Morgunblaðið - 02.11.2015, Qupperneq 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015
Nemendur Árskóla á Sauðárkróki
gáfu nýverið Heilbrigðisstofnun
Norðurlands á Sauðárkróki 435
þúsund krónur. Um var að ræða
fjármuni sem söfnuðust í lok þema-
daga þegar skólinn var opinn gest-
um og gangandi.
Þar sýndu nemendur afrakstur
þemadaganna og seldu veitingar og
ýmsar vörur sem þeir höfðu búið
til. Á vef Árskóla segir að opna hús-
ið hafi heppnast mjög vel og fjöldi
manns heimsótt skólann.
Söfnunarféð var afhent með við-
höfn í íþróttahúsinu. Fulltrúar 10.
bekkjar, Alexandra Ósk og Róbert
Smári, sögðu nemendur finna fyrir
miklum velvilja þegar þeir væru að
ganga í hús eða fyrirtæki að safna
fyrir einhverju. Með þessari söfnun
vildu nemendur skila örlitlu til
baka til samfélagsins.
Stjórnendur heilbrigðisstofnun-
arinnar veittu gjöfinni viðtöku og
þökkuðu fyrir hana. Örn Ragn-
arsson yfirlæknir sagði féð koma
sér vel og yrði notað til kaupa á
nýju sónartæki fyrir stofnunina.
Ljósmynd/Árskóli
Söfnun Nemendur Árskóla afhenda heilbrigðisstofnuninni stóra ávísun.
Gáfu sjúkrahúsinu
435 þúsund krónur
Söfnuðu í lok þemadaga Árskóla
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Aldrei áður hefur hlutfall fyrstu og
annarar kynslóðar innflytjenda verið
jafn hátt hér á landi, eða 10% um síð-
ustu áramót, samkvæmt tölum Hag-
stofunnar.
Um síðustu áramót voru 29.192
innflytjendur á Íslandi, eða 8,9%
mannfjöldans. Það er fjölgun frá
árinu áður þegar þeir voru 27.445
talsins, eða 8,4%. Sama hlutfall var
8% árið 2012.
Annarri kynslóð innflytjenda fjölg-
aði einnig á milli ára, voru 3.534 í
fyrra en 3.846 nú.
Einstaklingum með erlendan bak-
grunn, öðrum en innflytjendum,
fjölgaði einnig lítillega milli ára, voru
6,6% um síðustu áramót en 6,5%
árinu áður.
37% innflytjenda Pólverjar
Eins og síðustu ár eru Pólverjar
langfjölmennasti hópur innflytj-enda
hér á landi. Hinn 1. janúar sl. voru
10.933 einstaklingar upprunnir frá
Póllandi eða 37,5% allra innflytjenda.
Þar á eftir koma innflytjendur frá
Litháen (5,1%) og Filippseyjum
(5,0%). Pólskir karlar eru 41,2% allra
karlkyns innflytjenda eða 5.819 af
14.134. Litháískir karlar eru næst-
fjölmennastir (5,1%) og síðan karlar
með uppruna frá Bretlandi (3,6%).
Pólskar konur eru 34,0% kvenkyns
innflytjenda og næst á eftir þeim eru
konur frá Filippseyjum (6,5%), þá
konur frá Þýskalandi og Taílandi
(5,1%).
Um síðustu áramót bjuggu 21.857
fyrstu og annarrar kynslóðar inn-
flytjendur á höfuðborgarsvæðinu eða
66,2% allra innflytjenda á land-inu.
Skipt eftir einstökum landshlutum
hafa hlutfallslega flestir innflytjendur
verið á Vestfjörðum. Á því hefur ekki
orðið breyting. Þar var hlutfallið um
síðustu áramót 15,4% af fyrstu og
annarar kynslóðar innflytjendum.
Næsthæst er hlutfallið á Suð-
urnesjunum þar sem 14,5% mann-
fjöldans eru innflytjendur eða börn
þeirra. Lægst er hlutfallið á Norður-
landi vestra, en þar eru 5,1% mann-
fjöldans innflytjendur eða börn
þeirra.
Í fyrra fengu 595 einstaklingar ís-
lenskan ríkisborgararétt og er það
sami fjöldi og árið áður þegar 597
fengu íslenskt ríkisfang. Af þeim 595
sem fengu íslenskt ríkisfang höfðu
langflestir verið með ríkisfang frá
Póllandi, eða 149, og næstflestir með
ríkisfang frá Filippseyjum (52).
Innflytjendum heldur áfram að fjölga
Mannfjöldi eftir bakgrunni 1996–2015
Heimild: Hagstofa Íslands
100%
90%
80%
70%
60%
50%
40%
30%
20%
10%
0%
1996 2015
Enginn erlendur bakgrunnur Erlendur bakgrunnurInnflytjendur, fyrsta og önnur kynslóð
Í skilgreiningu Hagstofunnar er
innflytjandi einstaklingur sem
er fæddur erlendis og á foreldra
sem einnig eru fæddir erlendis,
svo og báðir afar hans og báðar
ömmur. Önnur kynslóð innflytj-
enda eru einstaklingar sem
fæddir eru á Íslandi og eiga for-
eldra sem báðir eru innflytj-
endur. Fólk er talið hafa erlend-
an bakgrunn ef annað foreldrið
er erlent.
Hver er skil-
greiningin?
HAGSTOFAN
Breyttu heimilinu með
gluggatjöldum frá okkur
Suðurlandsbraut 6 sími 553 9990 nutima@nutima.is www.nutima.is
Leit Íslenskrar getspár að millj-
ónamæringi stendur enn yfir. Vinn-
ingsmiði var dreginn út í lottóinu
laugardaginn 24. október sl. Sá sem
hafði heppnina með sér vann 22,5
milljónir króna.
Stefán Konráðsson, framkvæmda-
stjóri Íslenskrar getspár, segir mið-
ann ekki hafa verið keyptan með
greiðslukorti, en þá væri hægt að sjá
hver keypti miðann og hvenær. Var
hann keyptur í N1 í Ártúnsbrekku.
„Þá myndum við vita hver vinn-
ingshafinn er og gætum fundið við-
komandi. Í þessu tilfelli hefur hann
greinilega keypt miðann með pen-
ingum og þess vegna höfum við enga
hugmynd um hver vinningshafinn
er. Það er okkar hagur að þessir
vinningar fari út og þess vegna aug-
lýstum við eftir vinningshafanum.
Það er okkar reynsla að þá vakna
sumir sem hafa keypt miða, líta í
veskið sitt og skoða miðana sína
nánar,“ segir Stefán. Vinningshaf-
anum liggur þó ekkert sérstaklega á
því vinningurinn fyrnist ekki fyrr en
eftir eitt ár. isb@mbl.is
Tugmilljóna vinn-
ings ekki enn vitjað