Morgunblaðið - 02.11.2015, Qupperneq 14
14 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015
56 10 000
TAXI
BSR
Góð þjónusta
yfir 90 ár
Könnun sem framkvæmd var af
Adobe Digital Index (ADI) bendir til
þess að netverslun í kringum þakkar-
gjörðarhátíðina vestanhafs muni
aukast mikið í ár. Reiknar ADI með
því að netverslun í kringum hátíðina
muni aukast um 16,6% miðað við síð-
asta ár. Þá mun vaxandi hluti banda-
rískra neytenda nota snjallsímann við
kaupin. Er reiknað með að um 29% af
netverslun yfir þakkargjörðarhelgina
fari fram í gegnum snjallsíma, en að
51% af heimsóknum á vefsíður net-
verslana verði í gegnum snjallsíma.
Greinir MarketWatch frá því að
vaxandi vægi snjallsíma í netverslun
megi að hluta skýra með því að snjall-
símarnir hafa þróast í þá átt að vera
með stærri skjá sem auðveldar neyt-
endum að skoða vörur og ganga frá
kaupunum.
Um jólin áætlar ADI að 52% heim-
sókna á vefsíður netverslana verði í
gegnum snjallsíma og að 30% af allri
sölu fari fram í gegnum snjallsíma.
ai@mbl.is
Von á miklum
vexti í netverslun
Snjallsímar leika stærra hlutverk
AFP
Flatarmál Stærri skjár á símum eru
taldir eiga þátt í þróuninni.
Kínversk stjórnvöld birtu á laugar-
dag innkaupastjóravísitölu fyrir
októbermánuð. Mældist vísitalan
49,8 í mánuðinum. Innkaupastjóra-
vísitalan er þannig reiknuð að gildi
undir 50 jafngildir samdrætti á
meðan gildi yfir 50 eru til marks
um aukningu á milli tímabila.
Sama gildi mældist í september
og var október þriðji mánuðurinn í
röð sem innkaupastjóravísitalan
sýndi samdrátt.
Financial Times greinir frá því að
iðnfyrirtæki í Kína hafi verið einn
helsti drifkrafturinn að baki efna-
hagsvexti þar í landi. Þá hafi
minnkandi eftirspurn kínverskra
framleiðslufyrirtækja eftir hrávöru
haft áhrif á hrávörumarkaði á
heimsvísu.
Samdrátturinn undanfarna mán-
uði þykir til marks um að framhald
verði á þeim samdrætti sem orðið
hefur í vexti kínversks efnahagslífs
síðustu misserin, en of snemmt er
að segja til um hvort þróunin hafi
náð botni.
Að sögn FT hafa leiðtogar kín-
verska kommúnistaflokksins lýst
yfir vilja sínum til að gera umbætur
sem miði að því að gera hagkerfið
minna háð fjárfestingum í þunga-
iðnaði og gefa nýsköpun og neyslu
aukið vægi. ai@mbl.is
Samdráttur hjá
verksmiðjum í Kína
Innkaupastjóravísitalan mælist 49,8
AFP
Eftirspurn Starfsmenn önnum kafnir við að sauma bangsa í Kína.
Þrátt fyrir lækkanir á föstudag var
hækkun bandarískra hlutabréfa í
síðasta mánuði sú mesta síðan í októ-
ber 2011. S&P 500-hlutabréfavísital-
an hækkaði um 8,3% í mánuðinum og
Dow Jones-vísitalan styrktist um
8,5%. Mælt í stigum var hækkun
Dow Jones og S&P 500 sú mesta í
sögunni. Nasdaq-vísitalan endaði
mánuðinn 9,4% hærri.
Þessi mikla hækkun kemur í kjöl-
far tveggja mánaða af lækkunum þar
sem m.a. atburðir í Bandaríkjunum,
Evrópu og Kína lögðust á eitt við að
gera fjárfesta órólega. MarketWatch
segir um hækkunina í október að hún
þyki nokkuð óvenjuleg í ljósi þess að
þær hagnaðartölur sem bandarísk
fyrirtæki hafa birt í mánuðinum hafa
ekki verið framúrskarandi, og erfitt
að túlka hvert Seðlabanki Bandaríkj-
anna stefnir. „Þeir sem skoða tölurn-
ar vita mætavel að ástandið er ekki
að batna,“ hefur MarketWatch eftir
markaðsgreinanda hjá ADS Securi-
ties í Abu Dhabi.
Meðal þeirra fyrirtækja sem
hækkuðu mest í mánuðinum voru
SanDisk sem endaði mánuðinn rúm-
lega 42% hærra eftir að fréttir bár-
ust af því að Western Digital hygðist
kaupa fyrirtækið. Wynn Resorts,
sem starfrækir hótel og spilavíti í
Las Vegas og Macau hækkaði um
32,6% í mánuðinum í ljósi þeirra tíð-
inda að kínversk stjórnvöld hygðust
taka upp vinsamlegri stefnu í efna-
hagsmálum Macau. ai@mbl.is
Hækkun hlutabréfa í októ-
ber sú mesta í fjögur ár
Bandarísku hlutabréfavísitölurnar þrjár ruku upp
AFP
Leiðrétt Mánuðina tvo á undan höfðu markaðir verið á niðurleið.
Eftir að hafa farið yfir stöðu fjög-
urra stærstu banka Grikklands hef-
ur Seðlabanki Evrópu (SBE) komist
að því að bankarnir þarfnast 14,4
milljarða evra fjármögnunar ef þeir
eiga að geta staðið af sér versnandi
aðstæður á fjármálamörkuðum og í
efnahagslífi landsins.
SBE framkvæmdi álagspróf á
rekstri bankanna þar sem forsend-
urnar voru þær að hagkerfi Grikk-
lands myndi dragast saman um 6%
fram að árslokum 2017. Var útkom-
an sú að Piraeus Bank skortir 4,9
milljarða evra, NBG vantar 4,6
milljarða, Alpha Bank 2,7 milljarða
og Eurobank vanhagar um 2,1 millj-
arða evra.
Í umfjöllun Financial Times um
málið kemur fram að álagsprófið
hafi þótt nokkuð strembið. FT hefur
eftir ónafngreindum fjárfestinga-
bankaráðgjafa að 14,4 milljarðar
evra séu „stór upphæð“ fyrir bank-
ana að afla nema þeir fái frekari
framlög úr björgunaráætlun ESB.
Hlutabréf grísku bankanna fjög-
urra hafa lækkað um 95% á und-
anförnum fimm árum og er sam-
anlagt markaðsvirði þeirra í dag 5
milljarðar evra.
Bankarnir hafa frest til 6. nóv-
ember til að leggja fram áætlanir
um hvernig þeir hyggjast afla þess
fjármagns sem SBE telur að vanti.
Þegar þykir ljóst að NBG hyggist
brúa bilið að hluta með sölu tyrk-
neska bankans Finansbank. Hafa
áhugasamir aðilar viljað kaupa tyrk-
neska bankann á um 3 milljarða
evra.
FT segir fjárfesta hafa af því
áhyggjur að grísk stjórnvöld noti
tækifærið sem gefst með endurfjár-
mögnun bankanna til að auka enn
frekar ítök sín í gríska bankageir-
anum. FT hefur eftir fjárfestinum
Wilbur Ross, sem á stóran hlut í
Eurobank, að „í ljósi þeirra sveiflna
sem einkenna grískt stjórnmálalíf
þá séu fjárfestar ekki hrifnir af því
að leggja aukið hlutafé í banka sem
hafa í reynd verið þjóðnýttir“.
ai@mbl.is
AFP
Kröfur Til að standast álagsprófið þurfa stærstu bankar Grikklands að afla
á bilinu 2,1 til 4,9 milljarða evra. Mario Draghi, aðalseðlabankastjóri SBE.
Grísku bankana
skortir fjármagn
Féllu á álagsprófi Seðlabanka Evrópu