Víkurfréttir - 30.01.1986, Side 15
VÍKUR-fréttir
Fimmtudagur 30. janúar 1986 15
Fréttatilkynning
um afhendingu ávarp Allsherjarhúss
Réttvísinnar, „Fyrirheit um heims-
frið“, til embættismanna og forráða-
manna í Keflavík og Njarðvík
Þann 24. okt. sl. voru 40
ár liðin frá stofnun Samein-
uðu þjóðanna. Við það
kærkomna tækifæri á alls-
herjarþingi Sameinuðu
þjóðanna, saman komnu í
New York, lýsti aðalritari
þeirra árið 1986 árfriðar. Á
sama degi var honum af-
hent ávarp Allsherjarhúss
Réttvísarinnar, sem er
æðsta stjórnarfarslega
sjofnun Bahá'í Trúarinnar.
Ávarp þetta, sem ber
nafnið „Fyrirheit um
heimsfrið“, hefur síðan
verið þýtt á flest öll tungu-
mál, þar á meðal íslensku,
og hefur verið fært að gjöf
hinum ýmsu þjóðarleiðtog-
um heimsins. Þann 29. okt.
var ávarpið afhent forseta
íslands, Vigdísi Finnboga-
dóttur, við formlega at-
höfn.
Bahá’íar vinna nú að því
að afhenda ávarpið öllum
framámönnum þjóðarinn-
ar, svo sem bæjarfógetum,
bæjarstjórum, þingmönn-
um og skólastjórum.
Þó að aðaláherslan sé
fyrst lögð á að afhenda
bréfið þjóðarleiðtogum og
framámönnum hvers
lands, er ætlunin að koma
ávarpinu í hendur alls al-
mennings á ari friðarins,
því að það er stílað til
„þjóða heimsins".
í ávarpinu fjallar Alls-
herjarhús Réttvísarinnar
ítarlega um núverandi
stöðu mannkynsins og
framtiðarhorfur þess. Bent
er á, að þessir umbrota-
sömu og háskalegu tímar
séu náttúrulegur áfangi á
leið mannkynsins til full-
þroska og muni að end-
ingu leiða til stofnunar
varanlegs heimsfriðar.
Sterk öfl vinna þó gegn
þessari þróun og þá helst
fastheldni manna við
gamalt hegðunarmynstur:
óvilji þeirra til að reyna
leiðir til samráðs og sam-
vinnu. En kraftarnir, sem
hjálpa til við þessa þróun,
eru þegar virkir og birtast
m.a. í stofnun alþjóðasam-
taka og í samstarfi fólks af
öllu þjóðerni í alþjóðlegu
hjálparstarfi.
I bréfínu segir, að þjóðir
heimsins hafi aðeins tvo
valkosti: að koma á heims-
friði með samráði og sam-
vinnu, eða að heimsfriður
verði fyrst að veruleika eftir
„óumræðilegar skelfing-
ar“. Bréfið segir Ijóst, að
friður mun komast á og að
leiðtogar heimsins enn hafa
möguleika að velja fyrri
kostinn.
Slíkt val mun verða öllu
mannkyni til ómælanlegs
gagns og að endingu leiða
til sameiningu þjóða heims-
ins í eina allsherjarfjöl-
skyldu.
Slíkt vald mun verða öllu
mannkyni til ómælanlegs
gagns og að endingu leiða
til sameiningu þjóða heims-
ins í eina allsherjarfjöl-
skyldu.
Ávarpið má einnig skoða
sem innlegg Bahá’ía í þá
friðarumræðu, sem verið
hefur í gangi síðastliðin ár.
Fyrirheitið, sem ávarpið
dregur nafn sitt af, er að
finna í niðurlagi þess og
hljóðar svo: ,,Þessar
tilgangslsusu deilur, þessi
eyðileggjandi stríð, munu
líða undir lok og ,Friðurinn
mesti* komast á“.
Frá Andiegum
Svæðisráðum Bahá’ía
í Keflavík og Njarðvík
Munið nýja heimilisfangið okkar
að Vallargötu 14.
VIKUR-fréttir
Að sigra sorg
Hefur þú misst ástvin og ekki náð að sigra sorg-
ina og lifa góðu lífi aftur?
Ef svo er, þá bjóðum við þér að vera með okkur
næstu fimm mánudagskvöld og vinna að því að
sigra sorg.
Nánari upplýsingar veitir Þröstur Steinþórsson,
í síma 4222.
NÝTT Á ÞRISTINUM
ÓDÝR MATUR í HÁDEGI
til að taka með heim eða borða á staðnum.
Tilboðsréttir vikuna 3.-8. febrúar:
Mánudagur 3. feb.: Steiktur fiskur . kr. 195
Þriðjudagur 4. feb.: Svikinn héri . kr. 220
Miðvikudagur 5. feb.: Bjúgu ........ kr. 210
Fimmtudagur 6. feb.: Lambasmásteik... kr. 240
Föstudagur 7. feb.: Fiskibollur .. kr. 210
Laugardagur 8. feb.: Pottréttur...... kr. 270
Munið okkar
Ijúffenga
þorramat.
icTWatStofaii
íistiwinn
Brekkustig 37 • sim■ 3688
Njardvik
AVALLTI
LEIÐINNI.
sssssssssssssssssssssss
STÓRKOSTLEG
HLJÓMPLÖTU ÚTSALA
í fullum gangi.
Allt niður í 100 kr. hljómplatan
HLJÓMVAL
Hafnargötu 28 - Keflavík - Sími 3933