Morgunblaðið - 02.11.2015, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015
Z-Brautir og gluggatjöld
Faxafeni 14 - 108 Reykjavík - S. 525 8200 - z.is - mán-föst 10-18 - lau 11-15
Allt fyrir
gluggana
á einum stað
Mælum, sérsmíðum
og setjum upp
Stjórnendur og starfsmenn Rík-isútvarpsins eru í mjög óvenju-
legri stöðu miðað við stjórnendur
og starfsmenn annarra ríkisstofn-
ana. Þeir ráða sjálfir yfir einum
sterkasta
fjölmiðli
landsins og
þegar störf
þeirra eru
gagnrýnd
beita þeir
miðlinum í
eigin þágu til að koma sinni hlið
málsins tryggilega á framfæri.
Nýjasta dæmið um þessa mis-notkun er umfjöllun um
skýrslu nefndar um Ríkisútvarpið,
en stjórnendur og starfsmenn
stofnunarinnar hafa snúist harka-
lega til varnar sjálfum sér í miðl-
inum.
Varnarræðurnar byrjuðu jafnveláður en skýrslan var kynnt,
sem sýnir vel hversu langt menn
ganga.
Og til að minnka möguleikaskýrsluhöfunda og annarra til
að kynna sér og tjá sig um rekstur
stofnunarinnar er gripið til þess
ráðs að mega ekki ræða um alla
þætti rekstrarins þar sem Ríkis-
útvarpið sé með skráð skuldabréf í
kauphöll.
Stjórnendur Ríkisútvarpsinsreyna nú að knýja fram hækk-
un á útvarpsgjaldinu frá því sem
ákveðið hafði verið, en að óbreyttu
mun það lækka nokkuð á næsta ári.
Vissulega er auðveldara að mis-nota stofnunina til að halda úti
áróðri um að engu megi breyta í
starfseminni en að vinna að umbót-
um. Því fer þó fjarri að það þýði að
láta eigi undan stöðugum kröfum
Ríkisútvarpsins á hendur skatt-
greiðendum.
Ekki má láta undan
stöðugum kröfum
STAKSTEINAR
Veður víða um heim 1.11., kl. 18.00
Reykjavík 7 skýjað
Bolungarvík 4 alskýjað
Akureyri 2 skýjað
Nuuk -2 skýjað
Þórshöfn 11 skúrir
Ósló 8 heiðskírt
Kaupmannahöfn 11 skýjað
Stokkhólmur 10 léttskýjað
Helsinki 10 skýjað
Lúxemborg 8 þoka
Brussel 15 heiðskírt
Dublin 12 þoka
Glasgow 13 upplýsingar bárust ekki
London 10 skýjað
París 17 heiðskírt
Amsterdam 11 léttskýjað
Hamborg 8 þoka
Berlín 12 heiðskírt
Vín 11 léttskýjað
Moskva 7 heiðskírt
Algarve 17 skýjað
Madríd 18 léttskýjað
Barcelona 17 léttskýjað
Mallorca 21 léttskýjað
Róm 17 heiðskírt
Aþena 13 skýjað
Winnipeg 5 alskýjað
Montreal 7 alskýjað
New York 15 alskýjað
Chicago 13 léttskýjað
Orlando 28 skýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
2. nóvember Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:14 17:10
ÍSAFJÖRÐUR 9:32 17:02
SIGLUFJÖRÐUR 9:15 16:44
DJÚPIVOGUR 8:47 16:36
Halarófa af fullhlöðnum timburbílum er óvenjuleg
sjón í augum Íslendinga. Halarófan stafar af því, að
mikil grisjun hefur átt sér stað í skógum á Norður-
landi síðustu daga og vikur. Grisjunarviðurinn er
fluttur til járnblendiverksmiðju Elkem á Grundar-
tanga. Samtals hafa um og yfir 1.500 rúmmetrar af
skógum verið grisjaðir. Hátt í 40 ferðir þarf að fara
með fulllestaða bíla til að koma öllu timbrinu til
Grundartanga.
Á vef Skógræktar ríkisins er haft eftir Rúnari Ís-
leifssyni, skógarverði, að í Þórðarstaðaskógi hafi
verið grisjaðir um 370 rúmmetrar af stafafuru,
síberíulerki og rauðgreni. Í Sigríðarstaðaskógi var
nánast eingöngu grisjuð stafafura sem gaf um 200
rúmmetra og úr Vaglaskógi komu 280 rúmmetrar
með grisjun stafafuru og lerkis ásamt svolitlu af
rauðgreni. Þá var einnig grisjað töluvert á Vöglum
á Þelamörk, þar sem fengust 340 rúmmetrar, að-
allega af stafafuru en einnig lerki og örlítið af ösp.
Auk skóga Skógræktar ríkisins var vélgrisjað í
skógum skógarbænda.
Yngsti reiturinn sem var grisjaður er á Vöglum í
Þelamörk þar sem gróðursett var árið 1982. Annars
voru reitirnir frá árabilinu 1960-1970. isb@mbl.is
Fara 40 ferðir fullhlaðnir timbri
Mikil grisjun í norð-
lenskum skógum
Ljósmynd/Pétur Halldórsson
Flutningar Timbrið er flutt til járnblendiverk-
smiðju Elkem á Grundartanga á timburbílum.
Rjúpnaskyttur norðanlands fengu
tvo góða daga til að veiða í jólamat-
inn þessa helgina. Þeir veiðimenn
sem Morgunblaðið náði tali af
höfðu náð frá 10-23 rjúpum. Illa
viðraði til veiða í gær með rigningu
og töluverðum vindi. Mest veiddist í
Búrfellshrauni en þar rákust skytt-
ur á nokkrar kindur og létu bænd-
ur vita. Voru mývetnskir bændur
ákaflega þakklátir fyrir og hvöttu
veiðimenn um allt land til að gera
slíkt hið sama.
Annars staðar á landinu var
ágætisveiði og flestar skyttur náðu
einhverjum fuglum þó að þeir væru
ekki margir. Hlýindin hafa ekki
verið að auka veiðina. Á Austur-
landi heyrðist af skyttum með 5-7
rjúpur eftir helgina en einnig af
skyttum sem höfðu mun meira. Fáir
héldu til veiða á Suðurlandinu en þó
var ein skytta sem sá 5 ljónstyggar
rjúpur á Skjaldbreið. Tvær rjúpna-
veiðihelgar eru eftir.
Góð veiði
norðanlands
Morgunblaðið/Golli
Gengið Rjúpnaveiðitímabilið er nú
hálfnað en tvær helgar eru eftir.