Morgunblaðið - 02.11.2015, Síða 23

Morgunblaðið - 02.11.2015, Síða 23
1996. Á öðru ári í MH fór Ófeigur sem skiptinemi til Suður-Ameríku og lenti í Patagóníu, syðst í Argentínu, skammt frá Eldlandi: „Þar var ég í eitt ár í góðu yfirlæti, lenti í miklum ævintýr- um og held enn sambandi við vini þar og fósturfjölskylduna.“ En hvenær kynntistu skáldagyðj- unni, Ófeigur? „Ég orti fyrsta ljóðið á unglingsár- unum og fékk þá á tilfinninguna að ég þyrfti að yrkja og skrifa. En ég var líka að hugsa um að verða myndlist- armaður. Ég var í íslenskunámi við HÍ í einn vetur til að kynna mér ís- lenskar nútíma- og miðaldabók- menntir en fór síðan til Kaupmanna- hafnar og stundaði veturinn 1998-99 nám í myndlist við Billedskolen, sem er nokkurs konar forskóli fyrir Kon- unglegu listaakademíuna. Þangað stefndi ég. En „huldukonan kallar“ og skáldskapurinn varð yfirsterkari. Ég hélt því heim og lauk BA-prófi í heim- speki í því skyni að kynna mér vest- ræna hugmyndasögu. Það er góður grunnur fyrir rithöfund og kennar- arnir voru frábærir, s.s. Þorsteinn Gylfason, Arnór Hannibalsson, Mikael Karlsson og Sigríður Þorgeirsdóttir, frænka mín.“ Ljóð og skáldsögur Ófeigur hefur sent frá sér eftirfar- andi ljóðabækur: Skál fyrir skamm- deginu, 2001; Handlöngun, 2003; Roði, 2006; Tvítólaveislan, 2008, og Pro- vence í endursýningu, 2008, Biscayne Blvd, 2009, Kviðlingar, 2013. Skáldsögur Ófeigs eru Áferð, 2005; Jón, 2010; Landvættir, 2012, og Öræfi, 2014. Ófeigur fékk Bókmenntaverðlaun Evrópusambandsins árið 2011 fyrir skáldsöguna Jón, Bóksalaverðlaunin árið 2014 fyrir Öræfi og auk þess Ís- lensku bókmenntaverðlaunin 2015 fyrir Öræfi. Einhver áhugamál, Ófeigur? „Bókmenntir eru eina áhugamálið. Ég er afar einhæfur – og þó – ég hef líka svolítinn áhuga á gömlum pumpu- orgelum – á nokkur slík og er að kenna sjálfum mér að spila á þau. Ég er að vísu ekki byrjaður að spila Bach en reyni að leika einfaldari kirkju- tónlist og reyndar hvað sem er. Þetta geri ég nú bara til að dreifa huganum.“ „Svo má geta þess að við göngum töluvert, ég og Schäefer-hundurinn minn, hann Kolur. Við höfum gengið á fjöll en erum ekki síður ánægðir með að hjala við vindinn og ganga stefnu- laust úti í víðáttunni.“ En einhver félagsstörf? „Nei. Ég hef aldrei verið í neinni nefnd, er ófélagslyndur og hópfælinn - vil helst eiga samskipti við fólk sem maður á mann.“ Fjölskylda Alsystkini Ófeigs eru Þóra Sif Sig- urðardóttir, f. 24.12. 1969, íþróttafræð- ingur í Reykjavík, og Geirmundur Sig- urðsson, f. 5.4. 1973, ljósmyndari og bókbindari í Antwerpen. Hálfbróðir Ófeigs, samfeðra, er Hjörtur Sigurðsson, f. 6.10. 1987, við- skiptastjóri í Reykjavík. Foreldrar Ófeigs eru Sigurður Geirmundsson, f. 18.12. 1948, húsa- smíðameistari í Reykjavík, og Ágústa Pálína Klein, f. 3.6. 1948, setjari og fjarritari í Reykjavík. Úr frændgarði Ófeigs Sigurðssonar Ófeigur Sigurðsson Ágústa Pálína Færseth húsfr. og verkak. á Siglufirði Einar Andreas Færseth verkam. á Siglufirði Þóra Lilja Klein húsfr. í Rvík Carl Georg Klein kjötiðnaðarm. og verslunarm. í Rvík Ágústa Pálína Klein setjari og fjarritari í Rvík Elín Þorláksdóttir húsfr. í Rvík Johannes Carl Klein kaupm. á Baldurs- götu 14 í Reykjavík Páll Sigurðsson skrifstofum. í Rvík Þorsteinn Pálsson fyrrv. forsætisráðherra Dagur Sigurðsson handbolta- þjálfari í Þýskalandi Sigurveig Jónsdóttir húsfr. í Rvík Ófeigur Eyjólfsson sjóm. í RvíkAnna Fanney Ófeigsdóttir hattasaumari í Rvík Geirmundur Sigurðsson rennismiður í Rvík Sigurður Geirmundsson húsasmíðam. í Rvík Sigríður Ólafsdóttir húsfr. á Eyrarbakka Kjartan Lárusson fyrrv. forstj. Ferðaskrifstofu Íslands Ragnheiður Lárusd. fyrrv. verslunarm. Lárus Blöndal bóksali Kristín Guðmundsd. húsfr. á Selfossi Kristjana Guðmunds- dóttir húsfr. á Selfossi Hallgrímur Gísli Færseth skip- stj. og útgerðarm. í Keflavík Andreas K. Færseth forstj. Netaverkstæðis Suðurnesja Óli Færseth forstj. Neta- verkstæðis Suðurnesja Sigríður Ragna Sigurðard. fyrrv. yfirm. barnaefnis hjá Sjónvarpinu Guðmundur Pétur Arnolds- son rafv. á Selfossi Olga Færseth knattspyrnukona Elín Arnoldsdóttir fyrrv. starfsm. Árborgar á Selfossi Óskar Færseth fyrrv. knattspyrnum. og kaupm. í Keflavík Hrefna Þorbjörg Hákonard. fyrrv. Norðurlanda- og Evrópumeistari í hópfimleikum Einar Guðmundss. skólastj. á Selfossi og þjálfari unglinga- landsliðsins í handbolta Kristjana Stefánsd. djasssöngkona Guðmundur Guðmundss. kaupfélagsstj. á Eyrarbakka Sigurður Gísli Guðmundsson bóksali og bankam. á Eyrarbakka ÍSLENDINGAR 23 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 2015 85 ára Ásgeir Gunnarsson Ásthildur G. Steinsen Hanna Hafdís Guðmundsdóttir Hildur Friðjónsdóttir Hólmfríður Sigurðardóttir 80 ára Ásta B. Karlsdóttir Rafn Vigfússon Vera Tómasdóttir 75 ára Erling Þór Þorsteinsson Gerður Sigurðardóttir Halldóra Gunnarsdóttir 70 ára Erla Hallgrímsdóttir Friðbjörn Björnsson Hrafn Óskar Oddsson Tómas Guðjónsson Þórdís Guðmundsdóttir 60 ára Birna Stefnisdóttir Bryndís Sumarliðadóttir Elín Björg Valdórsdóttir Erla Björk S Steinarsdóttir Guðný Guðnadóttir Guðrún Fjeldsted Hjartardóttir Halldís Hallsdóttir Hilmar Teitsson Ragnar G. Guðmundsson Rósa Sigríður Sigurðardóttir Rúnar Þór Gylfason Þór Sigurjónsson 50 ára Ágúst Þorbjörn Þorbjörnsson Ásgrímur Sigurjónsson Elín Þuríður Guðmundsdóttir Ingibjörg Jónasdóttir Linda Húmdís Hafsteinsdóttir Sor Norelia Calderon Gonzalez 40 ára Emil Koylazov Eyjólfur Bjartur Eyjólfsson Guðrún Dagný Pétursdóttir Guðrún Þóra Guðmundsdóttir Magnús Bragi Magnússon Sif Svavarsdóttir Svanhvít Edda Johnsen 30 ára Angella Evelyn Adong Ojara Gunnhildur Kjartansdóttir Lovísa Sha Mi Marlena Rzepnicka Neenu Paulose Rut Skúladóttir Sigurður Örn Karlsson Þorgeir Ragnarsson Til hamingju með daginn 40 ára Hafrún kennir textílmennt í Rimaskóla og er nemi í M.Ed. Maki: Sigurður Einar Guðbrandsson, f. 1972, smiður. Börn: Hafsteinn Vilbergs, f. 2000, Heiðmar Máni, f. 2003, og Álfheiður Amý, f. 2007. Foreldrar: Hansína Kol- brún Jónsdóttir, f. 1950, Hafsteinn Vilbergs, f. 1944, d. 1975, og Gunnar Már Gíslason, f. 1944. Hafrún Ásta Hafsteinsdóttir 40 ára Ívar er Hafnfirð- ingur en býr í Kópavogi og er netstjóri hjá Reikni- stofu bankanna. Maki: María Dögg Tryggvadóttir, f. 1975, við- skiptafræðingur hjá Actavis. Börn: Kári Jökull, f. 2010, og Fjóla Snædís, f. 2015. Foreldrar: Þórólfur Krist- jánsson, f. 1947, og Val- borg Stefánsdóttir, f. 1950. Þau eru búsett í Hveragerði. Ívar Þórólfsson 30 ára Margrét er Hafn- firðingur og er viðskipta- fræðingur hjá Grant Thornton endurskoðun ehf. Maki: Þengill Ólafsson, f. 1975, sölumaður hjá Öryggismiðstöðinni. Sonur: Garðar, f. 2013. Foreldrar: Garðar Flygen- ring, f. 1955, umsjónar- maður eigna hjá IKEA, bú- settur í Hafnarfirði, og Ólöf Svavarsdóttir, f. 1955, d. 2004, sjúkraliði. Margrét Ýr Flygenring Heather Rosemary Philp hefur varið doktorsritgerð sína í líffræði við Líf- og umhverfisvísindadeild Háskóla Ís- lands. Heiti ritgerðarinnar er: Leiðir til að auka verðmæti humars (Nephrops norvegicus) úr sjó með líffræðilegum aðferðum (Using biology to improve the value of the Icelandic lobster (Nephrops norvegicus) fishery). Andmælendur eru dr. Elena Mente, prófessor við Háskólann í Þessalóníku, Grikklandi, og dr. Sigurjón Arason, prófessor við Matvæla- og næringar- fræðideild Háskóla Íslands. Leiðbeinandi var dr. Guðrún Mar- teinsdóttir, prófessor við Líf- og um- hverfisvísindadeild Háskóla Íslands, en auk hennar skipuðu doktorsnefnd dr. Amaya Albalat, prófessor við Uni- versity of Sterling, Skotlandi, og dr. Douglas Neil, prófessor við University of Glasgow, Skotlandi. Í þessu doktorsverkefni er fjallað um leiðir til að auka verðmæti humars á Íslandsmiðum á vistvænan hátt, án þess að auka veiðiálag. Í fyrsta hluta verkefnisins var reynt að auka skilning á grunn líffræðilegum atriðum í lífs- ferli krabbadýra, þ.e. hamskiptaferlinu sjálfu. Því næst var reynt að meta til- komu skemmda sem myndast á ytri stoðgrind og tapi á útlimum frá því að humarinn var veiddur og þar til honum var pakkað í frystiöskjur. Í þriðja hluta verkefnisins voru skoðaðar leiðir til að flytja humar lifandi á markað. Humar er allt að þrisvar sinnum dýrari lifandi en frystur. Að lokum var fjallað um leiðir til að auka tekjur með því að nýta aukaafurðir sem áður var fargað. Meginniðurstöður sýndu að hægt er að auka verðmæti humars úr sjó með leiðum er tengjast meðferð á afla, löndun og flutningi á markað. Heather Philp Heather Rosemary Philp er fædd 1976 á eynni Skye í Skotlandi. Hún útskrifaðist með meistaragráðu í líffræði frá University of Aberdeen 2006, en var einnig áður stjórnandi í humarvinnslufyrirtæki fjölskyldu sinnar, og hóf doktorsnám við Há- skóla Íslands 2007. Rannsókn Heather var unnin við Þekkingarsetur Vestmanna- eyja og Vinnslustöðina í Vestmannaeyjum og naut hún styrks úr AVS rannsókna- sjóði í sjávarútvegi. Heather á eiginmann og tvö börn. Doktor Allir þeir sem senda blaðinumynd af nýjum borgara eðamynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einnmánuð. Hægt er að sendamynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón JólablaðMorgunblaðisins kemur út fimmtudaginn 19. nóvember Fullt af spennandi efni fyrir alla aldurshópa PÖNTUN AUGLÝSINGA: til kl. 12 mánudaginn 16. nóvember. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.