Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.01.1986, Blaðsíða 14

Víkurfréttir - 30.01.1986, Blaðsíða 14
14 Fimmtudagur 30. janúar 1986 VÍKUR-fréttir Vantar nú þegar tvo röska og duglega starfsmenn við fram- leiðslu á pizzum, á veitingastaðnum Lang- best, Hafnargötu 62. - Vaktavinna. Upplýsingar gefur Gunnar Friðriksson, yfirmatreiðslumaður á Glóðinni, í síma 1777. Skákáhuga- menn ath. Iðnsveinafélag Suðurnesja stendur fyrir fjöltefli í húsi félagsins, fimmtudaginn 6. feb. kl. 20. Nú er tækifæri að reyna sig við hinn nýbakaða stórmeistara, Margeir Pét- ursson. Öllum er heimil þátttaka. Þátttöku þarf að tilkynna Einari Haraldssyni í síma3815eftir kl. 18 eða á skrifstofu félagsins í síma2976, fyrir 4. feb. Vinsamlegast hafið töfl með- ferðis. ISFS Skemmtinefnd I.S.F.S. FÉLAGSBÍÓ SÝNIR: Fletch fjölhæfi Frábær ný gamanmynd með Chevy Chase. Fletch er rannsóknarblaðamaður, kvenna- gull, skurðlæknir, körfuboltasnillingur, þjónn og flugvirki sem þekkirekki stél flug- vélar frá nefi. Svona er lengi hægt að telja, en sjón er sögu ríkari. Næsta mynd: 5S2 Námskeið fyrir reykingamenn LEIÐIR TIL AÐ . . . Framh. af 13. síðu Höfundur þessarar greinar reit tvær slikar í Víkur-fréttir undir lok síðastliðins árs um málefni „fatlaðra", meðal annars í sambandi við atvinnuhagi þeirra. Viðbrögð urðu rétt eins og ætla hefði mátt hér um slóðir, lítil, er ég leitaði eftir því að atvinnulaust fatlað fólk hefði samband í síma 3834 og léti skrá sig, svo hægt væri að kanna hver virkileg þörf væri fyrir verndaðan vinnustað á Suð- urnesjum. En fátt er svo með öllu illt, því að á þeirri stundu er ég rita þessi orð situr enn sem negldur við mig viðmælandi minn, tveggja barna faðirinn (þó ekki í álfheimum) og hefur allur hýrnað á brún við minningar þess er hann hyggst romsa úr sér. Ég reyni vitaskuld að hafa þetta orðrétt eftir honum: Hún kom allt í einu yfir mig sú hugmynd og gagn- tók mig, að stofna fyrir- tæki. Þetta var á föstudegi, klukkan var langt gengin í þrjú á nýhöfnu ári 1986. Fyrir framan mig lágu Víkur-fréttir, opnar við þína grein og þar stóð þetta svart á hvítu, ,,að fatlaðir og þeir sem hafa notið end- urhæfingar geti fengið styrk úr Framkvæmdasjóði fatl- aðra, hyggist þeir stofna sitt eigið fyrirtæki". Ég tókst allur á loft og hugði nú gott til glóðarinnar. En hvernig fyrirtæki ætti það að vera? Ég lagði höfuðið í bleyti og velti ýmsum áætlunum fram og aftur í kolli mér, þar til að endingu að ég ákvað að ég vildi eiga og reka gróðurhús á Fitjum. En ekki er nóg að vita hvernig fyrirtæki maður hyggst stofna. Margt annað þarf að vita, t.d. hvað allt kostar. Og þá lá auðvitað beinast við að hringja í Iðn- ráðgjafann til að fá upplýs- ingar. Ég tók upp tólið, skyldi hann vera við, svona seint á föstudegi? - Já, Iðn- þróunarfélagið. Nú var öndinni af mér létt. Ég bauð góðan daginn, kynnti mig og hvað ég hefði í hyggju. - Já, verí interset- íng. Geturðu komið hing- að, svo við getum athug- að málið nánar? - Núna strax? - Já, komdu. Og enn tókst ég allur á loft og furð- aði mig á því hvað þetta virtist allt vera einfalt. Ég dreif fjögurra ára son minn í skó (og mig vita- skuld líka) og barnið síðan í aftursætið og brunaði af stað. A leiðinni niðrá Brekkustíg hlakkaði ég til þess að fá loksins vinnu og verða þá meira að segja eigin yfirmaður (í barns- legri einfeldni minni sem skapast hafði í hálfs annars árs atvinnuleysi var dóm- greind mín orðin svo brengluð, að ég gerði vart mun á veruleika og mögu- leika). Mér varð gengið inn á skrifstofu ráðgjafans, enda opið upp á fulla gátt. - Og hvað var það fyrir þig, vinur. Komdu sæll og bless- aður, viltu blað og blýant? Ég áttaði mig nú ekki strax, en gerði það er syni mínum var gengið fram, og tók við þessum nauðsyn- legu hlutum úr útréttri höndinni. Hvað segirðu, viltu stofna gróðurhús á Fitjun- um? - Eins konar verndað- an vinnustað? - Já, varð mér á orði og var upplits- djarfur. - Nú, já, verndað- an vinnustað, en því miður er þar^ ekki nægilegt heitt vatn. Ég missti andlitið, til hvers var hann að stefna mér hingað til að segja mér þetta? - En hvað með allt vatnið ofan af Velli? Ég þrjóskaðist við. - Það er allt endurhitað og leitt til ís- lenskra byggða. Bíddu, sagði hann, er ég hugðist halda sneyptur á braut, - ég skal leyfa þér að heyra, og hann tók upp innansíma- tólið. Hjá mér er staddur ungur maður sem langar til að stofna ylræktarver, verndaðan vinnustað á Fitjum. Ég var að enda við að segja honum að allt vatnið væri endurhitað og sent aftur inn á kerfið. Nú .. nú . . . nú ... og hann lagði á. Heyrðu, sagði þessi dökkhærði karl og af honum geislaði áhuginn, ég verð að viðurkenna að sem betur fer hef ég vaðið í villu og svima. Svo gæti farið að gróðurhúsið þitt yrði að veruleika. Það rennur 50-60 stiga heitt vatn í sjóinn hjá Fitjum og það í töluverðu magni. Verndaður vinnu- staður er einmitt það sem alltof lengi hefur skort á Suðurnesjum. Ég helli mér í málið ... það verður fundur á mánudaginn . . . Talaðu við mig á þriðjudaginn. Til að gera langt mál styttra þá talaði ég við ráð- gjafann á ákveðnum tíma og fregnirnar gætu orðið ánægjulegar fyrir fatlaða á Suðurnesjum. Fundar- menn tóku undir orð ráð- gjafans og fallist var á að stuðla að stofnun verndaðs vinnustaðar. Það var jafn- vel haft á orði að keypt skyldi stórhýsi það sem nú er í eigu Ramma hf. Kom þar upp einhvers konar plastvinnslu. Og hananú. Höfundur leyfði sér að kanna sannleiksgildi þess- arar frásagnar, og viti menn. Hún reyndist sönn eftir höfð og ég vænti þess að þeir sem málið snertir sýni nú vilja sinn og láti skrá sig í síma 3834, og hananú. Ungkarlinum var ekki öllum lokið. Málbein hans var liðugt og í næstu Víkur- fréttum leiðir hann ykkur í allan sannleika um það hvernig hann vildi helst leysa allan atvinnuleysis- vanda Suðurnesjamanna. Það tengist auðlindunum á Reykjanesi. Þar til í næstu viku. Ólafur Þór Eiríksson

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.