýsa Hrogn og lifur flesta daga vikunnar. Islenskir golfarar í Portúgal Mánudaginn 27. jan. var fram haldið Meistarakeppni B.S. í tvímenningi, en 20pörtaka þátt í því móti. Talsverð- ar breytingar hafa orðið á skipan efstu sæta frá síðasta spilakvöidi, en Gunnar og Birgir / Þórður halda þó enn forystu í mótinu. Að 9 umferðum loknum er staða efstu para þessi: stig 1. Gunnar Guðbjörnsson - Birgir Sch. / Þórður Kr. 68 2. Sumarliði Lárusson - Sigurbjörn Jónsson ..... 41 3. Haraldur Brynjólfsson - Gunnar Sigurjónsson .. 33 4. Björn Blöndal - Skafti Þórisson.............. 31 5. Sigurður Steindórsson - Jón Jóhannsson ...... 25 6. Magnús Magnússon - Sigurjón Jónsson ......... 24 Næstu 5 umferðir verða spilaðar mánudaginn 3. febrúar og hefst spilamennskan kl. 20 í Grófinni. - þk. ^Skák Keflavíkurmótið í skák 1985 var haldið í byrjun desember sl. Sigurvegari varð Bjarni Guðlaugur Jónsson, sem sigraði alla andstæðinga sína og fékk 5 vinninga. Annar varð Þórir Hrafn- kelsson með 4 vinninga og Einar Guðmundsson með 3 vinninga. Jólahraðskák-mótið var haldið sunnudaginn milli jóla og nýárs. Sigurvegari varð Björgvin Jónsson með 17 vinninga, Gísli R. ísleifs- spn með 15 vinninga, Olafur Ingason með 11 vinninga og Pálmar Breið- fjörð 10. Aðrir fengu minna. ,,Við gerum okkur ekki stórar vonir um að koma heim sem heims- frægir golfarar, en mun- um hins vegar reyna að auka hróður Islands á golfsviðinu“, sögðu þeir Jóhann Benediktsson, Pétur Antonsson og Gunnar Sólnes léttir í bragði, er þeir munduðu golfkylfurnar í snjónum fyrir myndatökuna. Þeir félagar héldu til London á miðvikudag í síðustu viku og þar ætl- uðu þeir að hitta skoskan atvinnugolf- leikara, Iain K. Naylor að nafni. Þeir fjórmenn- ingar héldu svo til Portúgal á sunnudag til að leika í „Pro-am“- golfkeppni, sem er keppni 4ra liða, með ein- um atvinnumanni og þremur áhugamönn- um. Kepnnin hófst á þriðjudag og höfðu þátt- takendur tvo^ æfinga- daga áður. íslending- arnir sem alla jafna leika ekki golf á þessum árs- tíma, æfðu sveifluna í London með atvinnu- manninum áður en þeir flugu til Portúgal, - „til stilla liðið saman“, sagði Jóhann, sem er farar- stjóri liðsins. Keppnin stendur yfir í 3 daga og er á hinum fræga velli, Penina. Leiknar eru 54 holur með forgjöf auk sér- keppni hjá atvinnu- mönnunum. Meðfylgjandi mynd var tekin af þeim félög- um er þeir tóku léttar sveiflur úti í garði hjá Jóhanni á Smáratúninu í Keflavík. Jóhann Benediktsson mun halda uppi heiðri okkar Suðurnesjamanna þar ytra, en þeir Pétur og Gunnar þeirra Akur- eyringa, en þeir eru báðir búsettir þar. Þó er Pétur mörgum Suður- nesjamanninum kunn- ur, því hann bjó í Grindavík um árabil. pket. Gunnar Sólnes, Pétur Antonsson og Jóhann Benediktsson munda kylfurnar í snjónum. rti'sU

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.