Morgunblaðið - 02.11.2015, Side 32

Morgunblaðið - 02.11.2015, Side 32
MÁNUDAGUR 2. NÓVEMBER 306. DAGUR ÁRSINS 2015 VEÐUR » 8 www.mbl.is 5 6 9 1 1 0 0 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is | sími 5691100 mbl.is: netfrett@mbl.is Í LAUSASÖLU 488 ÁSKRIFT 5295 HELGARÁSKRIFT 3307 PDF Á MBL.IS 4696 I-PAD ÁSKRIFT 4696 1. Eins og rosalega stórt frekjukast 2. Kvenhetja kveður hlutverkið 3. Gert að senda Airbus í skoðun 4. Dómari fær sjaldgæft hrós »MEST LESIÐ Á mbl.is FÓLK Í FRÉTTUM  Dr. Matt Brennan, kennari við Edin- borgarháskóla og einn helsti dægur- tónlistarfræðingur Bretlands, mun fjalla um þau fræði í málstofu sem haldin verður í stofu 102 í Gimli í Há- skóla Íslands á morgun kl. 16.30. Er- indi hans ber yfirskriftina What is Po- pular Music Studies? þ.e. Hvað eru dægurtónlistarfræði? Brennan hefur starfar náið með hinum þekkta pró- fessor Simon Frith sem átti stóran þátt í að standsetja fræðin á ofan- verðum áttunda áratugnum, að því er segir á vef HÍ. Arnar Eggert Thoroddsen, doktors- nemi í dægurtónlistarfræðum við Ed- inborgarháskóla og stundakennari við félagsvísindasvið, stýrir málstof- unni. Fjallað um dægur- tónlistarfræði  Stórsveit Reykjavíkur heldur tón- leika í Kaldalóni í Hörpu í kvöld kl. 20 í tilefni af útgáfu plötunnar Innri. Á henni leikur sveitin verk Jóels Páls- sonar í útsetningum Kjartans Valde- marssonar. Jóel og Kjartan hafa verið meðlimir sveitarinnar um árabil. Plöt- ur Jóels hafa hlotið fjölda verðlauna en þetta er í fyrsta sinn sem verk hans eru hljóðrituð af stórsveit. „Stór- sveit Reykjavíkur hefur það sem eitt af sínum megin- markmiðum að flytja nýja íslenska tónlist og þessir tón- leikar falla sann- arlega undir það,“ segir í tilkynningu. Stórsveit Reykjavík- ur leikur lög af Innri Á þriðjudag Suðvestan 5-10 m/s og skúrir eða él, en bjartviðri norðaustan- og austanlands. Hiti 1 til 5 stig yfir daginn. Á miðvikudag Suðlæg átt 3-8 m/s og dálitlar skúrir eða él sunn- an- og vestantil, en léttskýjað á N- og A-landi. Hiti breytist lítið. SPÁ KL. 12.00 Í DAG Léttir til á norðaustanverðu landinu. Hiti 3 til 9 stig, en heldur svalara í kvöld. VEÐUR „Mér finnst mörg liðanna í deildinni vera vel mönnuð og fyrir vikið er lítill munur á milli efstu og neðstu liða,“ sagði Alfreð Örn Finnsson, þjálfari Vals, spurður hvern- ig honum þætti keppnin í Ol- ís-deild kvenna í hand- knattleik hafa verið það sem af væri leiktíð- inni en aðeins munar sex stigum á efsta lið- inu og því sem er í sjö- unda sæti. »2. Mun jafnari keppni en áður Handknattleiksmaðurinn Ómar Ingi Magnússon leikur ekki með Val á nýj- an leik fyrr en eftir áramót, m.a. vegna álagsmeiðsla. „Það má segja að við höfum verið búnir að ofgera honum,“ sagði Óskar Bjarni Óskars- son, þjálfari Vals, við Morgunblaðið en Ómar Ingi hefur leikið alla leiki Vals á leiktíðinni að þeim síðasta undanskildum eftir að hafa verið á fullri ferð í allt sum- ar með unglingalands- liðinu. »4 Ómar Ingi úr leik út árið vegna álagsmeiðsla „Þetta er betri árangur en ég átti von á í upphafi tímabilsins,“ sagði Arnór Ingvi Traustason, leikmaður Norrköp- ing í Svíþjóð, eftir að liðið tryggði sér um helgina meistaratitilinn þar í landi. Arnór Ingvi og félagar skutust þá til Malmö og gerðu sér lítið fyrir og unnu heimamenn 0:2. Arnór Ingvi lagði upp annað markið og skoraði hitt. »1 Meistaratitill fór fram úr björtustu vonum ÍÞRÓTTIR | 8 SÍÐUR Skannaðu kóðann með símanum þínum og fylgstu með veðrinu á Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is „Við þorðum ekki að ímynda okkur þessi viðbrögð í okkar villtustu draumum,“ segir Daníel Auðuns- son, gítarleikari og söngvari í hljómsveitinni Árstíðum, en upp- taka af söng sveitarinnar á laginu Heyr himnasmiður hefur algjörlega slegið í gegn á Youtube. Í gær- kvöldi var áhorfendafjöldinn ná- kvæmlega 4 milljónir, 618 þúsund og 492 en söngurinn var tekinn upp fyrir tveimur árum í lestarstöð í borginni Wuppertal í Þýskalandi. Til samanburðar hafa 1,6 milljónir horft á myndbandið með lagi Bjarkar Guðmundsdóttur, Human Behavior, frá árinu 2010. Nótur Þorkels rjúka út Upptakan með Árstíðum fékk fljótt mikið áhorf og í kjölfarið tóku að streyma fyrirspurnir til sveit- arinnar frá kórum og tónlistar- mönnum úr flestum heimsálfum. Nótur með laginu, sem er eftir Þor- kel Sigurbjörnsson við sálm Kol- beins Tumasonar, hafa verið fáan- legar hjá Tónverkamiðstöðinni og þar á bæ kemur enn fjöldi beiðna og fyrirspurna um lag Þorkels heit- ins frá kórum og sönghópum af ýmsu tagi. Eftir að myndbandið fór á netið fjölgaði beiðnum erlendis frá um nóturnar um 250% á síðasta ári! Daníel segir upptökuna klárlega hafa hjálpað sveitinni að koma sér á framfæri. Ný plata kom út í mars sl. og hefur fengið góðar viðtökur. Var henni fylgt eftir með tónleika- ferðalagi, bæði í Evrópu og Banda- ríkjunum í sumar. Þar var sveitin oft beðin um að syngja lag Þor- kels Sigurbjörnssonar, m.a. með þremur kórum í Banda- ríkjunum sem höfðu æft lagið sérstaklega. Í ljósi sterkra viðbragða á Youtube er freistandi að spyrja hvort hljómsveitin hafi ekkert hugsað um að snúa sér al- farið að söngnum. „Söngurinn kem- ur alltaf með,“ segir Daníel og hlær við spurningunni. „Þetta byrjaði með að við fórum að syngja kórlög á tónleikaferðalögum til að drepa tímann á leiðinni. Síðan fórum við að syngja acapella-lög á jóla- tónleikum okkar í Fríkirkjunni í Reykjavík. Það vakti mikla lukku.“ Tilefni upptökunnar á lestarstöð- inni í Wuppertal var að hljóm- sveitin spilaði á tónleikastað í stöð- inni sjálfri og var bent á að koma út á gang, þar sem hátt er til lofts og vítt til veggja. Þar fundu þeir fyrir mikilli endurómun, eða reverb á fagmálinu, og ákváðu að taka lag- ið. „Þetta var algjörlega óundir- búið, við byrjuðum að syngja en vorum svo heppnir að PR-fulltrúi okkar stökk til og tók sönginn upp. Hún skellti myndbandinu á netið um kvöldið og snjóboltinn byrjaði að rúlla.“ 4,6 milljónir hafa horft á Árstíðir  Heyr himna- smiður slær enn í gegn á Youtube Ljósmynd/Matthew Eisman Eftirsóttir Hljómsveitin Árstíðir eins og hún er skipuð í dag, f.v. Karl Pestka fiðluleikari, Daníel Auðunsson, gítar- leikari og söngvari, Gunnar Már Jakobsson gítarleikari og Ragnar Ólafsson söngvari. Frá því að upptakan í lestar- stöðinni fór fram hafa tveir meðlimir leitað á aðrar slóðir, þeir Hallgrímur Jónas Jensson og Jón Elísson. „Við höfum svolítið vanrækt ís- lenska markaðinn en ætlum að bæta úr því,“ segir Daníel Auðuns- son en Árstíðir koma fram á nokkr- um tónleikum á Iceland Airwaves- tónlistarhátíðinni sem er að bresta á í Reykjavík. Fyrstu tónleikarnir verða í Norðurljósasal Hörpu á mið- vikudagskvöld, síðan í Laundromat Café og Bar 11 á fimmtudag (off venue), í Silfurbergi í Hörpu á föstudagskvöld, á laugar- dag í Bryggjunni brugg- húsi og loks í Norræna húsinu sunnudaginn 8. nóvember. „Annars er nóg að gera hjá okkur í upp- tökum,“ segir Daníel en hljómsveitin ráðgerir að gefa út klassíska plötu í febrúar nk. Kemur platan fyrst út í Hollandi þar sem þekkt hollensk söngkona, Anneke Van Giersbergen, syngur með þeim á plötunni, m.a. lagið Heyr himna- smiður. Giersbergen hefur einkum getið sér gott fyrir söng í þunga- rokki en hún kom að máli við Árs- tíðir um að vinna saman að plötu af þessari gerð. „Það hafa margir beð- ið okkur að taka þetta lag upp á plötu og við létum verða af því,“ segir Daníel. Fyrirtæki á vegum söngkonunnar mun sjá um markaðssetningu og dreifingu plötunnar. Annað tón- leikaferðalag er fyrirhugað um Evr- ópu í kjölfar þessarar útgáfu. Þekkt söngkona á nýrri plötu KOMA FRAM Á ICELAND AIRWAVES-TÓNLISTARHÁTÍÐINNI Anneke Van Giersbergen

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.